Fréttablaðið - 19.01.2015, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 19.01.2015, Blaðsíða 46
19. janúar 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 22 BAKÞANKAR Berglindar Pétursdóttur „Hva, ertu eitthvað pirruð eða?“ Á þessum orðum hófst fyrsta símtal vinnudagsins. Hafði stuttu áður sent hringjanda póst þar sem ég gerði grein fyrir því hvernig mætti bæta samskipti okkar við ákveðinn viðskiptavin, spara tíma fyrir okkur og peninga fyrir hann. Ég gerði mér grein fyrir möguleikanum á því að þetta yrði lesið með ákveðnum leiðinda- tón í huganum svo ég setti broskall aftast í póstinn, til öryggis. Bros kallsins var augljóslega ósannfærandi með öllu. ÉG vissi ekki alveg hverju ég ætti að svara. Já, ég var frekar pirruð, núna. Aðallega af því að símtalið byrjaði með þessari ömurlegu spurningu. Áður en ég tók upp tólið var ég ekki sérstaklega gröm. EÐA hvað. Jú reyndar var ég kannski frekar pirruð. Það er ýmislegt sem pirrar mig þessa dagana. Til dæmis launamunur kynjanna, feðraveldið, heimskt fólk, íslensk stjórnvöld, Sig- mundur Davíð, matarskattur, Sigmundur Davíð, hálka, fáfróðir rasistar, sjomlamenning, ofbeldi gegn konum, ofbeldi gegn körlum, ofbeldi gegn börnum, ofbeldi gegn dýrum, Sigmundur Davíð, fólk sem kemst á þing þrátt fyrir litla sem enga heilastarfsemi, endalausar uppsprettur leiðinda á inter- netinu, úldna grænmetið í verslunum, Framsóknarflokkurinn, símtöl sem byrja á spurningunni „ertu eitthvað pirruð eða?“, að fólk þurfi að líða fátækt á Íslandi, að fólk þurfi að líða fátækt annars staðar, innflutningstollar, hræðsla við samkyn- hneigða og fréttir af fólki sem missir fullt af kílóum. ÞAÐ sem er sérstaklega pirrandi er líka það að í hvert skipti sem eitthvert þess- ara atriða virðist vera að þokast í rétta átt heyrast háværar raddir almennings á kom- mentakerfum og öll von manns sturtast ofan í klósettið. ÞEGAR ég byrjaði að skrifa bakþanka hafði ég það að leiðarljósi að skrifa um eitt- hvað skemmtilegt. Slökkt hefur verið á leiðarljósinu. Ég sigli nú blindandi í myrkri endalausra íslenskra leiðinda sem hafa náð tökum á mér og eru að éta mig lifandi. SVO að já, ég er gjörsamlega búin á því af pirringi. Enginn broskall. TÓNLIST ★★★★ In the Eye of the Storm Mono Town RECORD RECORDS In the Eye of the Storm er fyrsta breiðskífa hljómsveit- arinnar Mono Town sem hefur á undanförnum árum spilað nokkuð víða og fengið fína áhlustun í útvarpi. Sveit- in er skipuð þremur mönn- um á fertugsaldri sem fá þó til liðs við sig talsvert af aðstoðarfólki við gerð skíf- unnar. Þar á meðal er hinn margverðlaunaði kammer- kór Hallgrímskirkju, hvorki meira né minna. Mikill metnaður ein- kennir verkið og greinilegt er að mikil vinna hefur verið lögð í þennan frumburð. Flutningurinn sjálf- ur er virkilega fagmannlegur og upptökustjórn til fyrirmyndar – svo mikið til fyrirmyndar að In the Eye of the Storm dansar á línunni að vera „óver- pródúseruð“. Tónlistin sem hljómsveitin flytur og aðhyllist greinilega er bresk indírokktónlist sem var vinsæl- ust á 10. áratug síðustu aldar, sennilega um það leyti sem hljómsveitarmeðlimir voru að vaxa úr grasi. Þetta eru alls ekki frumlegustu tónsmíðar í sögu mannkyns og gæti allt eins verið plata með sveit á borð við Manic Street Preachers, Stereophonics eða ef til vill hinni vanmetnu Starsailor. Rödd Bjarka Sigurðssonar, söngvara og helstu driffjaðrar sveit- arinnar, sver sig í ætt breskra rokksöngvara þess tíma – einhvers konar Liam Gallagher Íslands … og er það alls ekki illa meint. Bestu lög plötunnar eru Peacemaker, Two Bullets og Yesterday‘s Feeling. Þau eru öll einstaklega melód- ísk (eins og platan reyndar öll) og sérstaklega skemmtilegt að heyra ELO-strengjaútsetn- ingarnar í síðastnefnda laginu, sem er reyndar það lag þar sem Bjarki nær sér helst á strik með brothættri falsetturödd í við- laginu – en það viðlag er bara drullu gott. Værum