Fréttablaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 53
 7 | 20. maí 2015 | miðvikudagur og af hverju er ekki búið að breyta þessu? Hvað eru margir að vinna á þessum skrifstofum þeirra og hvað hafa þeir verið að gera? Ég er með á þriðja hundrað manns í vinnu. Þeir hafa ekki komið hing- að og spurt mig hvað er hægt að gera og hvað er framundan?“ segir Helgi. Hann sjái ekki þessa full- trúa stéttarfélaganna. En síðan fái hann bara allt í einu fréttir af því að fólkið hans eigi að hætta að vinna. En starfsfólkið sitt vilji alls ekkert hætta að vinna, því sé meira umhugað um það að það sé að fara í sumarfrí. Helgi bendir líka á að þeir sem séu ósáttir við launin sín geti hætt í vinnunni og farið að vinna ann- ars staðar. Launamenn séu frjáls- ir ferða sinna. „Maður var ekki alltaf sáttur þar sem maður var að vinna sem ungur maður. En maður gat hætt,“ segir Helgi. Aftur segist hann ekki útiloka að lægstu laun séu of lág, en spyr hvort það sé ekki bara eitt prósent sem er á lægstu laununum. „Og hverjir eru í þessu eina prósenti? Eru það sex tán, sautján ára gamlir krakkar? Hvað eru margir 25 ára á þessu? Eða 35?“ spyr Helgi. Hann ítrekar orð sín í fréttum Stöðvar 2 í síðustu viku að hann sé tilbúinn til þess að taka þátt í að hækka laun ef hann fær hráefni til að selja. Það sé voðalega vont ef það eru tíu til fi mmtán starfsmenn hjá ríkinu í verkfalli sem geti stöðv- að framleiðsluna hjá honum. Hvernig snertir staðan á vinnu- markaði þig og þinn rekstur, er orðið erfi ðara að ná í hráefni? „Þetta er allt farið að verða leiðin legt. En maður er svo sem ýmsu vanur. Ég er búinn að vera í þessum bransa í hálfa öld. Og það verður náttúrlega hrylling- ur ef maður verður hráefnislaus og fólkið á fullum launum,“ segir Helgi. Menn verði að skilja það að það þurfi að borga laun. „Ég borga ekki launin, það er vinna fólksins sem borgar launin. Menn verða að átta sig á því hvernig þetta virkar.“ Þú með þínar sterku skoðanir, datt þér aldrei í hug að fara í pólitík? „Nei, ég er með mínar skoðanir í dag. Maður er búinn að vera í skóla lífsins. Og þessi skóli lífsins er það sem ég hef verið að gera og segja í gegnum tíðina,“ segir hann. Það hljóti líka að vera rosaleg tilfi nning að vinna á Alþingi, þar sem ekkert gerist og allir eru ósammála. „En maður hefði kannski átt að mæta og hafa áhrif á þá sem vilja vera í þessu. Ég mætti hvergi. Ég mætti bara í mínu fyrirtæki og verkin tala þar,“ segir Helgi. Hann tekur það þó jafnframt fram að hann hafi síður en svo byggt upp fyrirtæk- ið einn. Hann segist þó hafa stutt stjórnmálaflokka fjárhagslega. „Stjórnmálafl okkar eru bara fyrir- tæki og þau þurfa að afl a tekna. Þeir fá nú eitthvað frá ríkinu og þeir koma í fyrirtækið. Og ég fi nn ekkert að því. Ég hef svona látið af hendi rakna til þeirra allra sem hafa komið. En ég hef ekkert verið að styðja einn umfram annan,“ segir Helgi. Heldur minningu sonarins á lofti „Þegar hann sonur minn var hérna, þá vorum við að spekúlera hitt og þetta. Byggðum þetta hús hér sem ég sé ekki eftir að hafa byggt,“ segir Helgi. Hann segir að þeir feðgarn- ir hafi verið að velta því fyrir sér hvernig þeir ætluðu að láta hlut- ina þróast hjá sér og þeir hafi verið farnir að velta því fyrir sér að kaupa tæki fyrir gosdrykkjafram- Það var Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, sem lagði fram frumvarp um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda árið 2011 þess eðlis að lífeyrissjóð- um væri heimilt að reka og leigja út íbúðarhúsnæði. Áður hafði verið lagt blátt bann við því að lífeyrissjóður fjárfesti í fasteignum nema það væri nauðsynlegt vegna starfsemi sjóðsins. Þegar atkvæði voru greidd um frumvarpið sagði Helgi Hjörvar að nýtt fyrirkomulag myndi greiða fyrir því að auka félags- legar áherslur í húsnæðiskerfinu á Íslandi. Reynsla undanfarinna ára sýndi að lífeyrissjóðirnir hefðu fjár- fest í því sem óskynsamlegra væri og óheppilegra en íbúðarhúsnæði og fasteignir. