Fréttablaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 67
MIÐVIKUDAGUR 20. maí 2015 | SPORT | 23
HANDBOLTI Einar Andri Einarsson,
þjálfari Aftureldingar í Olís-deild
karla, gerir ráð fyrir því að Mos-
fellingar tefli fram svipuðu liði á
næsta tímabili.
„Eins og staðan er núna er búið
að semja við alla leikmenn, en
Kristinn Hrannar Bjarkason er á
leið utan í nám og Hrafn Ingvars-
son íhugar að leggja skóna á hill-
una í bili,“ sagði Einar í samtali
við Fréttablaðið í gær.
Afturelding kom liða mest á
óvart í vetur og komst alla leið í
úrslit Íslandsmótsins en Mosfell-
ingar voru nýliðar í Olís-deildinni
á nýafstöðnu tímabili.
Lykilmenn á borð við Örn Inga
Bjarkason og nafnana Jóhann
Jóhannsson og Jóhann Gunnar
Einarsson eru búnir að semja við
liðið að nýju og þá verður mark-
vörðurinn Pálmar Pétursson
áfram í herbúðum Aftureldingar.
Ekki er þó ljóst hvort línumaður-
inn öflugi, Pétur Júníusson, verður
áfram í Mosfellsbænum en erlend
félög hafa sýnt honum áhuga.
„Það eru einhver lið að fylgjast
með honum en það er ekkert komið
inn á borð hjá okkur,“ sagði Einar
og bætti við:
„Við vinnum eins og hann verði
áfram en það er ekkert ólíklegt
að hann fari í atvinnumennsku á
næsta árinu.“
Afturelding fékk línumanninn
Þránd Gíslason frá Akureyri í vor
en Einar gerir ekki ráð fyrir því að
styrkja liðið frekar þótt hann úti-
loki ekkert í þeim efnum.
„Við lögðum aðallega áherslu á
að halda sama liði en það var ekk-
ert útséð með það,“ sagði Einar að
lokum. - iþs
Aðaláherslan á að halda sama liði
Aft urelding mætir með nánast sama mannskap til leiks á næsta tímabili.
FÖGNUÐUR Nýliðar Aftureldingar
komust alla leið í úrslit Olís-deildarinnar
á nýafstöðnu tímabili en biðu þar lægri
hlut fyrir Haukum, 3-0. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ráðstefna á vegum tækni- og
verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík,
Verkfræðingafélags Íslands (VFÍ) og
Tæknifræðingafélags Íslands (TFÍ)
Verkfræðingafélag Íslands Tæknifræðingafélag Íslands
LÆKKUN KOSTNAÐAR
VIÐ MANNVIRKJAGERÐ
MEÐ GÆÐASTJÓRNUN
Fimmtudaginn 21. maí kl. 9:00 -11:30 í Háskólanum í Reykjavík, stofu V101
D A G S K R Á
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR,
setur ráðstefnuna
9:00 Þórður Víkingur Friðgeirsson, lektor við HR
Reynslusögur um kostnaðarlækkun við mannvirkjagerð
með straumlínustjórnun (e. Lean management)
10:20
Guðlaug Aðalrós Sverrisdóttir,
gæðastjóri Vestfirskra verktaka
Gæðakerfi Vestfirskra verktaka - reynslusaga um
ávinning, kosti og galla og hvað þarf til að árangur náist
10:40
Pallborð (frummælendur)
Jón Guðmundsson, verkfræðingur og fagstjóri bygginga
hjá Mannvirkjastofnun, stjórnar pallborðsumræðum
11:00
Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjórinn Árni B. Björnsson, framkvæmdastjóri
VFÍ og TFÍ, tekur saman helstu niðurstöður.
11:20
Sigurgeir Tryggvason, framkvæmdastjóri
fjármálafyrirtækisins Summu
Mikilvægi góðrar stjórnunar fjárfrekra framkvæmda
frá sjónarhóli fjárfesta
9:05
Helgi Þór Ingason, prófessor við HR
Hvað skiptir máli við innleiðingu gæðakerfa?
Kynning á nýrri bók og íslenskri rannsókn
9:25
Gunnar Valur Gíslason,
framkvæmdastjóri hjá Eykt
Undirbúningur stærri framkvæmdar (Höfðatorgs) með
vönduðum stjórnháttum
9:45
Hlé10:05
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis
FÓTBOLTI Blikar geta í kvöld orðið
fyrsta liðið í efstu deild í nútíma-
fótbolta sem gerir jafntefli í
fyrstu fjórum leikjum sínum á
Íslandsmóti.
Breiðablik varð á sunnudag-
inn aðeins níunda félagið frá
1977 sem gerir jafntefli í fyrstu
þremur leikjum sínum á tíma-
bili. Öll hin átta liðin sluppu út
úr jafnteflisprísundinni í fjórða
leik. Blikar hafa gert jafntefli við
Fylki (1-1), KR (2-2) og Keflavík
(1-1) í fyrstu leikjum sínum en í
þeim öllum hefur Guðjón Pétur
Lýðsson skorað jöfnunarmarkið.
Breiðabliksliðið setti met á
síðasta tímabili þegar liðið varð
fyrsta liðið í sögu efstu deildar til
að gera tólf jafntefli. - óój
LIÐ MEÐ ÞRJÚ JAFNTEFLI Í FYRSTU
ÞREMUR FRÁ 1977-2015:
Víkingur 1977 Fjórði leikur: 1-0 sigur á Fram
Fram 1981 Fjórði leikur: 0-1 tap fyrir Þór
Breiðablik 1981 Fjórði leikur: 3-1 sigur á KR
KA 1982 Fjórði leikur: 2-1 sigur á Fram
KR 1984 Fjórði leikur: 3-2 sigur á Fram
Leiftur 1988 Fjórði leikur: 1-2 tap fyrir Víkingi
Valur 1998 Fjórði leikur: 1-0 tap fyrir Keflavík
Þróttur 1998 Fjórði leikur: 1-0 sigur á Grindavík
Breiðablik 2015: Fjórði leikur: Á móti Val í kvöld
Setja Blikarnir
met í kvöld?
MARKAHÆSTUR Guðjón Pétur Lýðs-
son í Breiðabliki. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
PEPSI DEILD KVENNA
SELFOSS - ÍBV 3-2
Guðmunda Brynja Óladóttir 2, Hrafnhildur
Hauksdóttir - Sigríður Lára Garðarsdóttir, Cloe
Lacasse.
ÞRÓTTUR - ÞÓR/KA 0-3
- Lára Einarsdóttir, Sandra María Jessen, Klara
Lindberg.
AFTURELDING - BREIÐABLIK 1-5
Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir - Fanndís Friðriks-
dóttir 2, Svava Rós Guðmundsdóttir 2, Rakel
Hönnudóttir.
KR - VALUR 0-5
- Elín Metta Jensen 2, Vesna Smiljkovic 2, Katia
Maanane.
FYLKIR - STJARNAN 0-4
- Harpa Þorsteinsdóttir 2, Ana Victoria Cate,
Björk Gunnarsdóttir.
Upplýsingar um markaskorara: urslit.net.
GLEYMDU BÚNINGUNUM Þór/KA var í
bláum varabúningi Þróttar gegn Þrótti í
gær og vann 3-0. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
9
-9
2
1
C
1
7
D
9
-9
0
E
0
1
7
D
9
-8
F
A
4
1
7
D
9
-8
E
6
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K