Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 52

Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 52
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, Þorsteins Ingólfssonar bifreiðastjóra. Jafnframt sendum við fjölskyldu og vinum hugheilar jóla- og nýárskveðjur. Fyrir hönd aðstandenda, Halla Dröfn, Ásta Ingibjörg og Sigurður Óli Þorsteinsbörn. Ástkær eiginkonan mín, móðir og amma, Sigrún Þórarinsdóttir (Sirra í Markaðinum) Sæviðarsundi 50, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 12. desember. Útför hennar verður gerð frá Áskirkju mánudaginn 4. janúar kl. 13.00. Geir Þórðarson Þórarinn Örn Geirsson Geir Ingi Geirsson Guðmundur Geir Þórarinsson Merkisatburðir „Ég hef svo mikla tröllatrú á því að fólk sé gott,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir listakona en hún hefur, í félagi við Önnu Svövu Knútsdóttur leikkonu og Þórunni Antoníu Magnúsdóttur söng- konu, stofnað söfnunarreikning fyrir ýmsum góðgerðarmálum. Hugmyndin spratt upp úr Facebook-hópnum Góða systir <3. Í hópnum eru ríflega 51 þúsund konur, eða þriðjungur íslenskra kvenna. Hann var stofnaður með það að mark- miði að stuðla að jákvæðri umræðu kvenna um konur og hvetja til kvenna- samstöðu. Fljótlega varð hópurinn fjöl- mennasti Facebook-hópur landsins og tók fram úr hópnum Beauty tips á allra fyrstu dögum hans. „Við vorum alveg nokkrar sem þekkt- umst ekki neitt sem fengum þessa hug- mynd. Þetta var bara eins og samvitund. Sama hugmyndin á sama tíma,“ segir Lóa. Lóa reiknaði út að ef 50 þúsund konur gæfu hundrað krónur á mánuði til góð- gerðarmála þá myndu safnast fimm milljónir á hverjum mánuði. Hug- myndin er að á vettvangi Facebook- hópsins verði kosið um góðgerðarmál mánaðarlega. „Á tæpum tveimur sólarhringum er búið að safna meira en hálfri milljón króna,“ segir Lóa. „Þetta er eiginlega bara yfirfærð mynd af kvenfélagi, því þetta er nákvæmlega það sem kvenfélög eru búin að gera í tvö hundruð ár. Nema þetta er bara gígan- tískt. Svona móðurskip kvenfélaga.“ Í þessum mánuði rennur fjárhæðin til styrktar fjölskyldu Önju Mistar Einars- dóttur, lítillar stúlku sem berst fyrir lífi sínu á Landspítalanum. Hugmyndin er að fyrst um sinn verði áhersla lögð á að styrkja konur og konur með börn. „Ég veit ekki hvert þetta fer en þetta er að minnsta kosti góð tilraun. Ég þarf á því að halda að líða eins og ég búi í góðu samfélagi og góðum heimi.“ Hún segist hafa tröllatrú á verkefninu. „Það er alltaf sagt að maður sé barna- legur ef maður segir eitthvað svona. En mér finnst það að vera barnalegur ekki skammaryrði,“ segir Lóa. snaeros@frettabladid.is Safna fé á Facebook í krafti fimmtíu þúsund kvenna Hugmyndin að stofnun söfnunarreiknings fyrir ýmsum góðgerðarmálum spratt upp úr Facebook-hópnum Góða systir <3. Stefnt er að því að kjósa um góðgerðarmál mánaðarlega. Lóa Hjálmtýsdóttir, myndlistarkona og söngkona, reiknaði út að ef 100 krónur eru gefnar mánaðarlega er hver og ein kona að gefa 12 þúsund krónur á tíu árum. FréttabLaðið/andri Marinó 69 Vespasíanus verður keisari Rómar. 860 Aðalbert verður Englandskonungur. 1124 Lamberto verður Honóríus 2. páfi. 1844 Jónas Hallgrímsson yrkir stökur, sem hefjast á: „Enginn grætur Íslend- ing...“ 1929 Varðskipið Þór strandar við Húna- flóa, mannbjörg verður. Þór er fyrsta íslenska varðskipið sem ber fallbyssu. 1930 Ríkisútvarpið hefur út- sendingar. 1937 Bandaríska leikkonan Jane Fonda er fædd á þessum degi. 1945 Ölfusárbrú er formlega opnuð fyrir umferð. Hún er hengibrú með 84 metra á milli stöpla og leysti af hólmi brú frá 1891. 1952 Kveikt er á stóru jólatré á Austurvelli, sem er gjöf frá Óslóarbúum til Reykvíkinga og hefur það verið fastur siður árlega síðan. 1981 Belís fær sjálfstæði frá Bretlandi. 1988 Flugslys verður við Locker- bie í Bretlandi. Alls dóu 270 manns, þar af 243 farþegar, 16 í áhöfn og 11 á jörðu niðri. 2007 Schengen-svæðið stækkar. Aðildarlönd sem bættast við eru Eist- land, Lettland, Litháen, Malta, Pól- land, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Þetta er nákvæmlega það sem kvenfélög eru búin að gera í tvö hundruð ár. Nema þetta er bara gígantískt. Svona móðurskip kvenfélaga. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Á þessum degi árið 1969 var Árnagarður formlega vígður en Handritastofnun Íslands var þar til húsa ásamt kennslu- og skrifstofuhúsnæði fyrir Háskóla Íslands. Árið 1972 var lögum um Handrita- stofnun Íslands breytt og fékk hún þá heitið Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Kennsla hófst í húsinu haustið 1969. Árnagarður var í smíðum í tvö ár en húsið er hönnun arkitektanna Kjartans Sigurðssonar og Garðars Halldórssonar sem unnu að húsinu í samvinnu við starfsmenn húsameistara ríkisins. Húsið var reist í snarhasti til að hægt væri að hýsa forn handrit sem komu til landsins tveimur árum síðar, í apríl 1971. Byggingin er á fjórum hæðum, samtals 829 fermetrar. Við vígslu hússins afhenti formaður bygginganefndarinnar, dr. Jóhannes Nordal, þáverandi seðlabankastjóri, menntamálaráðherra húsið fyrir hönd ríkisins. Ráðherrann Gylfi Þ. Gíslason afhenti svo eigendum húsið og voru það Einar Ólafur Sveinsson, prófessor í íslenskum fræðum og forstöðumaður Handritastofnunar, og Magnús Már Lárusson, prófessor og rektor Háskóla Íslands, sem tóku við húsinu fyrir hönd stofnana sinna. Þ EttA G E R ð i St : 2 1 . d E S E M B E R 1 9 6 9 Húsið Árnagarður vígt Árnagarður var í smíðum í tvö ár en húsið er teiknað af arkitektunum Kjartani Sigurðs- syni og Garðari Halldórssyni. FréttabLaðið/SteFÁn 2 1 . d e s e m B e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r32 t í m A m ó t ∙ F r É t t A B L A ð i ð tímamót 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 C 0 -B 1 F 8 1 7 C 0 -B 0 B C 1 7 C 0 -A F 8 0 1 7 C 0 -A E 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.