Fréttablaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 6
20. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 KJARAMÁL „Öryrkjar eru ekkert öðruvísi en aðrir Íslendingar. Þeir þurfa að borga fyrir húsnæði, mat, læknisheimsóknir, lyf og margt fleira,“ segir Halldór Sævar Guð- bergsson, varaformaður Öryrkja- bandalags Íslands, ÖBÍ. Hann segir öryrkja vænta þess að fá 300 þúsund krónur í lífeyrisgreiðslur á mánuði frá almannatrygging- um, það er að segja jafn mikið og krafa verkalýðsforystunnar um lágmarkslaun hljóðar upp á. Fyrir einstak- ling sem býr einn eru óskertar örorkulífeyris- greiðslur á n heimilisuppbót- ar 172.516 krón- ur eftir skatt en 192.021 króna með heimilis- uppbót. Um 30 prósent örorku- lífeyrisþega fá heimilisuppbót skerta eða óskerta. „Þetta dugar engan veginn til þess að fólk nái að framfleyta sér á viðunandi hátt. 300 þúsund krónur á mánuði eru algjört lágmark til að fólk geti lifað í íslensku samfélagi,“ tekur Halldór fram. Hann minnir á að í 69. gr. laga um almannatryggingar segi að bætur almannatrygginga skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skuli taka mið af launaþró- un, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísi- tölu neysluverðs. Samkvæmt skýrslu sem Talna- könnun vann fyrir ÖBÍ um þróun bóta Tryggingastofnunar til öryrkja frá 2008 til 2013 náði líf- eyririnn hvorki að halda í við þróun lægstu launa, verðlags né launavísitölu. „Við höfum ekki fengið leiðréttingu nema að hluta,“ segir Halldór. Í ályktun um kjaramál sem sam- þykkt var á landsfundi Landssam- bands eldri borgara, LEB, nú í maí er þess krafist að lífeyrir almanna- trygginga taki að lágmarki sömu hækkunum og lægstu laun sem samið verður um í næstu kjara- samningum. Í ályktuninni er skor- að á stjórnarflokkana að standa við gefin loforð um að bæta öldr- uðum kjaraskerðinguna sem varð á árunum 2009 til 2013 og lækka fjármagnstekjuskatt. Skerðingar á frítekjumarki vegna fjármagns- tekna aldraðra og öryrkja sem tóku gildi 2009 verði afturkallað- ar strax. Jafnframt að stjórnvöld virði ákvæði og anda laganna um almannatryggingar. Nýkjörinn formaður LEB, Hauk- ur Ingibergsson, segir það liggja í loftinu að lægstu laun muni hækka töluvert mikið í komandi kjara- samningum. „Komið hefur fram sterk krafa um að lægstu laun hækki í 300 þús- und krónur á næstu þrem- ur árum. Það er ekki síður ástæða til að þeir sem ekki njóta atvinnutekna heldur lífeyris fái sams konar hækkun. Ekki má gleyma að aldraðir hafa ekki notið þess launaskriðs sem orðið hefur á vinnumarkaði á síðustu árum og leitt hefur til gliðnunar á milli kjara launþega og lífeyrisþega,“ segir Haukur. ibs@frettabladid.is Aldraðir og öryrkjar fái líka 300 þúsund Varaformaður Öryrkjabandalags Íslands segir lífeyrisgreiðslur engan veginn duga til að fólk nái að framfleyta sér á viðunandi hátt. Formaður Landssambands eldri borgara segir aldraða ekki hafa notið launaskriðs sem orðið hefur á vinnumarkaði. HAUKUR INGI- BERGSSON HALLDÓR SÆVAR GUÐ- BERGSSON KJARABAR- ÁTTA Öryrkjar og aldraðir benda á að samkvæmt lögum eigi lífeyrir að taka mið af launaþróun, þó þannig að greiðslur hækki aldrei minna en verðlag sam- kvæmt vísitölu neysluverðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR Ekkert hross hefur verið flutt úr landi í yfirstandandi verkfallsaðgerðum dýralækna hjá Matvælastofnun. Á annað hundrað hross hafa verið seld úr landi og bíða nú fyrrverandi eigendur eftir því að geta flutt hrossin til nýrra heimkynna. „Þetta veldur óneitanlega óþægindum fyrir hrossasölu. Á okkar vegum eru um 60 hross sem bíða eftir því að komast út. Hættan er sú að nýir eigendur bíði með að flytja út hross þar til í haust því það er ekki gott fyrir hrossin að koma út í sumarhitann. Á meðan munu þessi hross bíða hér á landi í einhvern tíma,“ segir Hulda Gústafsdóttir, tamningamaður og útflytjandi á Árbakka í Landsveit. Útflytjendur segja þetta geta haft mikil áhrif á útflutning íslenska hestsins á þessu ári