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, greiddi hins vegar atkvæði gegn frumvarpinu. „Vegna þess að þetta eykur þrýsting á sjóðsstjórnir að kaupa íbúðir eða taka yfir íbúðir af sjóðfélögum og leigja þær út á lágri leigu. Þar sem hagsmunir fara gegn hagsmunum lífeyrissjóðanna að ávaxta fé sitt eins og hægt er. Ef lífeyrissjóðirnir vilja kaupa húsnæði þá geta þeir stofnað um það hlutafélag og keypt hlutabréf í hlutafélögum og haft millilið á milli sín og þeirra sem leigja af þeim,“ sagði Pétur. Frumvarpið var samþykkt og þar með var skotið styrkari stoðum undir þann lagagrundvöll sem þarf að vera fyrir hendi til að hægt sé að hrinda þeim hugmyndum í framkvæmd sem Helgi talar fyrir. HELGI HJÖRVAR STUDDI HUGMYNDINA Á ALÞINGI Helgi Hjörvar mælti fyrir frum- varpi sem var svo samþykkt. leiðslu. Þá hafi þeir byrjað að fl ytja inn Sinalco. „Ég er nú kannski að þrjóskast við þetta til að hafa hans minningu með manni. Ég veit ekk- ert hvort maður á eftir að kaupa tæki fyrir þetta, það veit maður ekki. Það hefur ýmislegt breyst,“ segir hann. Hann ítrekar að hann er ekki einn í því að reka fyrirtækið. Hann eigi þrjár dætur, þrjá tengda- syni og þrjú afabörn séu farin að vinna hjá fyrirtækinu. „Þetta er stór hópur og maður sér til. Ég fl yt þetta inn frá Þýskalandi og ég sé bara til. Það er ekkert mál að taka einn og einn gám svona. Bara gaman að því,“ segir Helgi. Þú verður fyrir því áfalli að missa son þinn, er hægt að ná sér eftir svo- leiðis upplifun? „Það er voða mikill munur að missa son sinn og að hann er drep- inn. Þetta eru tveir ólíkir hlutir,“ segir Helgi. Hann segir að maður- inn sem banaði syni hans hafi fram- ið viðbjóðslegan verknað og vonar að hann muni aldrei sleppa. „Þetta tekur á en maður verður bara að lifa við þetta og hjólið heldur áfram og það kemur ekkert í staðinn,“ segir Helgi. Hann missti síðar eiginkon- una og telur að sonarmissirinn hafi veri gríðarlegt áfall fyrir hana og svona lagað geti líka verið mikið álag fyrir suma menn. Helgi seg- ist þó hafa getað gleymt sér með barnabörnunum og hann sé nokkuð hress og hafi gaman af vinnunni. „Þess vegna keypti ég þetta Pizza Hut-dæmi. Og það heldur mér meira gangandi,“ segir hann. „Það hefur mikið að segja. En það er eiginlega vonlaust að lýsa þessu og að hafa síðan misst konuna líka. Hún var mín hægri hönd í fi mmtíu ár. Maður áttar sig ekki á þessu fyrr en það gerist,“ segir hann. Helgi segist hafa reynt að sjá ljós- ið í myrkrinu og bendir á að eftir að Hannes var farinn hafi komið í ljós að Hannes átti ársgamlan dreng í öðru landi sem enginn vissi um. Helgi segist hafa heimsótt móður barnsins um leið og hann áttaði sig á tilvist barnsins. „Svo heimsótti hún mig og við höfum náð góðu sam- bandi,“ segir Helgi. Hann gagnrýnir það að litli drengurinn geti ekki erft pabba sinn fyrr en hann er orðinn átján ára gamall. „Ég hugsaði með mér af hverju hún mætti ekki fá eitthvað af því sem hann skildi eftir til að ala drenginn upp,“ segir Helgi. Hann vildi helst að litli drengurinn fengi eitthvað af eignum föður síns og þannig gætu hann og móðir hans átt íbúð til að búa í. Helgi leggur áherslu á að það séu góð samskipti milli hans og móður drengsins. Drengurinn hafi komið hingað til lands í einn mánuð í fyrra og hann hefði viljað fá hann aftur núna. Úr því verður ekki og því ætlar Helgi að skjótast út og hitta barnið. „Ég er svona smá barnakarl og hann er einn af okkur. En þetta er voða skrýtið system að maður kynnist henni á eftir. Vanalegast kynnist maður tengdadóttur og tengdasyni þegar samböndin eru að fæðast. En þarna kemur allt í einu lítill drengur eftir á. Þetta er svona afturábak og svolítið skrýtið,“ segir Helgi. 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 D 8 -9 6 4 C 1 7 D 8 -9 5 1 0 1 7 D 8 -9 3 D 4 1 7 D 8 -9 2 9 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.