Fréttablaðið - 20.05.2015, Síða 25

Fréttablaðið - 20.05.2015, Síða 25
KYNNING − AUGLÝSING Vörubílar og vinnuvélar20. MAÍ 2015 MIÐVIKUDAGUR 3 Helga segir margt hafa breyst í út-lánastarfsemi á síðustu árum, sér-staklega hefur sveigjanleiki auk- ist og viðskiptavinir hafa því mun meira val en áður. „Nú geta einstaklingar valið á milli óverðtryggðra bílalána eða bíla- samninga á breytilegum eða föstum vöxt- um. Lánshlutfall getur verið allt að 80% af kaupverði og lánstími 7 ár en það fer þó eftir ástandi og aldri farartækisins. Ein- staklingar eru í auknum mæli að kjósa hefðbundin bílalán. Fyrirtækjum bjóð- ast sérhæfðari vörur svo sem rekstrar- leiga og birgðafjármögnun nýrra og not- aðra bíla. Lánshlutfall og lánstími í fyrir- tækjafjármögnun getur verið breytilegur eftir aðstæðum og vörum enda er líftími atvinnutækja mislangur. Afborganir geta tekið mið af árstíðabundnum sveiflum í rekstri þannig að við teljum okkur vera að bjóða viðskiptavinum okkar mjög góða vöru. Fyrirtækin eru yfirleitt að taka hefð- bundna kaupleigusamninga.“ Helga segir að vextir séu mismunandi eftir vörum og viðskiptasambandi. Vörðu- félagar fái t.d. betri kjör sem þýðir að bæði vextir og lántökugjöld eru þá lægri. „En þjónustan er líka stór hluti af tilboðinu og ákvarðanir um fjármögnun þurfa að byggjast á faglegu mati sem við getum að- stoðað við.“ Markaðurinn að styrkjast Helga segir greinilegt uppstig á markað- inum enda sé undirliggjandi mikil endur- nýjunarþörf. Aldur bíla og tækja í umferð sé orðinn ansi hár og því þurfi það ekki að koma á óvart að fyrirtæki og einstakling- ar séu í auknum mæli að endurnýja bíl- inn eða tækið, enda veruleg rekstrarhag- ræðing í því þar sem nýir bílar séu í dag mun ódýrari í rekstri. „Hvað varðar fyrir- tækin þá hafa bílaleigurnar verið mjög sterkar síðustu ár en við erum líka að sjá aukningu í öðrum atvinnutækjum eins og sendibílum, lyfturum, gröfum og krönum og ýmsum landbúnaðartækjum.“ Aðlögun að breyttum þörfum Helga segir einnig að breytingar hafi orðið á óskum viðskiptavina. „Við verðum mun meira en áður vör við áhuga viðskiptavina á umhverfisvænni bílum, sala á svoköll- uðum grænum bílum hefur aukist mikið og við bjóðum sérkjör á fjármögnun þeirra enda er samþætting umhverfissjónarmiða við almennan rekstur bankans hluti af samfélagslegri ábyrgð okkar. Þá erum við farin að fjármagna kaup á eldri bílum en áður en staðreyndin er sú að meðal aldur bílaflotans er orðinn nærri 13 ár og við höfum aðlagað okkar vörur að því.“ Sérstaða Landsbankans byggist á afburða þjónustu Bíla- og tækjafjármögnun Landsbank- ans er til húsa að Borgartúni 33 í Reykja- vík. Í því húsi er einnig Fyrirtækjamiðstöð Landsbankans sem sinnir þjónustu við smá og meðalstór fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu. Helga segir að þetta skipti miklu þegar kemur að þjónustunni: „Í Borgar- túninu getum við boðið minni og meðal- stórum fyrirtækjum heildarlausnir á sviði fjármögnunar, allt á einum og sama staðn- um. Þetta er mjög þægilegt fyrir okkar við- skiptavini. Við búum líka svo vel,“ segir Helga, „að vera með öflugt útibúanet um allt land og viðskiptavinir okkar utan höfuð borgarsvæðisins geta alltaf sótt ráð- gjöf í sitt útibú, hvar sem er á landinu!“ Helga segir að sérstaða Landsbank- ans felist í góðri þjónustu, stærð á markaði og nánum tengslum við samstarfsmenn í bílaumboðunum og á bílasölunum. „Þetta er geysilegur styrkur fyrir okkur og okkar viðskiptavini og tryggir faglega og skil- virka starfsemi. Starfsmenn B&T hafa verið lengi í „bransanum“ og hafa mikla þekkingu og reynslu sem við byggjum á og hefur skapað okkur traust á markaði. Við hlustum á okkar viðskiptavini og bjóðum vörur og þjónustu sem taka mið af þörfum þeirra hverju sinni.“ Sérhæfing í bíla- og tækjafjármögnun Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans (B&T) sérhæfir sig í fjármögnun til fyrirtækja og einstaklinga á hvers kyns farartækjum, til dæmis við kaup á nýjum og notuðum bílum, mótorhjólum, ferðavögnum og öðrum vélum og atvinnutækjum. Helga Friðriksdóttir, forstöðumaður B&T, segir Landsbankann byggja sérstöðu sína á þekkingu starfsmanna og góðum kjörum til viðskiptavina sinna. Helga Friðriksdóttir, forstöðumaður Bíla- og tækjafjármögnunar Landsbankans. Bíla- og tækjaármögnun Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Landsbankinn býður fyrirtækjum hagkvæma ármögnun á bifreiðum, atvinnutækjum, vélum og ýmsum rekstrartækjum. 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 D A -1 7 6 C 1 7 D A -1 6 3 0 1 7 D A -1 4 F 4 1 7 D A -1 3 B 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.