Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Qupperneq 20
20 Lífsstíll 11. september 2013 Miðvikudagur n Nýjasta heilsuæðið er í anda uppvakninga n Innmatur er inni Næringarríkur innmatur Þ etta bragðast eins og skó­ sóli,“ gætu verið viðbrögð yngstu meðlima fjöl­ skyldunnar þegar matreidd er fyrir þá lifur, nýru eða hjörtu. Lifur og innmatur er ákaf­ lega hollur og næringarríkur matur og á einstaklega hagstæðu verði um þessar mundir en er ekki sá allra vinsælasti á diskum landsmanna. Næringarríkur hundamatur Það gæti þó breyst með nýjasta heilsuæðinu þar sem innmatur og innyfli eru talin æðri öðrum fæðu­ flokkum þegar kemur að næringar­ innihaldi. Uppvakningar kunna að vera það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar minnst er á innyfli en í nýrri metsölubók Mary Roach, Gulp, er meðal annars fjallað um nær­ ingarinnihald innmatar. Fæðu sem Vestur landabúar hafa fúlsað við og Mary bendir á margar athyglis­ verðar staðreyndir. Hún rifjar upp afar áhugaverða næringarfræðirannsókn frá árinu 1973. Þá var kannað næringarinni­ hald 36 prótínríkra fæðutegunda. Á listanum mátti sjá margvíslegar fæðutegundir sem oft rata á diska Vesturlandabúa: rækjur, skinku, steik, hnetusmjör, kjúkling, lifur og já, hundamat. Rannsóknin athugaði sérstaklega Alpo­hundamat, vegna orðróms um að fátækir ættu það til að leggja sér þessa tegund hundamatar til munns vegna þess hve ódýr hann er. Heili, magi og lungu Hvað er það í þessu fæði sem verð­ ur til þess að það raðar sér ofarlega á lista? Svarið er lifur. Mary skoðaði einnig matar­ æði inúíta, sem þurfa að neyta fjöl­ breyttrar næringar á afskekktu svæði. Fjölbreytileiki næringar þeirra reyndist vera í innmat. Mataræði inúíta reyndist inni­ halda mikið af innmat. Selshjörtu, hreindýraheili og augu og magar úr hinum ýmsu dýrum voru á matseðl­ inum. Annað sem einkenndi mataræði inúíta var að þeir eru ekki svo hrifnir af steikum. Kjöt vöðva álíta þeir ekki jafn næringarríkt og innyflin og nota það fremur í dýrafóður, samkvæmt athugunum Mary Roach. Allt nýtt úr skepnunni Hjá inúítum er allt nýtt af skepn­ unni, jafnvel lungu og heili sem við Íslendingar borðum lítið af. Aðrar þjóðir eru hrifnari af innmat. Sláturmatur er verðmætur og í miklum metum í Suðaustur­Asíu. Þar eru heili, hjörtu, nýru, lifur, lungu, miltu, tungur, nautabris og svínaleg, garnir og vambir úr kind­ um og nautgripum, eistu og hóstar­ kirtlar úr kindum og svínum nýtt til manneldis. Á Filippseyjum tíðk­ ast að borða hjörtu. Í Rússlandi og Egyptalandi er mikið borðað af lif­ ur. Í Mexíkó tíðkast að borða heila og varir og Bretar og Nýsjálendingar eru sólgnir í innmat. Rándýrafæði „Nýting á innmat til manneldis á Ís­ landi hefur farið minnkandi og er nú að mestu bundin við lifur og hjörtu. Notkun á nýrum er hverfandi og nýting á blóði og mör tengist nær eingöngu sláturgerð,“ segir Ólafur Reykdal, verkefnisstjóri hjá Matís, um notkun Íslendinga. Næringarinnihald innmatar ætti að höfða mjög til þeirra sem er um­ hugað um heilsuna. Sneið úr lunga úr nauti inniheldur til dæmis 50 prósentum meira af C­vítamíni en tangerína. Þetta kemur mörgum á óvart og vert að skoða næringarinni­ haldið aðeins betur. Hið sama á við um önnur nær­ ingarefni á borð við fosfór, magnesí­ um, potassíum, járn, sink, kopar, A­ vítamín, D­ og E­vítamín, þíamín, ríbóflavín, bíotín, fólínsýru og B6­ vítamín. Í lifur er hærra næringar­ innhald þessara næringarefna en í flestum öðrum fæðutegundum. Í dýralífi náttúrunnar sést vel hvað rándýr kjósa helst. Þau ráðast fyrst á lifur og maga. Svo hvers vegna eru ekki allir að borða innmat? „Ætli það sé ekki bragðið?