Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Síða 8
Pistill Selmu breytti sam fé laginu
n Freyja Haraldsdóttir er þakklát þeim sem rjúfa þögnina
É
g er ykkur báðum óendan
lega þakklát því ég veit hversu
mikil vægt það er að öðlast
góðar fyrirmyndir,“ skrifar
Freyja Haraldsdóttir, varaþing
maður Bjartrar framtíðar, í pistli
á bloggsíðu. Þar beinir hún orð
um sínum til Selmu Bjarkar Her
mannsdóttur, ungrar stúlku sem
skrifaði á bleikt.is áhrifamikinn
pistil um helgina. Þar fjallaði hún
um einelti sem hún hefur orðið fyr
ir á lífsleiðinni vegna þess að hún
fæddist með skarð í vör.
Selma hefur hlotið mikið lof fyr
ir hugrekki sitt. Í kjölfarið steig önn
ur ung stúlka, Bjarndís Sara Anbari,
fram og sagði frá reynslu sinni. Hún
fæddist einnig með skarð í vör auk
„cerebral palsy“, sem er tegund
hreyfihömlunar. Freyja hrósar
þessum ungu stúlkum fyrir hug
rekki þeirra. Í pistlinum rifjar Freyja
upp hvernig lífið var fyrir hana
þegar hún var að alast upp með
fötlun sinni. „Þegar ég var í 9. bekk
langaði mig nánast aldrei í skólann.
Ég kveið fyrir árshátíðum, ég þoldi
ekki að finna mér föt og ég hataði
líkamann sem ég horfði á í spegl
inum. Mig langaði helst af öllu að
geta klætt mig í svartan ruslapoka
svo engin sæi hvernig ég liti út eða
einfaldlega fá að vera bara heima.“
Freyja segir það hafa verið erfitt
að horfa á sjónvarpið og sjá aldrei
aðra konu eins og sig. Hún hafi síð
ar á lífsleiðinni kynnst konum sem
eru fyrirmyndir hennar.
„Og ég þakka það þessum kon
um sem að mörgu leyti björguðu
mínu lífi. Þær höfnuðu þessu „eðli
lega“, rufu þögnina og ögruðu hatr
inu með hugrekki, stolti og ást, ná
kvæmlega eins og þú varst að gera
með því að stíga fram og segja
söguna þína.“ n
OR fékk ekki greitt
fyrir Magma-bréfið
n Stjórnarmaður í OR hefur áhyggjur af að ekki hafi verið greitt fyrir bréfið
O
rkuveita Reykjavíkur fékk
ekki greidda þá rúma
fimm milljarða króna sem
stofnunin átti að fá sem
fyrstu greiðslu fyrir skulda
bréf kanadíska fyrirtækisins Magma
sem er í eigu Ross Beaty. Skulda
bréfið er með veði í tæplega fjórð
ungshlut Magma í HS Orku. Þetta
herma heimildir DV. Á sínum tíma
seldi Orkuveitan tæplega 30 pró
senta hlut í HS Orku til Magma með
seljendaláni en sökum lækkandi ál
verðs í heiminum hefur fjárfestingin
ekki borgað sig. Orkuveitan er fjár
þurfi og þarf að bæta lausafjárstöðu
sína – þetta var hluti af tilganginum
með sölunni á skuldabréfinu – og
skiptir dráttur á viðskiptunum því
máli fyrir stofnunina.
Í júlí síðastliðnum ákvað stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur, og síðar
borgarráð Reykjavíkur, að selja
skuldabréfið til verðbréfafyrirtækis
ins Landsbréfa sem er í eigu Lands
bankans og kvað kauptilboðið á um
að þann 30. ágúst 2013 greiddust
5.160 milljónir króna fyrir skulda
bréfið. Afgangurinn átti að greiðast í
desember 2016, samtals 3.440 millj
ónir króna. Landsbréf áttu þá eft
ir að setja saman fjárfestahóp til að
kaupa bréfið. Þessu átti hins vegar
að vera lokið þann 30. ágúst.
Ákvæði um frest
Stjórnarmaður í Orkuveitu Reykja
víkur – sem ekki vill láta nafns síns
getið – sem DV ræddi við segir að um
mánaðamótin síðustu hafi ekki ver
ið búið að greiða fyrstu afborgun
ina fyrir skuldabréfið. Stjórnarmað
urinn segist hafa vissar áhyggjur af
sölunni á bréfinu en segir jafnframt
að í samningum um söluna hafi
verið fyrirvari um mögulegan frest á
fyrstu afborgun. „Menn vonast eftir
því að þetta fari að detta inn,“ segir
stjórnarmaðurinn.
Í svari Eiríks Hjálmarssonar,
upplýsingafulltrúa Orkuveitu
Reykjavíkur, við fyrirspurn DV um
málið kemur fram að Landsbréf hafi
óskað eftir mánaðarfresti til að rifta
fyrirvara í kaupsamningi. „Kaup
andi óskaði frests til að aflétta fyrir
vara og var veittur mánaðarfrestur.“
DV óskaði eftir upplýsingum um
hvers eðlis þessi fyrirvari væri en
fékk ekki svar við þeirri spurningu.
Boltinn er í raun hjá Landsbréf
um sem kaupanda skuldabréfsins
fyrir hönd fjárfesta sem ekki eru
kunnir þó líklegt sé að lífeyrissjóðir
séu þar á meðal. Stjórnarmaðurinn
segir að ekki hafi hins vegar borist
erindi til stjórnar Orkuveitunnar
þess efnis að Landsbréf ætli að falla
frá kauptilboðinu enda væri slíkt
samningsbrot.
