Fréttablaðið - 21.12.2015, Síða 29

Fréttablaðið - 21.12.2015, Síða 29
Netverslun 21. desember 2015 Kynningarblað Heimkaup | Jólagjafahugmyndir | Öryggi | Ghostlamp | Kauptu jólagjafirnar heima Á Heimkaup.is er hægt að kaupa nánast allt sem hugurinn girnist. Vörur eru afgreiddar strax og er heimsending frí ef pantað er fyrir meira en fjögur þúsund krónur. Ekkert mál er að skila eða skipta vörum ef á þarf að halda. „Heimkaup.is er ekki sérverslun, heldur vefverslun með mörgum deildum. Við erum með raftækja- deild, leikfangadeild, snyrtivöru- deild, íþróttadeild, tómstundadeild og bókadeild svo eitthvað sé nefnt,“ segir Friðrik Kristjánsson, markaðs- stjóri Heimkaup.is. Mynd/VilHelM Heimkaup.is er langstærsta íslenska vefverslunin og í raun það stór að hér á Íslandi tekur hún nú marktæka mark­ aðshlutdeild frá erlendum vefverslun­ um líkt og Amazon.com og Ali Express samkvæmt upplýsingum frá Meniga. Guðmund Magnason framkvæmdastjóri segir að þetta sé fyrst og fremst vegna þess að Heimkaup.is hefur það fram yfir erlendar vefverslanir að viðskiptavin­ ir fá vörurnar sínar samdægurs á höf­ uðborgarsvæðinu, hvort sem er í vinn­ una eða heim. Í flestum tilfellum berast sendingar daginn eftir út á landsbyggð­ ina. Svo er að sjálfsögðu ekkert mál að skila eða skipta vörum. Umfangið hefur tvöfaldast milli ára en fjöldi pant­ ana hefur aldrei verið jafnmikill og nú í ár. Til að mynda bárust tæplega 5.000 pantanir á vefmánudeginum (e. Cyber Monday) nýlega. Afgreiðsla strax, frí heimsending • Sérstaða verslunarinnar er mikil saman borið við aðrar vefverslanir. • Hún býður upp á gríðarlegt vöruúrval allan ársins hring. • Allar vörur sem eru til sölu, eða um 22.000 vörunúmer, eru til í vöruhúsinu í Kópavogi og reiðubúnar til afhendingar um leið og þær eru pantaðar. • Vörur eru afgreiddar strax og keyrðar út sama dag og þær berast. • Heimsending er frí ef pantað er fyrir 4.000 kr. eða meira, þetta gildir að sjálf­ sögðu um allt land. Hvað selur Heimkaup.is? „Heimkaup.is er ekki sérverslun, heldur vefverslun með mörgum deildum,“ segir Friðrik Kristjánsson markaðsstjóri. „Við erum með raftækjadeild, leikfangadeild, snyrtivörudeild, íþróttadeild, tómstunda­ deild og bókadeild svo eitthvað sé nefnt. Það kemur mörgum á óvart sem skoða síð­ una okkar hvað úrvalið er mikið en allt þetta ár hafa að meðaltali bæst við úrvalið um 44 nýjar vörur á dag. Við eigum marga fastakúnna sem kaupa hjá okkur allar snyrtivörur og hreinlætisvörur, vítamín og þess háttar sem fólk kaupir reglulega.“ Ekkert mál að skila og skipta En vill fólk ekki sjá vöruna og jafn­ vel handfjatla hana áður en það slær til? „Okkar viðskiptavinir eru fljótir að komast að því að það er ekkert mál að skila eða skipta vörum ef til dæmis föt eða skór passa ekki. Við leggjum gríðar­ lega mikið upp úr góðri þjónustu og það er ekkert mál að fá endurgreitt eða nýja vöru. Við erum líka með tveggja ára ábyrgð á öllum okkar raftækjum og fleiri vörum. Ánægja viðskiptavinanna skiptir öllu máli,“ segir Friðrik. Hann bætir við að íbúar landsbyggðarinnar nýti sér þjónustuna í miklum mæli, sér í lagi þar sem þeir fái fría heimsendingu á þeim vörum sem ef til vill fást ekki í þeirra byggðarlagi. Jólainnkaupin kláruð á klukkutíma Jólaverslunin eru í fullum gangi á Heimkaup.is „Við eru einfaldlega með vörur sem höfða til fólks og góð til­ boð á hverjum degi svo fólk getur feng­ ið vinsælar jólagjafir á allt að helmings­ afslætti suma daga. Þetta kann fólk að meta og margir gera sér lítið fyrir og klára jólagjafainnkaupin á innan við klukkutíma og nota frítímann í eitthvað annað,“ segir Friðrik. Þú færð pottþétt bílastæði heima Desember er uppáhaldsmánuður margra. Þegar nær dregur jólum verður dagskráin oft ansi þétt, umferðin þyng­ ist og oft fer dýrmætur tími til einskis úti í umferðinni – og oft í misjöfnu veðri. Þá er kærkomið að geta klárað jóla­ gjafakaupin á innan við klukkutíma og fá pakkana heim. Vöruúrvalið er mikið, en um 22 þúsund vörunúmer eru í vöruhúsi Heimkaup í Kópavogi. 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 C 0 -F 2 2 8 1 7 C 0 -F 0 E C 1 7 C 0 -E F B 0 1 7 C 0 -E E 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.