Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Side 23
Dramatískir
auðjöfrar
Á föstudaginn verður ný mynd eftir
Woody Allen frumsýnd hér á landi í
Smárabíói og Háskólabíói. Myndin
heitir Blue Jasmine og skartar Cate
Blanchett í aðalhlutverki. Hún hef-
ur fengið mikið lof fyrir túlkun sína
á yfirstéttarfrú í New York sem lifir
áhyggjulausu forréttindalífi á Man-
hattan meðal hinna ofurríku. Þegar
vellauðugur eiginmaður hennar,
sem Alec Baldwin leikur, ákveður
að skilja við hana hrynur líf hennar
til grunna og hún þarf að fóta
sig á ný á eigin
forsendum. Auk
Cate Blanchett
og Alec Bald-
win leika Peter
Sarsgaard, Bobby
Cannavale
og Andrew
Dice Clay í
myndinni.
Menning 23Miðvikudagur 11. september 2013
Joyland
Höfundur: Stephen King
Útgefandi: Hard Case Crime
Lengd: 283 bls.
Bækur
Símon Birgisson
simonb@dv.is
Eldfimt þjóðfélagsástand
Maður að
mínu skapi
Höfundur: Bragi Ólafsson
Leikstjóri: Stefán Jónsson
Dramatúrg: Stefán Hallur Stefánsson
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Leikarar: Eggert Þorleifsson, Kristbjörg
Kjeld, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi
Gestsson, Þorleifur Einarsson, Þorsteinn
Bachmann
Frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins
laugardaginn 14. sept.
Leynist ófreskja
undir rúminu?
n Meistari hrollvekjunnar kann ennþá að hræða
S
purningin „hvað ef“ er megin-
stefið í öllum hrollvekju- og
furðubókmenntum. Hvað
ef húsið á hæðinni er reimt?
Hvað ef geimverur eru til?
Spurningar sem þessar eru megin-
stefið í bókum Stephen King – kon-
ungs hrollvekjunnar. Nema í bókum
Stephen King er spurningin yfirleitt
ekki hvort það sé ófreskja í leyni undir
rúminu – heldur frekar hvort ófreskjan
undir rúminu sé raunveruleg.
Skrifar til að hræða
Joyland eða Gleðiland er nýjasta bók
Stephen King. Þessi mest seldi höf-
undur allra tíma slær ekki slöku við.
Ekki er langt síðan hann sendi frá sér
tímaflakksskáldssögu um morðið á
John F. Kennedy og doðranturinn
Under the Dome öðlaðist framhalds-
líf sem vinsælasta sjónvarpsþáttasería
í Bandaríkjunum í sumar.
Stephen King kann að glíma við
ýmiss konar vandamál (hann er til
dæmis fyrrverandi amfetamínfíkill
og hefur ekki sagst muna eftir að
hafa skrifað nokkra bóka sinna á sín-
um yngri árum) en hann glímir svo
sannarlega ekki við ritstíflu.
Bókin Joyland er hins vegar í styttri
kantinum (allt undir 500 síðum telst
smásaga í skáldsagnaheimi Stephen
King). Bókarkápan er með þeim
flottari á árinu, stúlka í grænum kjól
horfir skelfingu lostin í augu lesand-
ans. Í bakgrunni ljósadýrð skemmti-
garðsins. Þetta er „Hard Case“-krimmi
– reyfari af gamla skólanum – skrifaður
til að hræða og skemmta.
Ófreskjan í manninum
Fáir standast kónginum snúning
þegar kemur að stórum sögum um
stóra viðburði. Sannir Stephen King-
aðdáendur nefna yfirleitt The Stand
sem sína uppáhaldsbók. Yfir þúsund
síðna heimsendasaga um vírus sem
verður nánast allri heimsbyggðinni
að aldurtila. En margir líta fram hjá
smásögum Stephen King (sem í til-
felli annarra höfunda væru nú bara
ágætlega langar skáldsögur). Það er í
smásögunum þar sem Stephen King
læsir ófreskjurnar í skápnum og ein-
blínir frekar á ófreskjuna sem býr inni
í manninum sjálfum. Sögurnar The
Shawsank Redemption, Apt Pubil,
The Langoliers (Furðuflug) og Stand
by Me eru dæmi um slíkar novelettur.
Draugahúsið reimt
Hið yfirnáttúrulega er þó alltaf
skammt undan. Í Joyland kynnumst
við klassískum Stephen King-persón-
um (það er ekki alvöru Stephen King
bók nema lítill drengur með skyggn-
igáfu sé hluti af persónugalleríinu).
Bókin fjallar um unglingspilt í ástar-
sorg sem fær sumarvinnu í skemmti-
garði. Drengurinn þarf að takast á við
sjálfan sig, þetta er þroskasaga full af
fortíðarþrá og tilfinningum sem allir
þekkja. En þetta er líka hrollvekja, sá
skuggi hvílir yfir skemmtigarðinum að
ung stúlka hafði verið drepin í drauga-
húsinu af raðmorðingja. Og auðvitað
er stóra spurningin hvort draugahúsið
sé í alvörunni reimt?
Stephen King er hér upp á sitt
besta. Joyland er falleg bók, full af til-
finningum, gleði og sorg. Sársauki og
ofurdramatík unglingsáranna breytist
ekkert með tímanum (ætli unglingar í
dag láti ekki enn Jim Morrisson syngja
sig í svefn). Og undir yfirborðinu reyn-
ist einföld glæpasaga – aðeins rétt-
lætið getur frelsað drauga fortíðar.
Joyland er bók sem þú leggur ekki
frá þér fyrr en að lestri loknum. Mín
helsta gagnrýni á bókina er sú sama og
á allar hinar Stephen King-bækurnar
sem hafa stytt mér stundir í gegnum
árin. Hún er hreinlega ekki nógu löng.
Joyland Nýjasta skáldsaga Stephen King
er þroskasaga ungs drengs.
Stephen King Meistari
hrollvekjunnar
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.