Fréttablaðið - 19.01.2015, Page 6

Fréttablaðið - 19.01.2015, Page 6
19. janúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 20% afsláttur Lyfjaauglýsing Allar stærðir og styrkleikar Gildir til 31. Janúar Námskeið fyrir vinnuverndarfulltrúa (öryggisverði, - trúnaðarmenn og mannauðsstjóra) Vinnuvernd ehf. og Mannvit hf. standa fyrir námskeiði sem ætlað er vinnuverndarfulltrúum. Námskeiðið, sem stendur í tvo daga, fer fram í Reykjavík dagana 3. og 4. febrúar milli kl. 8:30-15:30. Skráning fer fram á www.vinnuvernd.is VINNUVERNDehf Viðurkenndir þjónustuaðilar á sviði öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum. 1. Þrjú útgerðarfélög í Grímsey eru skuldum vafi n. Hvað skulda þau samanlagt mikinn pening? 2. Hvaða íslenski fatahönnuður var valinn til að hanna tösku fyrir tísku- risann Bvlgari? 3. Þeir sem verða fi mmtugir árið 2015 fá óvenjulega afmælisgjöf. Hver er hún? SVÖR 1. Þrjá milljarða króna. 2. Anita Hirlekar. 3. Skimunarpróf fyrir blóði í hægðum. LANDBÚNAÐUR Kúabóndi á Suðurlandi gefur lítið fyrir nýja reglugerð sem gerir ráð fyrir að básum verði útrýmt í fjósum og að öll ný fjós verði svo- nefnd lausagöngufjós. Matvælastofnun greindi fyrir helgi frá reglu- gerð sem byggir á nýjum lögum um velferð dýra, auk laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Fjölmörg nýmæli eru í reglugerðinni, þar á meðal að leggja skuli af básahald nautgripa innan tuttugu ára og að öll ný fjós skuli vera lausagöngufjós. Þá er bændum gert að koma upp sérstökum burðarstíum innan tíu ára. Daníel Magnússon, bóndi í Akbraut í Holtum í Rangárþingi ytra, er með nýtt fjós og er verulega ósáttur við nýju reglugerðina. „Kýrnar hafa ekki verið spurðar að því hvort þær vilja liggja á þessum eða þessum nýtískubásum,“ segir hann. Hjá honum geti kýr valið um að vera á legubásum eða hefð- bundnu básunum gömlu. Reynslan sé að þær velji gömlu básana þar sem þær séu í friði og geti étið sinn mat. „En á hinum básunum eru þær alltaf flöktandi og hafa aldrei sinn bás og þetta öryggi.“ Daníel kveðst ósáttur við Matvælastofnun. „Mér finnst hún vera farin að stefna í að láta okkur bændur stunda hálfgert dýraníð með þessari reglugerð um aðbúnað á þessum básum. Kýr sem eru komnar nálægt burði, þær vilja ekki liggja á þessum nýtískubásum,“ bætir hann við. - mhh Í FJÓSINU Daníel Magnús- son bóndi er verulega ósáttur við nýja reglugerð Matvæla- stofnunar. Segir kýrnar ekki hafa verið spurðar að því hvort þær vilji liggja á básum: Óánægður með básareglugerð FR ÉT TA BL AÐ IÐ /M H H BANDARÍKIN, AP Með því að setja fram áskorun um skattahækkanir á hátekjufólk og auðkýfinga setur Obama repúblikana, sem eru með meirihluta í báðum þingdeildum, í þá stöðu að þurfa að verja hags- muni hinna ríku gegn hagsmunum annarra. Fram hefur komið að hann vilji hækka fjármagnstekjuskatt á þá sem hæstu tekjurnar hafa. Enn fremur vill hann afnema undan- þágur á erfðaskatti og leggja ný gjöld á stærstu fjármálafyrir- tækin. Með þessu fái ríkissjóður tekjur, sem nota megi til að fjár- magna skattaafslátt og fleira sem gagnast myndi miðtekjufólki. Embættismenn segja tekjurnar fyrir ríkissjóð geta numið 320 milljörðum dala næsta áratuginn, en það samsvarar rúmlega 42.000 milljörðum króna. Reikna má með því að þessar hugmyndir verði þær sem einna harðast verður deilt um í banda- rískum stjórnmálum á þeim tveimur árum sem eftir eru af seinna kjörtímabili Obama. Um leið setur Obama tóninn fyrir for- setakosningarnar árið 2015, þar sem arftaki hans á forsetastól verður valinn. Repúblikanar eru þegar farnir að andmæla harðlega þessum hugmyndum, þótt ræðan sé enn óflutt: „Að slengja meiri skatta- hækkunum framan í bandarísk smáfyrirtæki, sparifjáreigendur og fjárfesta gerir ekkert annað en að ónýta