“ segir Ólafur en bendir einnig á hátt A­ vítamín hlutfall í lifur. „Lömb­ in ganga í úthaga og í fjalllendi yfir vaxtartímann. Þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessum líf­ rænu mengunarefnum. Það er samt ástæða til þess að benda á að eitt næringarefni, A­vítamín, getur verið í dálítið miklu magni í lifur og sér­ staklega eldri dýra.“ Hvað gerist ef neytt er of mikils magns af A-vítamíni? Á vef Landlæknis eru tekin saman áhrif ofneyslu á A­vítamíni: Of mikil neysla á A­vítamíni á formi retínóls, retínólsýru eða annarra retínóíða er óæskileg, eink­ um er hún varhugaverð á meðgöngu þar sem stórir skammtar geta valdið fósturskaða. Barnshafandi konum er eindregið ráðið frá því að taka meira en 3.000 µg (míkrógrömm) af retínóli á dag sem fæðubótarefni og jafnvel er talin ástæða til að vara við of mikilli neyslu á mjög A­vítamín­ ríkum fæðutegundum, eins og lifur, á meðgöngu. Auk fósturskaða geta stórir skammtar af retínóli haft neikvæð áhrif á blóðfitu, leitt til lifrarskaða og haft áhrif á bein þannig að af hljótist beinþynning. Ýmis óþægindi geta einnig fylgt stórum skömmtum af A­vítamíni, eins og ógleði og höfuð­ verkur. Efri mörk neyslu á A­vítamíni hjá fullorðnum eru 3.000 µg á dag, en mörkin eru lægri hjá börnum. Þar sem þessi efri mörk taka e.t.v. ekki nægilegt tillit til hugsanlegrar hættu á beinbrotum hjá viðkvæm­ um hópum er konum eftir tíðahvörf, en þeim er hættara við beinþynn­ ingu og beinbrotum, ráðlagt að tak­ marka neyslu sína á A­vítamíni við 1.500 µg/dag. Í hundrað grömmum af lifur eru samkvæmt Matís 17.000 µg. Það er í lagi að neyta slíkrar fæðu af og til en varla gott að hafa lifur á matseðlinum oft í viku. n LIFUR Ofurfæðan: Lifur n 100 grömm af lifur: C-vítamín innihald: n 100 grömm epli 7,0 g n 100 grömm gulrætur 6,0 g n 100 grömm rautt kjöt 0 g n 100 grömm lifur 27,0 g B-12 innihald: n 100 grömm epli 0 g n 100 grömm gulrætur 0 g n 100 grömm rautt kjöt 1,84 µg n 100 grömm lifur 111,3 µg Innmatur vinsæll Bretar og Nýsjálendingar eru hrifnir af innmat. Mataræði uppvakninga Nýjasta heilsu- æðið felst í því að skilgreina innmat sem ofurfæðu vegna hás næringarinnihalds. Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is „Nýting á innmat til manneldis á Íslandi hefur farið minnkandi. Innmatur í sælkerabúningi: Matreiðslu- hugmyndir Lifur og innmat má matreiða á ýmsa vegu. Gott húsráð er að láta lifur liggja í sítrónusafa til að ná bitru bragðinu úr. Þá er ráð að ofelda ekki lifur, hún verður beisk­ ari við það. Lambalifur með viskírjómasósu Uppskrift: Matreiðsluvefur the Guardian, guardian.com Marokkó-kjötbollur úr lambahakki og lifur Uppskrift: levanacooks.com Lambalifur með steiktum lauk Uppskrift: waitrose.com Lifur með balsamikediki og sesamfræjum Uppskrift: belleaukitchen.com Steikt lifur Uppskrift: culinaryartwordpress. com Hryllingsmyndir skipta litlu máli Hryllingsmyndir á sígarettupökk­ um af ljótum tönnum eða svört­ um lungum virðast ekki hafa þau forvarnaráhrif sem til var ætlast. Þetta er að minnsta kosti raunin í Bretlandi, en könnun meðal ungra reykingamanna, þar á meðal barna, leiðir í ljós að þau kippa sér lítið upp við myndirnar. Könnunin var gerð meðal 2.800 ungmenna á aldrinum 11 til 16 ára. Af þeim reyktu 10 prósent að staðaldri. Niðurstöðurnar voru á þá leið að myndirnar skipta ungu reykinga­ mennina engu máli þegar þeir ákveða að fá sér sígarettu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.