við stödd á ein hverjum skítapöbb í Sheffield árið 1994 þá væri Alan McGhee búinn að „sign-a“ þessa gaura á stundinni! Fyrir þá sem vilja fá nett nostalgíu kast, eða einfaldlega fíla breska indítónlist frá síðustu öld, þá er In the Eye of the Storm frábær skífa. Textasmíðarnar mættu þó innihalda aðeins minna af „la-la-la“ (án djóks, fimm lög sem innihalda þann frasa) en annars eru flottir taktar og flottir kaflar. Sörfgítarvæbið í No More (Shall I Fear You) er til dæmis geggjað, gæti átt heima í kvikmynd eftir Tar- antino. Því miður dettur skífan aðeins niður undir lokin, þar sem er að finna sístu lögin Far Away og Can Deny. Það verður þó að teljast líklegt að þau lög hafi verið betri – þau mættu vera aðeins hrárri ef eitthvað er. Björn Teitsson NIÐURSTAÐA: Þessi plata hefði náð á topp enska vin- sældarlistans árið 1995. Bókað mál. Nokkrir slagarar og fínasti gripur sem dettur ögn niður undir lokin. Nostalgía frá 90s WEDDING RINGER KL. 5.30 - 8 - 10.20 TAKEN 3 KL. 8 - 10.30 THE HOBBIT 3 3D KL. 9 PADDINGTON ÍSL TAL KL. 5.30 PADDINGTON ENSKT TAL KL. 6 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 5.30 MOCKINGJAY– PART 1 KL. 8 WEDDING RINGER KL. 5.40 - 8 - 10.20 WEDDING RINGER LÚXUS KL. 8 - 10.20 BLACKHAT KL. 8 - 10.25 TAKEN 3 KL. 8 - 10.50 THE HOBBIT 3 3D 48R KL. 5 - 8 THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 5 PADDINGTON ÍSL TAL 2D KL. 3.30 - 5.45 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 3.30 - 5.45 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.30 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK .bio siAS M NEW YORK POST TIME m.a. BESTA MYND ÁRSINS Besti Leikari í aðalhlutverki - Bradley Cooper 6 6 8, 10:45 8, 10:20 6, 9 ÆVINTÝRALEGA SKEMMTILEG MYND FRÁ FRAMLEIÐANDA HARRY POTTER Save the Children á Íslandi MONO TOWN Bjarki Sigurðsson og bræðurnir Daði og Börkur Birgissynir skipa hljómsveitina Mono Town. FRÉTTA BLAÐIÐ/VILHELM Gwyneth Paltrow trúir á sanna ást og segist sjálf vera mjög róman- tísk. „Ég er mjög rómantísk, en ég get verið raunsæ líka,“ sagði hin 42 ára leikkona við tímaritið OK!. „Lífið er flókið og langt. Stund- um gerirðu eitthvað sem aðrir eiga eftir að fordæma og það er þeirra vandamál. Því meira sem ég lifi lífinu, því meira læri ég að dæma ekki annað fólk vegna þess sem það gerir. Flest okkar eru að reyna sitt besta,“ sagði Paltrow sem skildi við söngvarann Chris Martin í mars eftir tíu ára hjóna- band. Er rómantísk og raunsæ GWYNETH PALTROW Leikkonan reynir að dæma ekki annað fólk. Jennifer Lawrence segist endi- lega vilja leika í fleiri myndum um Hungurleikana. Þessa dagana er hún að leika í fjórðu myndinni, The Hunger Games: Mockingjay – Part II. Henni finnst erfitt að geta ekki eytt meiri tíma með mótleik- urum sínum Liam Hemsworth og Josh Hutcherson. „Ég á líklega eftir að klára eina töku fyrir Hungurleikana. Við eigum bara eitt atriði eftir og ég er alls ekki ánægð með það. Ég myndi pottþétt leika í fleiri myndum. Liam er að leika í mynd í Ástralíu í tvo mánuði. Það er lengsta tímabilið sem við þrjú höfum verið aðskilin.“ Pottþétt fl eiri Hungurleika JENNIFER LAWRENCE Vill halda áfram að leika í Hungurleikunum. Patrick Stewart og Ian McKellen munu líklega ekki leika í hinni væntanlegu X-Men: Apocalypse sem kemur út á næsta ári. Hún fjallar um persónur þeirra, Dr. X og Magneto, þegar þær voru yngri. „Ég komst að fleiru um myndina og þar verður einblínt á fyrri líf allra okkar persóna. Þess vegna held ég að við munum ekki koma við sögu,“ sagði Patrick Stewart. James McAvoy og Michael Fassbender léku yngri útgáfur Dr. X og Magneto í X-Men: Days of Future Past og endurtaka væntan lega leik- inn í nýju mynd- inni. Leika ekki í næstu X-men PATRICK STEWART 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 E C -F A 7 8 1 7 E C -F 9 3 C 1 7 E C -F 8 0 0 1 7 E C -F 6 C 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.