Fréttablaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 20. maí 2015 | SKOÐUN | 13
Í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnar Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks segir
m.a. um menntamál:
• Ríkisstjórnin leggur ríka
áherslu á að efla mennta-
kerfið með hagsmuni
nemenda og þjóðarinnar
allrar að leiðarljósi.
• Áhersla verður lögð á
samráð við hagsmuna-
aðila þegar ákvarðanir
eru teknar á vettvangi
ríkisins um skipulag
náms og kennslu.
• Komið verði á fót samstarfsvett-
vangi menntamálayfirvalda,
kennara og hagsmunaaðila í
atvinnulífi um framtíðarsýn og
mótun menntastefnu í þessum
greinum.
• Ríkisstjórnin leggur áherslu á
að taka upp samstarf við hags-
munaaðila í menntamálum um
þróun menntakerfisins og aukin
gæði menntunar. Horft verði til
10 punkta samkomulagsins frá
2006 um fyrirmynd samstarfs-
ins. Með samstarfinu verði einn-
ig leitað leiða til að stytta nám
á háskólastigi og auka samfellu
milli skólastiga.
Menntamálaráðherra hefur tekið
nokkuð einhliða ákvörðun um að
stytta námstíma til stúdentsprófs
úr fjórum árum í þrjú með tilheyr-
andi skerðingu á innihaldi náms. Í
aðalnámskrá fyrir framhaldsskóla
frá árinu 2011 var gert ráð fyrir
að framhaldsskólaeiningar skyldu
vera á bilinu 200-240 og að einstak-
ir skólar fengju að móta sitt náms-
framboð sjálfir en nú hefur verið
horfið frá því og enginn
skóli fær leyfi til að bjóða
upp á nám sem er meira en
200 einingar. Það er viðbúið
að þeir nemendur sem ætla
í krefjandi háskólanám að
loknu stúdentsprófi þurfi
að bæta við þekkingu sína
í tilteknum greinum áður
en þeir setjast á háskóla-
bekk. Þá viðbót munu þeir
mögulega þurfa að sækja til
einkaaðila og greiða fullu
verði. Á sama tíma hefur
verið forgangsraðað inn í
framhaldsskólann þannig að 25 ára
nemendur eiga þar ekki vísa skóla-
vist. Þeir nemendur sem hafa ein-
hverra hluta vegna helst úr lestinni
hafa því þann eina kost, vilji þeir
ganga menntaveginn, að kosta nám
sitt sjálfir í gegnum einkageirann
svo sem eins og háskólabrú.
Til viðbótar virðast vera fyrir-
hugaðar sameiningar framhalds-
skóla. Nú þegar hafa Iðnskólinn í
Hafnarfirði og Tækniskólinn verið
sameinaðir og fréttir berast af
mögulegri sameiningu Verkmennta-
skólans á Akureyri, Menntaskólans
á Tröllaskaga, Framhaldsskólans á
Húsavík, Framhaldsskólans á Laug-
um og Menntaskólans á Akureyri.
Hvort frekari sameiningar eru í
farvatninu er ómögulegt að geta
sér til um því að þvert á stefnu rík-
isstjórnarinnar er ekkert samráð
haft við fagaðila.
Frekari einkavæðing
Fjöldatakmarkanir inn í ríkisreknu
framhaldsskólana munu óhjá-
kvæmilega leiða til frekari einka-
væðingar menntakerfisins. Þeir
nemendur sem fá ekki inni í fram-
haldsskólunum verða að fjármagna
skólagöngu sína sjálfir. Samein-
ingar framhaldsskólanna á lands-
byggðinni gætu haft neikvæð áhrif
á minnstu einingarnar og fækkað
menntunartækifærum ungs fólks
úti á landi.
Þvert á stefnu ríkisstjórnar-
flokkanna hefur ekkert samráð
verið haft við hagsmuna- og fag-
aðila um þessar breytingar og það
sem meira er, Alþingi hefur nær
ekkert fjallað um málið. Stjórnvöld
marka stefnuna í menntamálum.
Alþingi setur lög og ráðherra fram-
fylgir þeim. Hér er á ferðinni gríð-
arleg menntapólitík og breyting frá
fyrri stefnu sem virðist vera lætt
inn bakdyramegin. Það er eitt-
hvað bogið við þetta í mínum huga
þar sem ráðherra fer sínu fram á
meðan Alþingi ræðir fundar stjórn
forseta. Stjórnarsáttmáli ríkis-
stjórnarinnar á að vera vegvís-
ir stjórnarliða og ráðherra. Í ljósi
þess að ráðherra gengur þvert á
stefnu ríkisstjórnarinnar í mennta-
málum furða ég mig á því hversu
litla athygli málið hefur fengið hjá
þingmönnum ríkisstjórnarflokk-
anna, Það ætti að vera þeirra að
halda kúrs og sjá til þess að staðið
sé við fyrirheitin sem skrifað var
undir á Laugarvatni árið 2012.
Á hvaða vegferð eru
stjórnvöld í menntamálum?
Fáir deila um að loftlags-
breytingar af manna-
völdum eru staðreynd.
