Fréttablaðið - 20.05.2015, Side 8
20. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
69
0
41
Frá kr.
154.900
Eldri borgarar til
Kanarí &
Benidorm
Benidorm – 8. sept. í 14 nætur
Kanarí – 25. okt. í 24 nætur
Dorotea
Frá kr. 199.900
Heimsferðir býður eldri borgurum frábær kjör til Kanarí.
Einstök ferð m/gistingu á Dorotea án fæðis.
Netverð á mann frá kr. 199.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð.
25. október í 24 nætur með 20.000 kr. bókunarafslætti.
Hotel Melia
Frá kr. 154.900
Heimsferðir býður eldri borgurum frábær kjör til Benidorm.
Einstök ferð m/gistingu á Hotel Melia m/hálfu fæði og drykk.
Netverð á mann frá kr. 154.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi.
8. september í 14 nætur með 15.000 kr. bókunarafslætti.
Heimsferðir býður eldri borgurum frábær kjör
til Benidorm og Kanarí. Einstakar ferðir með
góðri gistingu á vel völdum hótelum sem notið
hafa vinsælda. Gríptu þetta frábæra tækifæri
og njóttu lífsins í góðum kjörum. Fjölbreytt
dagskrá í boði í fylgd reyndra fararstjóra
Heimsferða.
Allt að 20.000
kr.
bókunarafs
láttur á ma
nn
til 1. júní 20
15.
MENNING Hilmar J. Malmquist,
forstöðumaður Náttúruminja-
safns Íslands (NMSÍ), vonar að
ávirðingar Ríkisendurskoðunar
vegna aðgerðarleysis stjórnvalda
í málefnum safnsins verði til þess
stjórnvöld taki af skarið og marki
framtíðarstefnu fyrir safnið.
Ríkisendurskoðun, sem er
sjálfstæð stofnun sem starfar á
vegum Alþingis, birti svokall-
aða eftirfylgniskýrslu á mánu-
dag, en eftir úttekt á málefnum
NMSÍ árið 2012 var hvatt til að
stjórnvöld tækju ákvörðun um
starfsemi safnsins, uppbygg-
ingu þess og umfang til framtíð-
ar, enda uppfyllti stofnunin ekki
lögbundnar skyldur sínar sem eitt
þriggja höfuðsafna Íslands.
Niðurstaða Ríkisendurskoðun-
ar nú er í raun sú að ekkert hafi
verið gert í málefnum safnsins
og því hljóti að koma til álita, að
óbreyttu, að leggja safnið niður
sem sérstaka stofnun og koma
starfseminni fyrir með öðrum
hætti.
Hilmar bendir á að það glytti
í eitt og annað jákvætt í starf-
seminni, en í fyrsta sinn tekur
safnið nú þátt í samsýningu sex
safna þar sem m.a. geirfuglinn er
til sýnis í Safnahúsinu og gerður
hefur verið samstarfssamningur
milli Náttúrufræðistofnunar og
safnsins um útlán og eftirlit með
safnmunum.
„Ég hef enn von um að sam-
starf megi takast um myndar-
lega náttúrufræðisýningu í Perl-
unni, en klukkan tifar og það má
ekki dragast mikið lengur að taka
ákvörðun um það. Eins er skrif-
stofuaðstaða safnsins í óvissu
hér í Loftskeytastöðinni, húsa-
leigusamningnum hefur verið
sagt upp og aðeins tveir mánuðir
til stefnu,“ segir Hilmar og bætir
við að staða safnsins sé vissulega
ekki glæsileg en vonar að niður-
staða Ríkisendurskoðunar verði
til þess að brýna menn til dáða.
„Þjóðin og gestir landsins eiga
ekki annað skilið en að eignast
safn þar sem staðið er að sýn-
ingahaldi og miðlun upplýsinga
og fróðleiks um einstaka nátt-
úru landsins, náttúrusögu, nátt-
úruvernd og nýtingu náttúru-
auðlinda. Við reiðum okkur í svo
miklum mæli á auðlindir nátt-
úrunnar að fræðsla um hana er
grundvallaratriði,“ segir Hilmar.
Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, sagði í
viðtali við Fréttablaðið 23. febrú-
ar að vegna skorts á fjármun-
um yrði ekki ráðist nýbyggingu
í tengslum við NMSÍ á næstu
árum. Viðræður við Reykjavíkur-
borg og einkafjárfesti um nátt-
úrugripasýningu Perlunni var þá
á lokastigum, að hans sögn.
svavar@frettabladid.is
Vonar að aðfinnslur
hreyfi við ráðherra
Forstöðumaður Náttúruminjasafnsins vonar að niðurstaða Ríkisendurskoðunar
verði til þess að stjórnvöld bregðist við neyðarlegri stöðu. Ríkisendurskoðun telur
að leggja megi safnið niður að óbreyttu enda uppfylli það ekki lögbundnar skyldur.
Í SKÚFFUNNI Niðurlæging Náttúruminjasafnsins er áratuga löng saga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ég hef
enn von um
að samstarf
megi takast
um myndar-
lega náttúru-
fræðisýningu
í Perlunni, en klukkan
tifar og það má ekki
dragast mikið lengur að
taka ákvörðun um það.
Hilmar J. Malmquist,
forstöðumaður NMSÍ
SAMGÖNGUR Ful ltrúar frá
Bremen ports koma til Íslands
nú í maí til að fylgja eftir ýmiss
konar rannsóknum og samskipt-
um, varðandi uppbyggingu stór-
skipahafnar í Finnafirði. Þetta
kemur fram í fundargerð sveit-
arstjórnar Langanesbyggðar þar
sem segir að oddviti og sveitar-
stjóri hafi farið yfir stöðu máls-
ins.
„Meðal annars verður farið
í uppsetningu á veðurstöðvum
og jarðvegsrannsóknir fram-
kvæmdar en þessir liðir frest-
uðust í vetur vegna veðurs. Þeir
munu funda með ýmsum aðilum á
Íslandi vegna verkefnisins,“ segir
nánar um komu fulltrúa Bremen-
ports.
Fulltrúi minnihluta L-listans
gerði athugasemd við það að gögn
hefðu ekki fylgt með þessum lið á
fundinum.
„Einnig leggur L -listinn
áherslu á að þriggja manna nefnd
verði skipuð um þetta gríðarstóra
verkefni,“ segir í bókun.
Bremenports heldur áfram athugunum vegna stórskipahafnar við Langanes:
Höfn í Finnafirði enn á borðinu
FINNAFJÖRÐUR Setja á upp veður-
stöðvar og rannsaka jarðveg.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
A
-0
8
9
C
1
7
D
A
-0
7
6
0
1
7
D
A
-0
6
2
4
1
7
D
A
-0
4
E
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K