ef fram heldur sem horfir. Gunnar Arnarson og Eysteinn Leifsson eru einnig stórir aðilar í útflutningi hrossa og í gegnum þau þrjú fer obbi íslenskra hesta til útlanda. Um 140 hross bíða útflutnings hjá Eysteini og Gunnari. Hulda bendir á að þótt ástandið sé ekki gott er lán í óláni að háannatími í útflutningi hrossa er að haustlagi. „Það mun taka okkur einhvern tíma að ná í skottið á okkur því svo fer allt á fullt að hausti þegar langflest hross eru flutt úr landi. Því vonum við að þetta verkfall leysist sem fyrst. En þó þetta hafi vissulega slæm áhrif á útflutning hrossa kemur þetta afar hart niður á svína og alifugla- bændum og maður hugsar til þeirra stétta í dag,“ segir Hulda. - sa Fréttablaðið leitar að sögum sem tengjast verkfallsaðgerð- um. Láttu okkur endilega vita af skemmtilegum, eða miður skemmti- legum, sögum með því að senda okkur póst á ritstjorn@frettabladid.is. VEISTU SVARIÐ? 1. Hver er markahæsta íslenska knatt- spyrnukonan í efstu deild í Svíþjóð? 2. Í hvaða sveitarfélagi fá karlar frí í bæjarstjórn í júní? 3. Hvaða dómstóll mun taka afstöðu til spurninga Breta og Hollendinga varðandi Icesave? SVÖR: 1. Margrét Lára Viðarsdóttir. 2. Árborg. 3. EFTA-dómstóllinn. VERKALÝÐSBARÁTTAN REYNSLUSÖGUR ÁHRIF YFIRSTANDANDI AÐGERÐA Útflutningur hrossa liggur niðri BANDALAG HÁSKÓLAMANNA (BHM) Ótímabundið verkfall hjá hluta aðildarfélaga | Stendur enn yfir Í DAG ER 44. DAGUR Í VERKFALLI FIMM ÞEIRRA: 1 Félag geislafræðinga Hefur meðal annars áhrif á starfsemi Landspítalans. Ekki er hægt að framkvæma margvíslegar rannsóknir sem krefjast röntgen- myndatöku. 2 Félag lífeindafræðinga Áhrif á framkvæmd rannsókna á Landspítalanum. Lífeindafræðingar starfa á rannsóknastofum sjúkrahúsa og fyrirtækja í erfðagreiningu og lyfjaiðnaði, auk stofnana sem þjóna landbúnaði. 3 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Landspítala Koma að frumu- og sam- eindalíffræði, eðlis- og efnafræði, lífeðlis- og lífefnafræði, erfðafræði og líftækni, örveru- og veirufræði, ónæmisfræði, blóðbankafræði, vefjafræði, meinafræði, faralds fræði, tölfræði og kerfislíffræði. 4 Ljósmæðrafélag Íslands á Landspítala | ÞRI., MIÐ. OG FIM. Raskar starfi kvennadeildar, en undanþágur hafa verið veittar, svo sem vegna keisaraskurðaðgerða. 5 Stéttarfélag lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu Ekki er hægt að ganga frá alls kyns opinberum skiptum, gjaldþrota- eða skiptum dánarbúa, skilnuðum, hjónavígslum og fleiri hlutum. ● Ljósmæðrafélag Íslands á Sjúkrahúsinu á Akureyri Ótímabundið verk- fall hófst 9. apríl. Verkfall á mánudögum og fimmtudögum. Aðgerðir eru því á 42. degi. HAFA VERIÐ Í VERKFALLI FRÁ 20. APRÍL - 31. DAGUR 1 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Matvælastofnun Meðal annars áhrif á eftirlit með plöntu heilbrigði, matvælaöryggi og neytendavernd. 2 Stéttarfélag háskólamanna á matvæla- og næringarsviði á Matvæla- stofnun Raskar margvíslegu eftirliti og rannsóknum. 3 Dýralæknafélag Íslands Stórfelld áhrif á matvælaframleiðslu. Uppáskrift dýralækna og eftirlit þarf við slátrun og einnig vegna innflutnings. Í PÍPUNUM: SGS: Verkfalli sem átti að vera í gær og í dag hefur verið frestað til 28.-29. maí og ótímabundinni vinnustöðvun til 6. júní. Hjúkrunarfræðingar: Ótímabundið verkfall hefst 27. maí. VR, LÍV og Flóabandalag: 28.-29. maí er verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum, 30.-31. maí er verkfall á hótelum, gisti- og baðstöðum, 31. maí-1. júní er verkfall í flugafgreiðslu, 2.-3. júní er verkfall hjá skipafélögum og í matvöruverslunum, 4.-5. júní er verkfall hjá olíufélögum, 6. júní hefst ótímabundið verkfall félagsmanna. VERKFALLSAÐGERÐIR Í GANGI FRÁ AÐGERÐUM Í FYRRA Fólk sem á pantað flug um mánaðamótin næstu óttast áhrif af vinnustöðvun sem þá hefur verið boðuð í flugafgreiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 D 9 -9 2 1 C 1 7 D 9 -9 0 E 0 1 7 D 9 -8 F A 4 1 7 D 9 -8 E 6 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.