Fréttablaðið - 21.12.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.12.2015, Blaðsíða 12
Spánn Ríkisstjórn Spánar er fallin eftir að Spánverjar gengu að kjör­ borðinu í gær.  Þjóðarflokkurinn, flokkur Marianos Rajoy forsætis­ ráðherra, náði hreinum meirihluta í neðri deild spænska þingsins árið 2011 en hefur nú misst meiri­ hlutann. Þjóðarflokkurinn er þó stærstur allra flokka með 26,8 pró­ sent atkvæða og gæti freistað þess að mynda minnihlutastjórn. Þetta kom fram í útgönguspám en gert er ráð fyrir að endanleg úrslit liggi fyrir á næstu dögum. Enginn einn flokkur náði hrein­ um meirihluta og því er ljóst að flokkarnir þurfa að ná saman um samsteypustjórn. Það verður í fyrsta sinn sem samsteypustjórn er mynduð á Spáni frá því að lýðræði var komið á fót árið 1978. Tveir flokkar fögnuðu miklum árangri í kosningunum. Vinstri flokkurinn Podemos fékk  21,7 prósent atkvæða og  flokkurinn Ciudadanos fékk  15,2 prósent atkvæða. Podemos er róttækur vinstriflokkur sem hefur gagn­ rýnt spillingu á Spáni og óréttlæti aðhaldsa ðgerða stjórnvalda og Evr­ ópusambandsins. Podemos svipar mikið til SYRIZA í Grikklandi enda eru Pablo Iglesias, leiðtogi Pode­ mos,  og Alexis Tsipras, forsætis­ ráðherra Grikklands, mestu mátar. Ciudadanos er frjálslyndur vinstriflokkur sem  var stofnaður til að berjast gegn þjóðernishyggju í Katalóníu og berst fyrir aukinni evrópskri samvinnu. Þá fékk Sósíalistaflokkurinn verstu útreið í sögu sinni með 20,5 prósentum atkvæða. Efnahagsmál Spánar voru í brennidepli en ríkisstjórn Rajoys hefur staðið í erfiðum niðurskurði og skattahækkunum undanfarin ár til að tryggja afkomu Spánar eftir efnahagshrunið. Rajoy hefur sagt að ríkisstjórn hans hafi skilað góðu búi en til að mynda er 3,3 prósenta hagvexti spáð á Spáni á næsta ári. Þrátt fyrir að hafa komið í veg fyrir þjóðargjaldþrot er atvinnu­ leysi 21 prósent ásamt því að ólga vegna sjálfstæðistilburða Kata­ lóníu er mikil. Þetta hefur vakið upp mikla óánægju innan Spánar og virðast kjósendur afhuga hinum hefðbundnu flokkum, Þjóðar­ flokknum og Sósíalistaflokknum. Óvíst er hvert leiðtogarnir muni leita til að freista þess að mynda ríkisstjórn en margir telja Podemos vera eitt allsherjar spurningarmerki og til að mynda birti dagblaðið El Mundo fyrirsögnina „Hættan á óstjórn er raunveruleg“ á forsíðu sinni í gær. stefanrafn@frettabladid.is Hraunbær 123 | s. 550 9800 | skatar.is Gæðajólatré - sem endist ár eftir ár! Þessi jólatré eru í hæsta gæðaflokki auk þess að vera mjög falleg og líkjast þannig raunverulegum trjám. Einföld samsetning. • Ekkert barr að ryksuga • Ekki ofnæmisvaldandi • 12 stærðir (60-500 cm) • Íslenskar leiðbeiningar • Eldtraust • Engin vökvun • 10 ára ábyrgð • Stálfótur fylgir Opnunartímar: Virkir dagar kl. 09-18 Laugardagar kl. 11-18 Sunnudagar kl. 12-18 Falleg jólatré Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Finndu okkur á facebook Gæði og g læsileiki e ndalaust ú rval af há gæða flísu m 25% afsláttur af öllum erlendum bókum AÐEINS Í DAG! Afslátturinn gildir 21. desember. 