Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Side 27
Fólk 27Miðvikudagur 11. september 2013
Gerir upp baráttu við þunglyndi og kvíða
S
tarfið leggst mjög vel í mig og
ég hlakka til að takast á við
verkefnin fram undan með
nýrri stjórn og góðum hópi
fólks,“ segir Magnús Júlíus-
son, nýkjörinn formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
Magnús var kosinn formaður á
42. sambandsþingi SUS sem fram
fór í Borgarnesi um helgina og hlaut
hann afbragðs kosningu, eða 94%
greiddra atkvæða. Davíð Þorláksson,
fráfarandi formaður, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs, en Magnús segist
ekki gera ráð fyrir miklum áherslu-
breytingum hjá sambandinu.
„Starfið snýst að ákveðnu leyti um
að veita flokknum, þingmönnum og
ráðherrum aðhald og þar mun ekki
vera nein breyting á. Síðan er það
bara að halda úti öflugu málefna-
starfi og koma hugsjónum flokksins
á framfæri.“
Engin vandræðaleg matarboð
Ekki er ólíklegt að Magnús þurfi að
veita sjálfum tengdaföður sínum að-
hald í vetur því kærasta Magnúsar er
Margrét Bjarnadóttir, dóttir Bjarna
Benediktssonar, fjármálaráðherra
og formanns Sjálfstæðisflokksins.
Þrátt fyrir það segist Magnús ekki
búast við vandræðalegum matar-
boðum í komandi framtíð.
„Við erum báðir menn sem
getum tekið málefnalegri gagnrýni
þannig að ég á ekki von á því. Þrátt
fyrir að hann sé tengdur mér og ég
honum þá er hann er nú alveg mað-
ur í það að taka málefnalegri gagn-
rýni og ef svo væri ekki hefði ég nú
væntanlega ekki gefið kost á mér í
þetta.“
Vill forðast lófa
Framsóknarflokksins
Aðspurður segir Magnús að sér
lítist ágætlega á störf ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks það sem af er.
„Það er náttúrlega búið að
stíga ákveðin skref í því að lækka
skatta, sem er mjög jákvætt, og þó
það hafi kannski ekkert rosalega
mikið verið gert á síðasta þingi
þá held ég að haustþingið verði
spennandi. Ég vona bara að það
verði ekki farið of mikið inn í lófa
Framsóknarflokksins, því hann
er ekki alveg hliðhollur hugsun-
um Sjálfstæðisflokksins, en það
verður örugglega eitthvað um það
svo við þurfum að standa okkur
í stykkinu hérna í ungliðahreyf-
ingunni.“
Lýkur meistaranámi
Magnús hefur verið búsettur í Sví-
þjóð undanfarin ár þar sem hann
stundar meistaranám við Konung-
lega tækniháskólann í Stokkhólmi.
„Ég er að klára meistaranám í
vélaverkfræði, nánar tiltekið sjálf-
bærum orkuvísindum, þannig að
það er næst á dagskrá að klára nám-
ið og fara svo að gera eitthvað af viti.“
Magnús er ánægður með nám-
ið og segir Stokkhólm góða borg
fyrir námsmenn, þrátt fyrir að vera
í dýrara lagi. Hann hefur þó ver-
ið búsettur hérlendis frá áramótum
og unnið að mastersverkefni tengdu
sjávarútvegi.
Ætlar ekki í pólitík
í náinni framtíð
„Eins og staðan er núna, og það
kann kannski að koma á óvart, þá
er ég ekki á leiðinni í pólitík,“ segir
Magnús, spurður um hvað framtíðin
beri í skauti sér.
„Ég hallast að því að menn þurfi
að hafa einhverja reynslu af alvöru
málum áður en þeir snúa á þing, þó
það sé auðvitað ágætt að hafa sem
flesta hópa samfélagsins þarna inni
þá er það mín skoðun. Ef maður
hefur ekki af miklu að miðla þá veit
ég ekki alveg hvað ég ætti að vera að
gera þarna.“
En ef ekki pólitík, hvað þá?
„Ég ætla að byggja upp starfsferil
sem verkfræðingur svo það er það
sem er næst á dagskrá hjá mér.“ n
n Tengdasonur Bjarna Ben kjörinn formaður SUS n Taka málefnalegri gagnrýni
n Nýtt lag frá Mamiko Dís Ragnarsdóttur
L
agið er um það að gefast aldrei
upp á draumum sínum og trúa
því að maður geti flogið þrátt fyr-
ir alla erfiðleika,“ segir Mamiko
Dís Ragnarsdóttir um nýtt lag og
myndband sem hún sendi frá sér fyrir
nokkrum dögum.