Ákveðin nauðungarsala
DV greindi ítarlega frá viðskiptun
um í júlí síðastliðnum og byggði
umfjöllunin á gögnum frá Orku
veitu Reykjavíkur, sem Bjarni
Bjarnason forstjóri var skrifaður
fyrir.
Í yfirliti yfir neikvæð áhrif þess
að selja skuldabréfið sagði meðal
annars um tilboð Landsbréfa í
skuldabréfið, en verðbréfafyrir
tækið átti tvö tilboð í bréfið: „Til
boðin eru undir bókfærðu virði OR
og taka hvors þeirra myndi hafa í
för með sér gjaldfærslu. Hafa ber
í huga að búið er að færa hækkun
í bókum OR um ca. 600 mkr. frá
upphafi.“ Í gögnunum kom fram
að selja þyrfti bréfið til að laga eig
infjárstöðu OR en stofnunin hefur
selt margar eignir síðastliðin ár, til
dæmis Orkuveituhúsið sjálft.
Þá kom einnig fram að Bjarni
hefði áhyggjur af því að Magma
myndi einfaldlega hætta að greiða
vexti af skuldabréfinu, en afborgan
ir af seljendaláninu sjálfu eru ekki
fyrr en á gjalddaga bréfsins árið
2016 enda er um kúlulán að ræða.
Miðað við þessi tíðindi þá er enn
ekki búið að greiða fyrir skuldabréf
ið, jafnvel þó búið séð að undirrita
samninga um kaupin. Ekki náðist í
Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóra
Landsbréfa, til að spyrja hann um
kauptilboðið og dráttinn á fyrri
greiðslunni fyrir skuldabréfið. n
Dráttur á sölu Magma-bréfsins
Orkuveitan fékk ekki þá fimm milljarða
fyrir Magma-skuldabréfið sem stofn-
unin átti að fá þann 30. ágúst.
MynD: DV eHF / Sigtryggur Ari
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Gáfu gamlan
strætisvagn
Reynir Jónsson, framkvæmda
stjóri Strætó bs., afhenti Flug
björgunarsveitinni gamlan
strætisvagn að gjöf á föstudaginn.
Strætó bs. tók tólf nýja vagna í
notkun í ágúst og því losnaði um
eldri vagna og nýtur nú Flugbjörg
unarsveitin góðs af.
Það var Baldur Ingi Halldórs
son, bílaflokksformaður hjá Flug
björgunarsveitinni, sem tók á móti
vagninum. Fyrirhugað er að gefa
einnig vagna til slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu og Bruna
varna Árnessýslu.
Baldur Ingi segir í tilkynningu
að vagninn sem Flugbjörgunar
sveitin fékk að gjöf verði meðal
annars nýttur við nýliðaþjálfun og
æfingar. „Þá nýtist vagninn einnig
sem bækistöð og móttökustað
ur fyrir sjúklinga og björgunarfólk
í stórum aðgerðum. Hann mun
því nýtast okkur mjög vel og þessi
gjöf einfaldar mér lífið sem bíla
flokksformaður.“ Sem fyrr segir
losnaði um gamla vagna eftir að
Strætó bs. keypti nýja. Reynir segir
að einhverjum þeirra verði fargað
en segir að það sé gott að geta gef
ið vagna til þeirra sem vinna jafn
óeigingjarnt starf og björgunar
sveitir og slökkvilið gera.
Sex milljónir
til Sýrlands
Utanríkisráðherra hefur veitt sex
milljóna króna framlag til Flótta
mannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna vegna flóttamanna
ástands í Sýrlandi og nágaranna
löndum. Fram kemur í tilkynn
ingu að tæpar tvær milljónir
landsmanna hafi hrakist á brott frá
Sýrlandi og talið sé að ríflega millj
ón börn séu þar á meðal. Viðtöku
löndin eigi í erfiðleikum með að
sinna þessum mikla fjölda flótta
fólks og sífellt berist nýjar beiðnir
frá alþjóðastofnunum sem þurfi
sárlega á stuðningi að halda.
Á árunum 2012 og 2013 hefur
Ísland veitt 45 milljónum króna
til hjálparstarfs vegna neyðar
ástandsins í Sýrlandi að ógleymd
um þeim sex milljónum sem nú
eru veittar.
Keyrði á mann
og ók á brott
Á ellefta tímanum á mánudags
kvöld gekk vegfarandi inn á lög
reglustöðina á Grensásvegi og
tilkynnti að ekið hefði verið á
hann á bifreiðaplani við Laugar
ásbíó. Lögreglan á höfuðborgar
svæðinu segir manninn ekki
hafa meiðst mikið þegar ekið var
á hann. Nokkru seinna kom á
lögreglustöðina á Akranesi öku
maður og tilkynnti að hann hefði
ekið á gangandi vegfaranda í
Reykjavík. Hann varð svo skelk
aður vegna viðbragða þess sem
hann ók á að hann forðaði sér af
vettvangi og stoppaði ekki fyrr
en á Akranesi. Lögreglan segir, í
dagbókaruppfærslu, að málið fá
venjubundna afgreiðslu.
Þakklát Freyja
Haraldsdóttir þakkar
Selmu og Bjarndísi fyrir
að stíga fram og segja
sögu sína. MynD Sigtryggur Ari
8 Fréttir 11. september 2013 Miðvikudagur