5% Vildarafsláttur bætist við þennan afslátt fyrir Vildarvini. Landakort úr efni | Pin The World Stórt Vildarverð: 6.749 | Verð: 8.999.- Lítið Vildarverð: 4.649 | Verð: 6.199.- Indland Einn gerenda í hópnauðgun sem átti sér stað árið 2012 í Nýju Delí var látinn laus úr fangelsi í gær. Maðurinn var undir lögaldri þegar hann tók ásamt nokkrum öðrum karl­ mönnum þátt í hópnauðgun á 23 ára konu í strætisvagni í borginni í des­ ember árið 2012. Konan lést nokkrum dögum síðar á sjúkrahúsi í Singapúr. Hann var dæmdur sem barn árið 2013 og hefur afplánað vist sína og er í dag yfir lögaldri. Reynt var að hnekkja lausn hans fyrir dómstólum en sú tilraun tókst ekki. Fjöldi fólks hefur reiðst yfir lausn mannsins og fjöldi mótmælti í Nýju Delí í gær. Maðurinn er undir eftir­ liti þar sem talið er að öryggi hans sé ógnað. Fimm aðrir voru dæmdir til dauða vegna glæpsins. Einn þeirra lést í fangelsi og fjórir hafa áfrýjað dauða­ refsingunni. – srs Nauðgari látinn laus Fjöldi fólks mótmælti því að maðurinn var látinn laus. Nordicphotos/AFp Frakkland Boeing 777 flugvél Air France þurfti að nauðlenda í Keníu á leið sinni frá Máritaníu til Frakk­ lands í gær. Ástæða nauðlendingarinnar var að dularfullur pakki fannst á salerni flugvélarinnar. Grunur lék á að þar væri sprengja á ferð. Við nánari athugun komust sprengjuleitarsveitir að því að sprengjan væri ekki ekta heldur var hún búin til úr pappa og skeið­ klukku. Farþegi uppgötvaði pakkann og tilkynnti áhöfn flugvélarinnar um hann. Sex farþegar voru færðir til yfir­ heyrslu vegna málsins. Ekki er vitað hver ber ábyrgð á pakkanum en málið verður kært til lögreglu. 459 farþegar voru um borð og 14 áhafnarmeðlimir og engan sakaði þegar fólkið fór frá borði. Forstjóri Air France segir enga vankanta hafa verið á öryggis­ málum í Máritaníu enda engin raunveruleg sprengiefni að finna. Ljóst er að pakkanum var komið fyrir á salerni vélarinnar á meðan hún var á flugi. – srs Gervisprengja um borð í Boeing 777 sex farþegar voru teknir til yfirheyrslu. Nordicphotos/AFp Pólitísk kollsteypa eftir þingkosningar á Spáni Kjósendur á Spáni hafna gömlu valdaflokkunum sem fengu innan við helming atkvæða. Ríkisstjórnin er fallin samkvæmt útgönguspám. Enginn flokkur náði hreinum meirihluta og ljóst er að stjórnarmyndunarviðræður verða erfiðar. Mariano rajoy Þjóðfylkingin Kosningar 2011: 44,6% Mikill samhljómur er með Podemos og SYRIZA á Grikklandi. Báðir flokk­ arnir hafa andmælt aðhalds­ aðgerðum stjórnvalda og Evrópusambandsins. » Niðurstöður samkvæmt útgönguspám pablo iglesias Podemos Kosningar 2011: Tóku ekki þátt pedro sanchez Sósíalistaflokkurinn Kosningar 2011: 28,8% Albert rivera Ciudadanos Kosningar 2011: Tóku ekki þátt  Útgönguspá 2015: 20,5% Útgönguspá 2015: 26,5% Útgönguspá 2015: 21,7% Útgönguspá 2015: 15,2% 2 1 . d e S e m b e r 2 0 1 5 m á n U d a G U r12 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 C 0 -E 3 5 8 1 7 C 0 -E 2 1 C 1 7 C 0 -E 0 E 0 1 7 C 0 -D F A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.