Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 50

Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 50
❄ ❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄❄ ❄ Þjón usta á Þor láks messu og að fanga dag Á Þor láks messu og að fanga dag, milli kl. 9:00 og 15:00 munu starfs menn í Foss vog skirkju garði, Gufun eskirkju garði, Kópa vogskirkju garði og Hóla­ val la garði leið beina eft ir bestu getu. Hægt er að nálg ast upp lýs ing ar um stað setn ingu leiða á vefn um www.gard ur.is Þjón ustusíma r: Skrif stof an í Foss vogi, sími 585 2700 og skrif stof an í Gufun esi, sími 585 2770, eru opn ar á Þor láks messu og að fanga dag frá kl. 9:00 til 15:00 Rat kort er hægt að fá af hent á skrif stof un um eða prenta út á www. kirkju gar dar.is Upp lýs ing ar eru veitt ar í síma all an des em ber mán uð á skrif stofu tíma. Foss vog skirkja verð ur op in á að fanga dag frá kl. 9:00 til 12:00 Á að fanga dag frá kl. 9:00 til 15:00 er all ur akst ur um kirkju garð inn í Foss vogi óheim ill, nema fyr ir hreyfi haml aða. Til kynn ing frá Kirkju görð um Reykja vík ur próf asts dæma Gleði lega jóla há tíð ❄❄❄❄❄❄❄ ❄ ❄❄❄❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄❄ ❄❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄❄ ❄ Kirkju garð ar Reykja vík ur próf asts dæma www.kirkju gar dar.is Vikan 28.10–3.11. 01.11.-22.11.2015 Ævisögur2 Mikael með magnaða bók Fréttablaðið Stundin box „Þetta var mjög öruggt,“ segir boxarinn Gunnar Kolbeinn Krist­ insson, kallaður Kolli, en hann barðist í Helsinki um helgina. Það var hans fjórði bardagi sem atvinnu­ maður og hann er búinn að vinna alla sína bardaga. Andstæðingur Kolla að þessu sinni var Litháinn Dimitrij Kalin­ ovskij og rimma þeirra var ójöfn þó svo að Kolla hafi ekki tekist að rota hann eins og stefnt var að. „Ég hef aldrei slegið neinn jafn oft í hausinn með hægri hendinni og þennan strák. Þetta var alveg ótrú­ legt og það skildi enginn hvernig hann fór að því að standa þetta allt af sér. Hann fór aldrei í strigann. Ég vorkenni honum í dag,“ segir Kolli en hann lagði allt í þennan bardaga. Marinn á hnúunum „Ég er alltaf að bæta mig og þetta var líklega minn besti bardagi. Það sér varla á mér eftir bardagann. Nema á hnúunum eftir að hafa lent svona mörgum höggum á hann. Svo er ég líka bólginn í olnbogunum og spurning hvort ég hafi rifið eitthvað. Þetta er frábær byrjun á ferlinum. Þetta var fjögurra lotu bardagi en næst fer ég í sex lotu bardaga gegn erfiðari andstæðingi.“ Því miður bara Rocky I Þessi bardagi kom upp með aðeins tveggja vikna fyrirvara. Bardagi Gunnars var sá fyrsti á stærsta bar­ dagakvöldi í sögu Finnlands en tólf þúsund manns fylltu höllina til þess að fylgja sínum manni, Robert Hel­ enius, sem var að keppa um Evrópu­ meistaratitilinn gegn Þjóðverjanum Frankie Franz Rill. Helenius vann þann bardaga og er því ósigraður Evrópumeistari. Það er gott samband á milli Kolla og Helenius og þeir æfðu saman síðustu vikuna fyrir bardagann. „Þetta var risakvöld og sýnt í sjónvarpi víða um Evrópu. Það var heiður að fá að byrja þetta flotta kvöld. Það var frábært að Helenius skyldi vinna en ég þekki hinn strákinn líka mjög vel. Hann sagði að þetta væri hans Rocky­stund en því miður var þetta bara Rocky I fyrir hann,“ sagði Kolli léttur en þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann æfir með Evrópumeistaranum. „Helenius var ánægður að fá mig í æfingabúðirnar og við græddum mikið á því báðir. Ég þarf að fá að æfa með honum reglulega og það kemur til greina að ég fái að taka heilar æfingabúðir með honum. Það eru tveir mánuðir. Það yrði geggjað.“ Stefnir á sex bardaga Kolli er að ljúka sínu fyrsta ári sem atvinnumaður og lauk því með stæl. Hann stefndi á að berjast fimm sinnum en náði fjórum bardögum. Hann ætlar sér enn meira á næsta ári. „Þá er stefnan að ná sex bar­ dögum og tvisvar með Helenius. Stefnan er að vera 10­0 eftir næsta ár og með sex rothögg. Þetta kvöld gaf mér mjög mikið fyrir framhaldið og sýnir mér að ég er á hárréttri leið. Ég fékk mikið hrós og þessi bardagi mun opna fleiri dyr fyrir mig. Svo fæ ég svolitla aukaathygli út á að vera Íslendingur. Sá eini í boxinu. Útlendingunum finnst þetta sér­ stakt,“ segir Kolli sem ætlar að hafa það gott um jólin. „Ég mun borða hamborgarhrygg um jólin. Ég borða venjulega hátt í heilan hrygg sjálfur þannig að það er venjulega alltaf keyptur einn aukalega. Ég verð örugglega orðinn spikfeitur er ég byrja að æfa aftur eftir áramót,“ segir okkar maður léttur.  henry@frettabladid.is Þetta var minn besti bardagi Eini íslenski atvinnuhnefaleikamaðurinn, Gunnar Kolbeinn Kristinsson, er enn ósigraður eftir yfirburðasigur á Litháa um helgina. Okkar maður keppti fyrir framan 12 þúsund manns í Helsinki á stærsta boxkvöldi í sögu Finnlands. Félagarnir Kolli og Robert Helenius eftir góða æfingu. Atvinnumannaferillinn gæti ekki farið betur af stað hjá Gunnari Kolbeini sem vann alla fjóra bardaga sína á árinu. FRéttAblAðIð/vAllI 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r30 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 C 0 -C 5 B 8 1 7 C 0 -C 4 7 C 1 7 C 0 -C 3 4 0 1 7 C 0 -C 2 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.