ávinning þeirrar skatta- stefnu sem hefur hjálpað til við að styrkja efnahaginn, hvetja til sparnaðar og skapa ný störf,“ hafa fjölmiðlar eftir Orrin G. Hatch, formanni fjármálanefndar öld- ungadeildar Bandaríkjaþings. Ekki er búist við að Obama til- kynni neina meiriháttar stefnu- breytingu í utanríkismálum, þótt almennt sé reiknað með að hann noti tækifærið til þess að fá þing- ið ofan af því að leggja nýjar refsi- aðgerðir á Íran, nú þegar samn- ingaviðræður við írönsk stjórnvöld um kjarnorkumál standa sem hæst. Þá er reiknað með að hann muni verja ákvörðun sína um að taka upp stjórnmálasamband við Kúbu. Stefnuræða forseta Bandaríkj- anna er jafnan flutt í janúar og hefur verið einn helsti vettvang- ur forsetans til að kynna áform sín þjóðinni. Undanfarin ár hefur áhorf á ræðuna þó minnkað jafnt og þétt. gudsteinn@frettabladid.is Vill hækka skatta á auðugasta fólkið Barack Obama Bandaríkjaforseti hyggst nota hina árlegu stefnuræðu sína á morgun til að hvetja þingið til að hækka skatta á ríkustu einstaklingana í Banda- ríkjunum. Enginn reiknar með að þingmeirihluti repúblikana fallist á þetta. BARACK OBAMA Repúblikanar hafa tekið illa í hugmyndirnar um skattahækkanir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP PAKISTAN, AP Ólíkir stjórnmála- og trúarhópar mótmæltu í Pakistan í gær fjórða daginn í röð því sem kallað er guðlast franska tímaritsins Charlie Hebdo með birtingu á skopmyndum af Múhameð spámanni. Fjölmennustu mótmælin áttu sér stað í borginni Lahore, þar sem yfir tíu þúsund fylgismenn harðlínusamtakanna Jamaat-ud-Dawa kölluðu „Niður með Charlie Hebdo“ og „Dauði yfir guðlastarana“. Hafiz Mohammad Seaeed, leiðtogi Jamaat-ud-Dawa, hvetur leiðtoga múslimskra landa til að þrýsta á Sameinuðu þjóðirnar um að gera guð- last í hvað formi sem er að alþjóðlegum glæp. - óká Teikningar Charlie Hebdo af Múhameð spámanni vekja úlfúð: Trúarhópar mótmæla í Pakistan BÁLREIÐIR Stuðnings- menn trúar- hópsins Jamaat- ud-Dawa mótmæla myndbirting- um í franska skoptímaritinu Charlie Hebdo í Lahore í Pakistan í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TÆKNI Fyrirtæki undir fána samstarfsverk- efnisins Ocean Excellence sömdu í fyrra við fyrirtæki í Dúbaí um að gera tillögur vegna endurskipulagningar á þurrkun á ansjósum og sardínum þar í landi. Samband komst á við áhugasama kaup- endur tæknilausna fyrirtækjanna á sjávar- útvegssýningunni í Brussel í fyrra þar sem Ocean Excellence kynnti nýja færanlega þurrkunarlausn. Þá eru nokkur önnur stór verkefni í burðarliðnum. Stofnað var til verkefnisins árið 2012 en markmið þess er að þróa og selja tækni- lausnir fyrir þurrkun matvæla á erlendum vettvangi. Fyrirtækin Mannvit, Samey og Haustak standa að verkefninu en Haustak er í eigu Þorbjarnar og Vísis í Grindavík. Fyrirtækin hófu samstarf á vettvangi Íslenska sjávarklasans þar sem rætt hafði verið um tækifæri til að koma íslenskri þekkingu í fullvinnslu aukaafurða betur á framfæri erlendis. Víða um heim er lítið sem ekkert nýtt af ýmsum aukaafurðum fisks og því töldu fyrir tækin að tækifæri kynni að vera í frek- ari markaðssetningu íslenskrar þekkingar á þessu sviði, ekki síst tækni til þurrkunar matvæla. - shá HJALLAR Sífellt eru þróaðar nýrri og betri aðferðir við að þurrka matvöru. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Samstarfsverkefnið Ocean Excellence skilaði íslenskum fyrirtækjum viðskiptasamböndum í Dúbaí: Þróa sardínu- og ansjósuþurrkun í Dúbaí VEISTU SVARIÐ? 320 milljarða dala telja embættis menn að ríkis- sjóður Bandaríkjanna geti haft upp úr krafsinu. 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 E C -F A 7 8 1 7 E C -F 9 3 C 1 7 E C -F 8 0 0 1 7 E C -F 6 C 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.