Þjóðarleiðtogar sækja
loftslagsráðstefnur og
setja metnaðarfull mark-
mið sem miða að því að
draga úr losun gróður-
húsalofttegunda. Meira að
segja páfinn lætur til sín
taka og viðurkennir vand-
ann. En á hverju strand-
ar? Væntanlega er áskor-
unin sú að allt of fáir eru
tilbúnir að breyta um lífs-
stíl, þ.e. taka skref sem skipta máli
og ganga út á að minnka notkun
á jarðefnaeldsneyti með öllum
ráðum. Hjá því verður þó ekki
komist ef við ætlum að snúa þró-
uninni við.
Ég verð því alltaf jafn undrandi
þegar fréttir berast af bílakosti
ráðherra. Til dæmis keyrir utan-
ríkisráðherra um á Land Rover-
jeppa og sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra á
Land Cruiser-jeppa. Ég
hefði haldið að ráðherrar,
æðstu embættismenn þjóð-
arinnar, myndu ganga á
undan með góðu fordæmi
og kaupa eins vistvæna
bíla og mögulegt er þegar
gömlum bílum er skipt út.
Það eru örugglega til raf-
eða metanbílar sem eru
svartir og glansandi ef
það er eitthvert atriði. En
kannski finnst ráðherr-
unum að það snúi bara að okkur
hinum að berjast gegn þeirri ógn
sem loftslagsbreytingar eru.
Nýlega fékk ég svar við fyrir-
spurn minni til umhverfisráðherra
þar sem ég spyr m.a. um stefnu-
mótun ráðherra út frá umhverfis-
sjónarmiðum þegar kemur að
endur nýjun ráðherrabifreiða.
Í stuttu máli er svarið að það er
engin stefna. Ráðherrar virðast
geta keypt þá bíla sem þeir vilja
eins og dæmin sanna. Á sama tíma
er stjórnarráðið með umhverfis-
stefnu þar sem eitt markmiðið er
„að efla vistvænar samgöngur í
samræmi við aðgerðaáætlun ríkis-
stjórnarinnar í loftslagsmálum“
og því skal fylgt eftir með eftir-
farandi aðgerð; „við kaup á bif-
reiðum fyrir ráðuneytin skal velja
sparneytin og vistvæn ökutæki“.
Annaðhvort þekkja ráðherrar
ekki umhverfisstefnu stjórnar-
ráðsins og skuldbindingar Íslands
varðandi loftslagsmál eða þeim er
alveg sama. Ég veit ekki hvort er
verra.
Ráðherrar á bensíngjöfi nni
NICOTINELL FRUIT
Ódýrasta Nicotinell
lyfjatyggigúmmíið!
Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim
sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Ekki má nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki eða ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins. Ráðlagður skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum.
Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með mikla nikótínþörf, reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er
minna en 20 sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds, tyggið aftur þegar
bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í upphafi meðferðar skaltu venjulega nota eitt stk á 1-2 klst. fresti þegar þú finnur fyrir reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota
fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá skal draga úr fjölda stk. smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í
1-2 stk á sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur en í 1 ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi ef þú getur ekki hætt að nota lyfið
eftir eitt ár eða ef þér tekst ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta
reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef þú: hefur fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með
alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár, gervitennur, barn á brjósti eða ert á meðgöngu. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn
hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Á þessum fundi mun Steven Blockmans kynna skýrslu sem
unnin var af starfshópi CEPS undir forystu Javier Solana.
Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem miða að því að
auka getu Evrópusambandsins í varnarmálum. Niðurstaða
skýrslunnar er sú að frekari samruni í Evrópu ætti að leiða til
myndunar Varnarbandalags Evrópu.
Steven Blockmans er yfirmaður utanríkismáladeildar Centre
for European Policy Studies (CEPS) og meðhöfundur skýrslu
starfshóps CEPS um öryggis- og varnarmál Evrópusambandsins.
Fundarstjóri: Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við
Háskólann á Bifröst.
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
í samstarfi við Evrópustofu
FIMMTUDAGINN 21. MAÍ KL. 12-13 Í ODDA 101
EVRÓPUMÁL
Í átt að Varnar-
bandalagi Evrópu
www.ams.hi.is og www.evropustofa.is
Education and Culture
Lifelong Learning Programme
JEAN MONNET
Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir.
Steven Blockmans
Eiríkur Bergmann
Aukin óstöðugleiki í nágrenni Evrópu hefur gert það
að verkum að ríki ESB hafa þurft að endurskoða
hugmyndir sínar um eigið öryggi. Á sama tíma
hefur engu að síður átt sér stað mikill niðurskurður í
varnarmálum aðildarríkjanna sem hefur dregið úr getu
sambandsins til að sinna varnarhlutverki sínu.
UMHVERFIS-
MÁL
Brynhildur
Pétursdóttir
þingkona Bjartrar
framtíðar
MENNTUN
Guðríður
Arnardóttir
formaður Félags
framhaldsskóla-
kennara
➜ En kannski fi nnst ráð-
herrunum að það snúi bara
að okkur hinum að berjast
gegn þeirri ógn sem lofts-
lagsbreytingar eru.
➜ Það er eitthvað bogið
við þetta í mínum huga þar
sem ráðherra fer sínu fram á
meðan Alþingi ræðir fundar-
stjórn forseta.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
A
-0
8
9
C
1
7
D
A
-0
7
6
0
1
7
D
A
-0
6
2
4
1
7
D
A
-0
4
E
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K