Fréttablaðið - 21.12.2015, Page 48

Fréttablaðið - 21.12.2015, Page 48
nielsen í landsliðið? stephen nielsen, markvörður íBV í Olís-deild karla, er kominn með íslenskan ríkisborgararétt. nielsen kom til landsins fyrir nokkrum árum og sló í gegn hjá liði Vals. Hann á íslenska eigin- konu og er í dag orðinn íslend- ingur. nielsen hefur leikið vel með íBV í Olís-deildinni í vetur og gæti jafn- vel átt framíðina fyrir sér í íslenska landsliðinu. Hann er fæddur árið 1985 í danmörku. Hann kemur aftur á móti ekki til greina í landsliðshópinn fyrir eM í Póllandi í janúar en aron Kristjánsson er nú þegar búinn að tilkynna inn 28 manna hóp. steph- en er ekki í þeim hópi en aðeins leikmenn úr þeim hópi mega taka þátt á mótinu. Hvað gerði Gylfi? Gylfi Þór sigurðsson var í byrjunar liði swansea gegn West Ham í gær og lék allan leikinn. Gylfi átti einn af sínum bestu leikjum í vetur. spilaði virkilega vel og var mjög ógnandi. ekki vantaði mikið upp á að hann skoraði í leiknum en engum leikmanni tókst að skora. Stærstu úrslitin norwich kom sér upp úr fallsæti með því að vinna Man. Utd á Old Trafford. sjötti leikur Man. Utd í röð án sigurs og spurning hvort louis van Gaal haldi starfi sínu sem stjóri Man. Utd fram að áramótum. Hetjan Charlie daniels tryggði Bournemouth þriðja sigurinn í röð með marki úr vítaspyrnu rétt fyrir leikslok gegn WBa. Ótrúlegur jóla- sprettur hjá nýliðunum. Kom á óvart Chelsea spilaði sinn fyrsta leik án Jose Mourinho og það var allt annað að sjá liðið sem vann sannfærandi sigur á sunder- land. leikmenn virkuðu fegnir að vera lausir við Portúgalann. Í dag 19.50 Arsenal - Man. City Sport 2 22.00 Messan Sport 2 sPenna HJá sTelPUnUM Valdís Þóra Jónsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafa lokið þriðja hring í lokaúrtökumótinu fyrir keppnisrétt á sjálfri leT evr- ópumótaröðinni. stelpurnar eru báðar á parinu eftir þrjá hringi og sitja jafnar í 41. sæti. Þær þurfa því að gera betur í dag og koma sér nær 30. sætinu sem gefur þáttökurétt á evrópumótaröðinni. sem stendur eru þær tveimur höggum frá því. leikið er á tveimur keppnisvöllum í Marokkó á lokaúrtökumótinu. alls eru leiknir fimm 18 holu hringir en aðeins 60 efstu af alls um 120 keppendum á lokaúr- tökumótinu leika fimmta hringinn sem jafnframt er lokahringur keppninnar. Nýjast Swansea 0 –0 West Ham Watford 3 – 0 Liverpool Stoke 1 – 2 C. Palace Southampton 0 – 2 Tottenham WBA 1 – 2 Bournemouth Chelsea 3 – 1 Sunderland Everton 2 – 3 Leicester Man. Utd 1 – 2 Norwich Newcastle 1 – 1 Aston Villa Efst Leicester 38 Arsenal 33 Man. City 32 Tottenham 29 Man. Utd 29 Neðst Norwich 17 Newcastle 17 Swansea 15 Sunderland 12 Aston Villa 7 Enska úrvalsdeildinÞórir og norsku stelpurnar heimsmeistarar Fögnuður Norðmenn urðu heimsmeistarar kvenna í handknattleik í gær með 31-23 sigri á Hollandi í úrslitaleik. Þjálfari liðsins er Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson en þetta er fimmta stórmótagullið sem norska liðið vinnur til undir hans stjórn. FréttAblAðið/EpA Körfubolti „Við erum aðeins að klóra okkur í hausnum. Það eru bara endalausir sigurleikir hjá okkur,“ segir íþróttamaður ársins, Jón arnór stefánsson, og hlær en hann var þá á heimleið eftir enn einn sigurleik Valencia í spænska körfuboltanum. liðið situr í efsta sæti spænsku deildarinnar en það hefur unnið alla ellefu leiki sína í deildinni og er því fyrir ofan Real Madrid og Barcelona í deildinni. Þess utan er liðið búið að vinna alla tíu evrópuleiki sína í vetur og setti félagsmet með 21 sigri í röð. árið 1999 náði Valencia að vinna 20 leiki í röð. Jón og félagar eru því búnir að skrá sig í sögubækur félagsins. Þetta tekur enginn af okkur „Við erum að spila svakalega vel og pressan eykst með