Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 72

Fréttablaðið - 21.12.2015, Side 72
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Berglindar Pétursdóttur Bakþankar Að breyta þinni hugmynd í veruleika. Færa úr tölvutæku formi í fullkominn prentgrip. Þar liggur okkar ástríða. Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M A R G H !!! 2 11 21 5 RÉTTUR KODDI SKIPTIR HÖFUÐ MÁLI Í Rekkjunni er að finna gríðarlegt úrval af góðum heilsukoddum sem gerðir eru úr dún, latex, þrýsijöfnunarsvampi og polyfiber. 20% AFSLÁTTUR af öllum heilsukoddum fram að jólum. Í Bellana Deluxe lökunum er ekkert til sparað þegar kemur að efnisvali. Mikið er lagt í að hafa laki eins mjúkt og mögulegt er auk þess að það megi alls ekki fara að hnökra með tímanum. Í lökunum er 95% Makó-bómull í hæsta gæðaflokki og 5% elastan. Elastan-efnið er teygjuefni þannig að lakið faðmar dýnuna fullkomnlega, auk þess er teygja allan hringinn undir lakinu. Diletto Casa Diletto Casa eru portúgölsk silkidamask rúmföt sem eru ofin úr sérvalinni bómull. Þau eru afar mjúk og eru með „eacy care finish“ sem minnkar krumpur og gerir þau auðveldari í meðhöndlun. Settu mýkt og gæði á rúmið fyrir jólin Bellana Deluxe lökin eru málið Stærð: 140×200 Efni: 100% bómull Þráðfjöldi: 300. Litir: White, ivory, stone, rosa, khaki. Þvottur: 40° Verð 14.650 kr. 20% AFSLÁTTUR! Jólaopnun Rekkjunar Mánudagur 21. des. frá kl. 10:00 – 18:00 Þriðjudagur 22. des. frá kl. 10:00 – 18:00 Þorláksmessa frá kl. 10:00 – 18:00 Lokað 24. til 26. des. Opið 27.- 30. des. frá kl. 10:00 – 18:00 Lokað 31. des. og 1. janúar 2016 ÞAÐ ERU AÐ KOMA JÓL Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Ég er í sambúð með manni sem er svo yndislegur og góður en einn galla hefur hann. Hann er nefnilega þannig gerður að þegar hann langar í eða vantar eitthvað spænir hann af stað med det samme og kaupir það sjálfur. Þetta er hreinasta helvíti fyrir velgjörðarfólk hans, mig og mína vönduðu tengdamóður, þegar líða fer að jólum og allir hafa verið krossaðir af gjafalistum nema hann. Ég hef trekk í trekk þurft að brjóta í tengdó hjartað með fréttum um að okkar maður hafi alveg brjálast á Amazon og eigi nú fyrir það sem hún keypti. Hún hefur ekki undan að skila og skipta góðum gjöfum, hugur minn er því hjá tengdamóður minni þessi jólin. Ég fann ágætis lausn á þessu mín megin. Ég valdi mér það flottasta sem ég fann, keypti það sjálf og bað impúls-kaupandann að gera það sama fyrir sjálfan sig, með kærri jólakveðju frá mér. Þetta gekk prýðilega. En svo dundu ósköpin yfir. Kjóllinn sem hann gaf mér entist í nákvæmlega hálft jólahlaðborð, þangað til fjörugur kjötbiti tók heljarstökk af gaffl- inum og skildi eftir sig ljótan blett í silkinu. Ég skautaði beint í efna- laug þar sem íbyggnir starfsmenn tóku á móti mér. Þeir hnöppuðust saman í kringum kjólinn og töluðu lágt sín á milli. Ég hef sjaldan séð jafn alvarlega efnahreinsitækna. „Kjóllinn var gjöf frá kærastanum mínum,“ kjökraði ég. Og í sömu andrá upplifði ég jólin. Starfmaður efnalaugarinnar lagði hönd sína á mína, horfði í tárvot augu mín og sagði: „Við munum gera okkar besta til að bjarga honum, hafðu ekki áhyggjur.“ Og í smástund leið okkur báðum eins og hann væri skurðlæknir sem bjarga myndi jólunum. Desember er sannarlega drama- tískur tími. Jólaraunir 2 0 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :2 1 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 C 0 -9 4 5 8 1 7 C 0 -9 3 1 C 1 7 C 0 -9 1 E 0 1 7 C 0 -9 0 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.