Fréttablaðið - 21.12.2015, Qupperneq 66
ÞÓR HF
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
HITABLÁSARAR
Þessir einu sönnu gæða hitablásarar.
Bjóðum úrval alvöru hitablásara bæði fyrir
gas og diesel/steinolíu.
Eigum líka hitastilla fyrir MASTER hitablásara.
Viðurkennd viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Stefán Máni
eins og hann gerist bestur!
„Fer lega góður spennu
lestur.“ Auður Haralds á RÚV
„Óhugnanlega vel skrif
uð, vel flétt uð og spenn
andi saga.“
BB í Fréttablaðinu
Vesturbæingurinn Jón Kári Eldon
hefur verið búsettur í San Franc
isco síðastliðin þrjú og hálft ár. Nú
þegar hann var að klára seinustu
önnina erlendis fór hugurinn
að reika heim og hóf hann þá að
teikna helstu kennileiti Vestur
bæjar. „Ég er að læra vefhönnun
og nýmiðlun sem er kannski svip
að og grafísk hönnun nema það
fókuserar meira á allt annað en
prent. Þetta er ekki partur af neinu
lokaverkefni heldur fór ég bara að
dunda mér í þessu í lærdómspás
unum. Ég teiknaði fyrst mynd af
Ísbúð Vesturbæjar og deildi henni
á Instagram. Hún fékk góð við
brögð og þá byrjaði ég að deila
myndum af öðrum kennileitum
annan hvern dag.“
Hugmyndin á bak við myndirnar
var að vekja upp minningar. „Þetta
er bæði nostalgía fyrir mig og alla
aðra Vesturbæinga. Maður á engar
myndir af umhverfinu, fólk er bara
að taka myndir af sjálfu sér. Þegar
ég var að leita að myndum til þess
að vinna eftir þá var það nánast
ómögulegt. Svo er þetta líka svo
fljótt að breytast, enda fannst mér
mikilvægt að teikna ísbúðina í
gamla stílnum áður en nýju eig
endurnir tóku við. Fólk virðist vera
að taka vel í þetta enda er ég búinn
að fá þó nokkrar fyrirspurnir um
að teikna önnur kennileiti og líka
frá fólki sem vill kaupa myndir á
síðunni.“
Jón þurfti ekki að hugsa sig
tvisvar um þegar hann átti að
nefna uppáhaldskennileitið sitt.
„Melabúðin verður alltaf uppá
haldið mitt. Hún er klassísk og er
í rauninni miðja Vesturbæjarins.
Það fyrsta sem ég gerði þegar ég
kom heim í seinustu viku var að
fá mér grillaðan kjúkling í Mela
búðinni.“
Jón Kári hefur áður vakið
athygli fyrir svipað verkefni en
fyrr á árinu stofnaði hann heima
síðuna baggerbogg.is þar sem
hann fór yfir ýmsa tölfræði sem
fólst í því að hætta að taka tóbak
í vörina. „Þegar ég fæ hugmyndir
þá byrja ég bara hægt og rólega
að vinna í þeim án þess að vita
hvað ég ætla að gera með þær. Það
var þannig í báðum þessum til
vikum en maður reynir alltaf að
vera að gera eitthvað. Það heldur
hugmyndafluginu gangandi.“
gunnhildur@365.is
Hugmyndin var að
vekja upp minningar
Jón Kári Eldon teiknaði upp helstu kennileiti Vesturbæjarins og
hannaði heimasíðuna 107.is. Hann stundar nám í vefhönnun í San
Francisco þar sem hann dundar sér í verkefnum á milli lærdóms.
Jón Kári er búsettur í San Francisco og hóf að teikna þekkt kennileiti í Vesturbænum þegar hugurinn fór að reika heim.
Mynd/daVíðSteinnSigurðarSon
Melabúðin verður
alltaf uppáHaldið
Mitt. Hún er klassísk og er í
rauninni Miðja vestur-
bæjarins. Það fyrsta seM ég
gerði Þegar ég koM HeiM
fyrir í seinustu viku var að
fá Mér grillaðan kjúkling í
Melabúðinni.
Óskarsverðlaunaleikkonan Kate
Hudson mun senda frá sér lífsstíls
bók fyrir konur um miðjan febrúar
á næsta ári. Ku leikkonan vera yfir
sig heilluð af núvitund, líkt og fjöl
margir Íslendingar undanfarið ár,
og ekki virðast vinsældirnar dala.
Segist Kate loks geta sett fingur
inn á það sem flestar konur séu
endalaust að leita að, en þær þrái
jafnvægi í líf sitt. Það geti þær hæg
lega fundið í bókmenntum leik
konunnar.
Bókin Pretty Happy: Healthy
Ways to Love Your Body verður
þannig eins konar leiðarvísir fyrir
konur sem vilja verða sterkari,
heilbrigðari og búa yfir fegurð sem
kemur alla leið að innan, en samt
hafa gaman af lífinu. Þetta telur hún
hægt með réttu hlut
falli líkamsræktar
o g þ e ss s e m
konur velja að
setja ofan í sig,
en umfram
annað snúist
þ e t t a u m
að tileinka
sér lífsstíl
núvitund
arinnar.
yfir sig
heilluð af
núvitund
uppáhaldskennileiti Jóns Kára í Vesturbænum er Melabúðin. Mynd/JónKárieldon
Dwayne 'The Rock' Johnson og kær
asta hans Lauren Hashian eignuðust
frumburð sinn á dögunum, og hafa
nú gefið stúlkubarninu nafnið Jasm
ine. Velta menn nú vöngum yfir því
hvort nefnt hafi verið eftir Disney
prinsessunni Jasmine sem kom fyrir
í myndinni um Aladdín sem varð
heimsfræg á tíunda áratug síðustu
aldar. Hafa skötuhjúin þó ekkert
gefið út varðandi þær vangaveltur,
en nýlega skrifaði Johnson undir
samning við Disney en hann mun
verða aðalstjarnan í næstu afurð
teiknimyndarisans, og er um að
ræða teiknimyndina Moana. Ef
einhver tenging er á milli nafn
giftar frumburðarins og samn
ingsins, verður Johnson að
teljast einkar húsbóndahollur
starfsmaður, sem verður
honum eflaust til tekna.
skírði eftir
prinsessu
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r46 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
2
0
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:2
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
C
0
-C
F
9
8
1
7
C
0
-C
E
5
C
1
7
C
0
-C
D
2
0
1
7
C
0
-C
B
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K