Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.01.2015, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 19.01.2015, Qupperneq 17
Fáguð og vönduð nytjalist,“ segir Þuríður Ósk Smáradóttir þegar hún er beðin um að lýsa eigin stíl en hún er keramikhönnuður og einn meðlima Kaolin gallerýs á Skólavörðustíg. Hún segist snemma hafa ákveðið hvað hún ætl- aði að verða. „Ég var, alveg frá því ég var lítil stelpa, ákveðin í að verða keramiker og því lá leiðin eftir stúdents- próf í Kvennó til Bandaríkjanna, þar sem ég lærði keramik í Gonzaga-háskóla,“ segir Þuríður. „Þegar ég útskrifaðist flutti ég til Portland í Oregon þar sem ég fékk vinnu hjá keramikfyrir- tækinu Georgies Ceramics Co. Það var mikil og góð reynsla þar sem ég lærði margt um framleiðslu á leir og glerungum. Samhliða því var ég einnig með vinnustofu og vann sem keramiker.“ Þuríður flutti aftur heim til Íslands árið 2006 og tók þá fjögurra ára hlé frá keramikinu. Hún hófst þó aftur handa og tók þátt í Ráðhúsmarkaði Hand- verks og hönnunar 2013 og hefur verið hluti af Ka- olin gallerý í ár. „Síðustu ár hef ég eingöngu unnið nytjalist,“ segir hún. „Uppáhaldsverkfærið mitt er renni- bekkurinn og ég renni allt sem ég geri. Hver einasti hlutur er handrenndur og því engir tveir eins. Þannig hefur hver hlutur sinn persónuleika. Það að sameina fallega skreytt form sem líka hafa nota- gildi er það sem gleður mig mest í vinnustofunni.“ Hvert sækirðu innblástur? „Innblásturinn kemur alls staðar að og oft veit ég ekki hvaðan hann kemur fyrr en löngu seinna þegar einhver bendir mér á það. En það sem vek- ur áhuga minn eru gjarnan gamlir hlutir, náttúran, tónlist, aðrir listamenn, tilfinningar og svo leirinn sjálfur og hans takmarkanir og möguleikar. Ég á mér marga uppáhaldshönnuði, frábæra listamenn og handverksfólk sem ég dáist að,“ segir Þuríður. Nánar má forvitnast um hönnun hennar á vefsíðunni www.thuridurosk.is. Munina selur hún meðal annars í Kaolin gallerý og á Kjarvals- stöðum. ■heida@365.is RENNIBEKKURINN AÐALVERKFÆRIÐ NYTJALIST Þuríður Ósk Smáradóttir ákvað að verða keramikhönnuður þegar hún var lítil stelpa. Hún lærði fagið í Bandaríkjunum og er nú einn hönnuða Kaolin gallerýs á Skólavörðustíg. Hún sækir innblástur í leirinn sjálfan. KERAMIK Þuríður Ósk ákvað snemma að verða keramikhönn- uður. Hún er einn með- lima Kaolin gallerýs og heldur úti vefsíðunni www.thuridur osk.is. SMOKKALJÓS Þessar glerljósakrónur eru hannaðar af tékkneska hönnuðinum Jan Vacek í líki smokka. Smokkaljósin eru hönnuð fyrir Clarté og eru mótuð í glært og litað gler. Hægt er að hengja upp eitt ljós sér eða mörg ljós saman. 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 E C -9 C A 8 1 7 E C -9 B 6 C 1 7 E C -9 A 3 0 1 7 E C -9 8 F 4 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.