Fréttablaðið - 20.05.2015, Page 26
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 20154
Það var skemmtileg heimsókn sem blaðamaður fór í til RAG Import – Export að Hjalla-
hrauni 4 í Hafnarfirði en þar hitti
hann Rafn A. Guðjónsson, sem er
reyndar alltaf kallaður Rabbi. Rabbi
er búinn að vera í innflutningi á
vélum og tækjum síðastliðin tutt-
ugu og fimm ár.
Það eru spennandi tímar fram
undan hjá Rabba. „Það eru nýjar
vélar og tæki á leiðinni til landsins
og þar má meðal annars nefna belta-
gröfur frá Sunward, landbúnaðar-
tæki frá Fliegl, haugsugur og fleira.
Enn fremur eru nýir malarvagnar
frá Fliegl á leiðinni. Svo er ég að láta
smíða nýja rútu sem er byggð upp
úr Mercedes Benz 519 (nýr, árgerð
2015) en hún verður 22 manna með
búnaði af bestu gerð. Í Frakklandi er
verið að smíða fyrir RAG sérhann-
aðan salernisvagn sem er algjörlega
sjálfstæður og þarf ekki að tengjast
veitum,“ segir Rabbi.
Selur notuð og ný tæki erlendis
Að sögn Rabba hefur það verið að
koma mjög sterkt inn hjá honum að
selja bæði notuð og ný tæki erlend-
is sem koma aldrei til Íslands. „Þetta
er sérstaklega áhugavert, meðal ann-
ars var ég að selja ný tæki sem fara til
Danmerkur frá Fliegl og gamla Benz
Unimog-bíla frá Evrópu til Banda-
ríkjanna.“
Blaðamaður var nú orðinn veru-
lega áhugasamur um að fá að vita
meira um hvað væri fram undan hjá
Rabba. Tjáði hann mér að það sem
hann biði hvað mest eftir væri hve-
nær fyrsti „push-off“ vagninn (mal-
arvagn) frá Fliegl kemur til lands-
ins en það hefur orðið algjör bylting
í þeirri tækni. „Þessir vagnar hafa
slegið í gegn í Evrópu enda er meg-
inmunurinn á „push-off“ og venju-
legum vagni sá að sá fyrrnefndi ryður
efninu úr sér og er mun fljótari að
losa en hefðbundinn sturtuvagn.
Enn fremur er aldrei nein hætta á
að velta í losun eins og með sturtu-
vagni. Hægt er að sjá myndband af
slíkri veltu á heimasíðunni Rag.is,
sem ég hvet alla til að skoða. Einn-
ig verður gaman að fá fyrsta svo-
kallaða „thermo“-vagninn heim en
hann er sérstaklega ætlaður fyrir
malbik. Reglum var breytt í Þýska-
landi um áramótin og er bannað að
malbika stofnæðar nema notaðir séu
„thermo“-vagnar sem halda malbiki
mun heitara en venjulegir vagnar og
þar eru Fliegl í fararbroddi í dag,“ út-
skýrir Rabbi.
Vantar tæki á söluskrána
Blaðamaður hefur heyrt að Rabbi sé
búinn að vera að flytja mikið inn af
notuðum tækjum síðastliðin tvö ár
og var hann beðinn um að segja frá
því. Hann svaraði því til að eins og
margir viti þá fór mikið út af tækjum
í kjölfar hrunsins og nú væri ein-
faldlega kominn tími til að kaupa
inn tæki aftur. Enn vantar mikið á
söluskrána hjá honum þó að hún sé
sú stærsta á landinu. „Ég leitast allt-
af við að finna besta verðið fyrir við-
skiptavini mína og eru þeir alltaf
upplýstir um hvað tækjasalinn vill fá
fyrir tækið erlendis. Svo er það mitt
að þjarka verðið niður sem svo kemur
mínum viðskiptavini til góða. Ég tek
fast verð fyrir þjónustu mína og inni-
falið í því er að finna tækið, koma
því heim og sleppi ég aldrei takinu
fyrr en tækið eða bíllinn er kominn
á númer og klár í notkun. Ferlið er
galopið og ekki hægt að gera tilboð í
bíla og tæki á ruglverðum frá Evrópu
þar sem allar upplýsingar eru fyrir-
liggjandi á netinu – á erlendum sölu-
síðum. Í rúm tuttugu ár hef ég varið
miklum tíma í að kaupa fyrir menn
tæki og tól og skoða markaðinn, bara
til að spara fyrir viðskiptavini mína
og þannig get ég verið samkeppn-
isfær við flesta. Auðvitað á ég orðið
mikið af góðum viðskiptavinum í
Evrópu sem ég get treyst hundrað
prósent en það eru líka býsna marg-
ir komnir í svörtu bókina mína – það
eru alls staðar braskarar sem þarf að
varast.“
Varlegar farið í fjárfestingar
Blaðamaður spurði Rabba hvort
hann teldi að miklar breytingar
hefðu orðið á markaðnum síðustu
árin. „Já, ég tel að það hafi orðið.
Helst finnst mér að menn fari mun
varlegar í allar fjárfestingar, sem er af
hinu góða og menn eiga undantekn-
ingarlaust fyrir þeim tækjum sem
þeir eru að kaupa eða eru komnir
með trygga vinnu fyrir þau. Þetta er
af hinu góða og vonandi kemur 2007
aldrei aftur,“ segir
Rabbi. Hefur hann
ei n hver lok a-
orð fyrir okkur?
„Já, bara að það
hefur verið
mér mik il
ánægja og
heiður að
fá að vinna
me ð öl lu
þessu fólki sem ég hef unnið fyrir í
gegnum árin, hvort sem það hafa
verið bændur, verktakar eða ein-
staklingar.“
RAG Import – Export sinnir öllum
Viðskiptavinir RAG Import – Export koma víða að, eru meðal annars verktakar, bændur og bæjarfélög. Sölustjóri fyrirtækisins segir
spennandi tíma vera fram undan og nýjar vélar og tæki af alls kyns tagi á leiðinni til landsins.
Rafn A. Guðjónsson hjá RAG Import – Export hefur 25 ára reynslu af innflutningi á vélum
og tækjum. MYND/GVA
Fliegl „push-off“-
malarvagn kemur von
bráðar til landsins.
Tæki í sérflokki frá RAG.IS
Helluhraun 4, Hafnarfirði
s. 565 2727 • gsm 892 7502 • www.rag.is
Rafn A. Guðjónsson
Sunward Beltagröfur á kyningar- verði
Fliegl
Thermo í malbikið
Flieg
Álvagnar
Fliegl
Beyslisvagnar
Fliegl
Vélavagnar
Fliegl
PUSH-OFF
Sala - Innflutningur - Útflutningur
Yfir 300 skráningar á heimasíðu.
Vantar alltaf góð tæki á skrá. 25 árareynsla
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
A
-2
6
3
C
1
7
D
A
-2
5
0
0
1
7
D
A
-2
3
C
4
1
7
D
A
-2
2
8
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K