Fréttablaðið - 20.05.2015, Síða 27
KYNNING − AUGLÝSING Vörubílar og vinnuvélar20. MAÍ 2015 MIÐVIKUDAGUR 5
Bíla- og tækjafjármögnun Arion banka hóf starfsemi í september árið 2012. Deild-
in bauð upp á nýjar leiðir í bíla- og
tækjafjármögnun sem ekki höfðu
verið í boði áður hjá bankanum.
Þörfin var greinilega mikil enda
hefur verið mikil og góð stígandi
í starfsemi deildarinnar í takt við
aukin umsvif á markaði, að sögn
þeirra Jóns Ragnarssonar og Freys
Gústavssonar hjá bíla- og tækja-
fjármögnun Arion banka.
„Við leggjum áherslu á að veita
hraða og skilvirka þjónustu til
fyrirtækja og einstaklinga í at-
vinnurekstri. Allir eru velkomnir
til okkar en viðskiptavinir Arion
banka njóta vitanlega sérstakra
kjara,“ segir Jón.
Rey nslumik lir starfsmenn
starfa innan deildarinnar sem
sinnir viðskiptavinum á öllu land-
inu. „Við eigum mjög gott samstarf
við útibú bankans um land allt og
tryggjum þannig hraða og góða
þjónustu,“ bætir Freyr við.
Kaupleigusamningar vinsælastir
„Við reynum ávallt að koma til
móts við þarfir viðskiptavina
okkar. Til dæmis bjóðum við
þeim sem búa við árstíðabund-
ið tekjuflæði að stýra greiðslum
á þann hátt sem hentar þeirra
rekstri. Þannig geta þeir kosið að
greiða hlutfallslega hærri greiðslur
þann hluta ársins sem tekjur eru
meiri en lægri greiðslur þegar
tekjur eru minni,“ útskýrir Freyr.
Jón segir kaupleigusamninga
Arion banka langvinsælasta en
þeir séu sérstaklega ætlaðir til
fjármögnunar á vélum og tækj-
um til atvinnurekstrar.
Þegar um kaupleigusamning
er að ræða er Arion banki skráð-
ur eigandi tækisins á samnings-
tímanum, en við lok samnings-
tíma færist eignarhald tækisins
til leigutaka.
„Einn af kostum kaupleigu-
samninga er að við getum af-
greitt málin hraðar enda þurfa
samningarnir ekki að fara í gegn-
um þinglýsingu hjá sýslumanni,“
segir hann.
„Arion banki fjármagnar allt
að 80 prósent af kaupverði tæk-
isins fyrir utan virðisaukaskatt.
Þegar um er að ræða bifreiðar
getur leigutími verið allt að 84
mánuðir,“ útskýrir Jón og bend-
ir á að önnur atvinnutæki séu
fjármögnuð ýmist til lengri eða
skemmri tíma. „Þá ræðst leigu-
tíminn af notagildi og endingar-
tíma tækisins.“
Endurnýjun er tímabær
Jón og Freyr segja mikla þörf
fyrir endurnýjun atvinnutækja
enda geti rekstur á eldri tækjum
og bílum verið óhagstæður. „Oft
heyrum við af því að sparnaður í
formi olíukostnaðar og viðhalds-
kostnaðar á nýlegum tækjum
geti staðið undir hluta afborgana
kaupleigusamninga og getur því
verið mikil hagkvæmni í því fólg-
in að endurnýja tækjakost,“ segir
Freyr.
Þeir sem huga að kaupum á at-
vinnutækjum geta haft samband
við starfsfólk bíla- og tækjafjár-
mögnunar Arion banka í síma
444-7700 eða með því að senda
tölvupóst á netfangið taeki@ar-
ionbanki.is.
Auk þess má finna nánari
upplýsingar á vefsíðu bankans,
www.arionbanki.is.
Hröð og skilvirk fjármögnun
Bíla- og tækjafjármögnun Arion banka veitir sveigjanlega þjónustu sem sniðin er að þörfum hvers viðskiptavinar. Aukin eftirspurn
er eftir þjónustu deildarinnar í takt við auknar framkvæmdir í landinu. Lögð er áhersla á hraða og skilvirka þjónustu.
Freyr Gústavsson og Jón Ragnarsson hjá bíla- og tækjafjármögnun Arion banka. MYND/STEFÁN
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-
1
1
1
3
Hagkvæm
tækjafjármögnun
Við bjóðum kaupleigu og tækjalán til
að fjármagna kaup á nýjum og notuðum
atvinnubílum og tækjum til atvinnu-
rekstrar. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu
njóta hagstæðra kjara.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar
í síma 444 8800 eða sendu fyrirspurn á
taeki@arionbanki.is.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Arion banka, arionbanki.is.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
A
-4
8
C
C
1
7
D
A
-4
7
9
0
1
7
D
A
-4
6
5
4
1
7
D
A
-4
5
1
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K