Lagið heitir Itsiko og er fyrsta ís-
lenska j-pop lagið að sögn Mamiko, en
j-pop stendur fyrir japanska popptón-
list. Í laginu syngur Mamiko Dís á
japönsku, texta eftir séra Toshiko
Toma.
Mamiko Dís greindist með As-
berger-heilkenni fyrir rúmu ári og líf
hennar hefur tekið miklum breyting-
um eftir greininguna. Áður en hún
var greind var hún illa haldin af þung-
lyndi og kvíða. Á hana sóttu sjálfsvígs-
hugsanir og daglega þurfti hún að taka
geðlyf til þess að komast af. „Ég þarf
ekki lengur geðlyf því ástand mitt og
takmörk eru viðurkennd. Ég þarf ekki
að skammast mín og fela þau lengur,“
sagði hún í viðtali við DV.
Í nýútkomnu lagi gerir hún upp
baráttu sína. „Í mínu tilfelli baráttuna
við kvíða, þunglyndi og að læra að taka
sjálfa mig í sátt.“
Myndbandið er hið glæsilegasta en
Mamiko fékk styrk úr Tónskáldasjóði
Rásar 2 til að gefa út lag sitt og naut að-
stoðar kvikmyndaframleiðslufyrirtæk-
isins Fenrir Films. „Núna er ég á fullu
að vinna að 10 laga plötu byggðri á
ljóðum Kristjáns Hreinssonar, en lög-
in á þeirri plötu verða sungin bæði á
íslensku og japönsku. Toshiki Toma sá
um að þýða ljóðin yfir á japönsku.“ n
kristjana@dv.is
Matarboðin verða
ekki vandræðaleg
Dagur syngur
Sigta Salta
„Mikið sungið á mínu heimili,“
segir Dagur B. Eggertsson við
Steinda Jr. á Facebook-síðu sinni
um þær fregnir að út sé komin
ný útgáfa lagsins Sigta Salta með
honum og Ladda. Lagið fluttu
félagarnir Laddi og Steindi Jr. í
Hljómskálanum og vöktu heil-
mikla lukku í fjörugu mynd-
bandi.
Borðar ís með
rúgbrauðsmylsnu
„Hef ekki verið mikið á Fésinu að
undanförnu því við Jón Karl erum
enn í tökuferðum um landið fyrir
sælkeraþættina á Stöð 2 sem byrja
19. september. Stöð 2 rokkar!“
segir Valgerður Matthíasdóttir,
betur þekkt sem Vala Matt, sem
snýr aftur á sjónvarpskjáinn með
matreiðsluþætti innan fárra daga.
„Frekar fyndið fengum rúgbrauð
eldað í hverunum við Mývatn og
svo ótrúlega góðan heimagerðan
ís með rúgbrauðsmylsnu og
súkkulaði!“
Itsiko Lagið kallast Itsiko og er fyrsta íslenska j-pop lagið að sögn Mamiko.
Skipuleggur
tónleika
Ragnheiður Guðfinna Guðna-
dóttir situr ekki auðum höndum
þessa dagana. Hún vinnur við að
skipuleggja og undirbúa stórtón-
leika sem munu fara fram í Hörpu
sunnudaginn 15. september.
Forvarna- og fræðslusjóðurinn
Þú getur! var stofnaður 2008 og
hefur að markmiði að styrkja þá
sem átt hafa við andleg veikindi
að stríða til náms. Sjálboðaliðar
Þú getur! taka þátt í ýmsum að-
gerðum sem draga úr fordómum
í samfélaginu. Fjármögnun sjóðs-
ins er í höndum bestu tónlistar-
manna landsins sem koma fram í
sjálfboðavinnu á árlegum styrktar-
tónleikum.
Högni í Hjaltalín, Ný Dönsk,
Ari Eldjárn, Páll Óskar og Fjalla-
bræður eru meðal glæsilegra tón-
listarmanna sem munu koma
fram.
Verndari tónleikanna er Vigdís
Finnbogadóttir.
Bjarni Benediktsson
Mun fá aðhald frá
tengdasyninum.
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Magnús Júlíusson
Magnús segist ekki
stefna á pólitík á kom-
andi árum.