Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 2
www.grillbudin.is
LED ljós fyrir grillið
Opið alla daga til jóla
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
www.grillbudin.is
Nú er ekkert mál að grilla allt árið
Öflugt ljós með 10 LED ljósum
Festist á handfang grillsins
360 gráðu snúningur
FULLT VERÐ
4.990
3.990
Er frá Þýskalandi
Veður
Austankaldi og dálítil snjókoma eða él, en
slydda við suðurströndina. Frost víða 0 til 5
stig, en frostlaust syðst. Sjá Síðu 36
Beðið eftir rétta trénu
Samfélag „Þetta hefur verið alveg
hreint ömurlegt. Ég hef í gegnum
árin þurft að moka okkur hjónin
út en nú get ég það bara ekki
lengur enda orðinn 84 ára gamall
og slæmur í bakinu,“ segir Kristján
Jóhannesson sem býr við Móaflöt í
Garðabæ.
Á dögunum sendi Kristján erindi
til bæjarstjórans í Garðabæ og gerði
athugasemdir við að snjóruðningi af
götu hans væri ýtt fyrir innkeyrslur
með þeim afleiðingum að oft er erf
itt fyrir íbúa að komast frá húsum
sínum, sérstaklega eldri borgara.
„Við krefjumst þess að verklagi
verði breytt og að framvegis verði
hreinsað frá okkar innkeyrslu og
allra annarra við götuna. Sýnið
okkur það að þið hafið ekkert á móti
því að eldri borgarar búi eins lengi
heima hjá sér og hægt er. Ef ekki
verður á þessu breyting verðum
við að óska eftir heimilishjálp til að
moka burt ruðninginn ykkar,“ segir
í bréfi Kristjáns til bæjarstjórans.
Að sögn Kristjáns hefur hann búið
við þessar aðstæður í um þrjátíu ár.
„Það er alveg skammarlegt að
þegar bærinn mokar götuna þá
þurfi allir íbúar sem eru með inn
keyrslu sunnan megin í götunni að
moka sig út,“ segir Kristján og bætir
við að á dögunum hafi hann lent í
því að sitja fastur í skafli við heimili
sitt eftir snjóruðning.
„Sem betur fer fékk ég aðstoð
nágranna minna því annars hefði
ég bara ekkert komist út. Ég hringdi
líka um daginn á bæjarskrifstofuna
og bað þá að koma og aðstoða
okkur hjónin að moka til þess að
við kæmumst út en fékk þá nei
kvætt var. Mér var sagt að þau gætu
ekki lofað neinu og svo komu þau
aldrei,“ segir Kristján.
Málið var tekið fyrir á fundi
bæjarráðs Garðabæjar á dögunum
og kom þar fram að ráðið tæki undir
sjónarmið Kristjáns og fól ráðið
bæjarstjóra að svara bréfinu.
„Við hjónin höfum reyndar ekk
ert heyrt frá þeim en okkur þykja
það verulega góðar fréttir að þau
séu sammála okkur.“
nadine@frettabladid.is
Uppgefinn á áratuga
snjómokstri í Garðabæ
Kristján Jóhannesson, hálfníræður íbúi við Móaflöt í Garðabæ, sendi erindi til
bæjarstjórans vegna þess að snjóruðningi er ýtt fyrir innkeyrslu hans. Kristján
hefur mokað snjónum burt í tugi ára. Bæjarráðið tók undir athugasemdir hans.
Kristján Jóhannesson segist vera slæmur í bakinu og ekki ráða lengur við að moka
burt snjóruðningi sem lokar hús hans á Móaflöt af frá götunni. Fréttablaðið/SteFán
Mér var sagt að þau
gætu ekki lofað
neinu og svo komu þau
aldrei.
Kristján Jóhannesson, sem býr við
Móaflöt í Garðabæ
Stórt og fallegt jólatré er fyrir mörgum ómissandi þáttur jólanna. Þessi stúlka fær eflaust að njóta þess að opna jólapakkana á aðfangadag undan
einu trjánna sem voru á sölu hjá Flugbjörgunarsveitinni. Fréttablaðið/SteFán
Bandaríkin Donald Trump hefur
skorað á fjölmiðla í Bandaríkjunum
að færa sér sönnunargögn þess efnis
að Vladimír Pútín Rússlandsforseti
hafi einhvern tímann fyrirskipað
morð á blaðamönnum.
Hann lofaði í gær fjölmiðlafrelsið
sem ríkti í Rússlandi og hét því að
vinna náið með Pútín yrði hann
kjörinn forseti.
Aðspurður hvort hann ætti ekki
að fordæma morð á fjölmiðlamönn
um sagði hann: „Ríkið okkar drepur
helling af fólki líka.“
Fjölmiðlamenn hafa meðal ann
ars bent á morðið á rannsóknar
blaðamanninum Önnu Polit
kovskaya árið 2006 en margir telja
að rússnesk stjórnvöld hafi þar átt
í hlut. – srs
„Ríkið okkar
drepur helling
af fólki líka“
utanríkiSmál Á ráðherrafundi
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar,
sem lauk á laugardag í Kenía voru
samþykktar ívilnandi ákvarðanir
til hagsbóta fyrir þróunarríki á sviði
vöru og þjónustuviðskipta. Þetta
kemur fram á vef utanríkisráðu
neytisins.
Þá var samþykkt bann við útflutn
ingsbótum fyrir landbúnaðarvörur.
I ðnríkjum ber að afnema að mestu
útflutningsbætur á landbúnaðar
vörur strax en þróunarríki fá aðlög
unartíma til 2023. Ísland hefur
þegar afnumið slíkar bætur. – ngy
Þróunarmál í
brennidepli
Útflutningsbætur að fullu afnumdar
2023 fyrir þróunarríki.
Mynd/gunnar SalvarSSon
Slóvenía Yfirgnæfandi meirihluti
Slóvena hafnaði lögum sem hefðu
gert samkynja pörum kleift að gifta
sig í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag.
Útgönguspár gefa til kynna að 63
prósent kjósenda hafi hafnað lög
unum en 37 viljað samþykkja þau.
Talið er ólíklegt að tölurnar sveiflist
svo nokkru nemi eftir því sem fleiri
atkvæði verða talin.
Slóvenska þingið heimilaði sam
kynja hjónabönd í mars á þessu ári
en hópar íhaldsmanna, sem studdir
voru af kaþólsku kirkjunni, fóru
fram á að þjóðaratkvæðagreiðslu
um málið.
Þrátt fyrir að Slóvenía sé almennt
talið eitt frjálslyndasta ríki fyrrum
Sovétríkjanna eru réttindi hinsegin
fólks enn töluvert bitbein þar ef
marka má frétt Time um málið. - sój
Hafna samkynja
hjónaböndum
2 1 . d e S e m B e r 2 0 1 5 m á n u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
0
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:2
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
C
0
-9
9
4
8
1
7
C
0
-9
8
0
C
1
7
C
0
-9
6
D
0
1
7
C
0
-9
5
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K