hverjum sigr- inum. Við verðum að vera sterkir andlega til að halda þessu áfram. Við náðum þessum áfanga og það tekur enginn af okkur,“ segir Jón arnór en er þetta lið eins gott og úrslitin í vetur sýna? „Við erum mjög góðir en þetta er þéttur hópur og gott jafnvægi í liðinu. Það eru allir að leggja sín lóð á vogarskálarnar. Það skiptir mestu máli. Hópurinn nær líka vel saman. Kerfið hentar okkar leikmönnum síðan mjög vel. Flestir ná að blómstra í þessu kerfi og við spilum góðan bolta. Þetta er gott lið og varnar- leikurinn afar öflugur hjá okkur. Við æfum líka vel og tökum hraustlega á því. Æfum mikið og ekkert væl.“ Það er meira en að segja það að glíma við risana Real Madrid og Barcelona en hvað telur Jón arnór að þetta lið geti gert í vetur? „Það er erfitt að segja. Barca og Real eru Golíat sem er erfitt að eiga við. Það er erfitt að eiga við þau í úrslitakeppniseinvígi. Það er enn langt í land á þessu tímabili og gott að vera komnir áfram í evr- ópukeppninni. Real og Barca anda ofan í háls- málið á okkur og það verður ekkert unnið í þessum mánuði. liðið er með báða fætur á jörðinni og mikið hamrað á því. Við erum ekk- ert að missa okkur í gleðinni,“ segir Jón arnór en hann hefur spilað með mörgum góðum liðum á ferlinum. er þetta besta liðið sem hann hefur spilað með? „Það er líklega besta jafnvægið í þessu liði af þeim liðum sem ég hef spilað með. Þetta er eitt af þremur bestu sem ég hef spilað með.“ Það var leiði í mér Jón gekk í raðir félagsins eftir eM og fékk til að byrja með aðeins þriggja mánaða samning. Hann stóð sig strax vel og fékk því framlengingu á samningnum út þessa leiktíð. „Mér hefur gengið rosalega vel og hef í raun komið sjálfum mér á óvart. Það var leiði í mér er ég kom út fyrst eftir eM. Ég var illa upplagð- ur og meiddur. Það hefur því komið mér á óvart hve vel mér hefur gengið og ég hef náð að klóra mig svolítið í gegnum þetta. Ég var mjög slæmur í skrokknum en hef unnið mig út úr því hægt og rólega. Það hjálpar líka til að vinna og ég er brattur í dag,“ segir Jón arnór og gleðin skín í gegnum orð hans. Það eru góðir tímar og hann nýtur þeirra. „Ég er mjög ánægður að hafa feng- ið samning út tímabilið og tekið þátt í þessu ævintýri áfram. Framhaldið er síðan alveg óljóst og verður ekkert rætt á næstunni. Ég er farinn að eld- ast og skrokkurinn hangir stundum á bláþræði. Ég er því bara sáttur við að fá að klára tímabilið og svo sjáum við til hvað gerist.“ Fær að halda íslensk jól Þessi magnaði íþróttamaður segir að lífið leiki við sig og fjölskylduna í Valencia. Þar sé gott að vera. „Það er vel haldið utan um allt hjá þessu félagi og góður stuðningur frá fólkinu í borginni. svo er alltaf gott veður hérna og hægt að sitja úti með kaffibolla og horfa á krakkana leika sér. Það eru lífsgæði,“ segir Jón hamingju- samur en hann fær ekkert jólafrí en mun þó reyna að halda íslensk jól. „Tengdó eru komin út til okkar með fullt af íslenskum mat sem og með malt og appelsín. Við munum hafa það huggulegt og borða eitthvað gott. Ég veit ekki hvað en ég er spenntur að sjá.“ henry@frettabladid.is Hef komið sjálfum mér á óvart Jón Arnór Stefánsson heldur áfram að gera það gott í spænska körfuboltanum með Valencia sem hefur ekki tapað leik og setti glæsilegt félagsmet um helgina. Jón er afar ánægður með eigin frammistöðu í vetur. 21 Valencia er búið að vinna alla leiki sína í vetur. Ellefu sigrar eru komnir í deildinni og tíu í Evrópukeppninni. 2 1 . d e S e m b e r 2 0 1 5 m Á N u d A G u r28 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð sport 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 C 0 -D 9 7 8 1 7 C 0 -D 8 3 C 1 7 C 0 -D 7 0 0 1 7 C 0 -D 5 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.