Fréttablaðið - 19.01.2015, Page 18

Fréttablaðið - 19.01.2015, Page 18
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Á meðan hönnunarvikan í Stokk-hólmi stendur yfir í byrjun febrúar munu finnskir og íslensk- ir hönnuðir búa saman í íbúð í miðbæ borgarinnar sem verður innréttuð með hönnun beggja landa. Verkefnið er sam- starfsverkefni með Design Forum Fin- land og kallast We live here. Markmiðið með verkefninu er að kanna nýjar leiðir til þess að kynna norræna hönnun á alþjóðlegum vettvangi. „Finnum og Ís- lendingum kemur yfirleitt vel saman og mín reynsla er að sú að þeir krunki sig oft saman á norrænum ráðstefnum. Það er einhver tenging á milli þessara þjóða, bæði í menningu og í hönnunar- senunni,“ segir Sari Peltonen, verkefna- stjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands og We live here-verkefnisins. „Undanfarin þrjú ár hafa þessar tvær þjóðir verið að deita ef hægt er að kalla það svo. Við vorum með á sýningu á ís- lenskri hönnun í Finnlandi og svo komu finnskir hönnuðir hingað á Hönnunar- Mars. Einnig hafa hönnuðir verið að fara til skiptis á sýningar í löndunum tveimur. Nú fannst okkur vera kominn tími til að taka sambandið yfir á næsta stig og fara að búa saman,“ segir Sari í léttum tón en leigð var íbúð sem verður heimili hönnuðanna á meðan á hönn- unarvikunni stendur. Heimilið, sem er í senn sýningar- og viðburðarrými, kemur til með að endurspegla norræna lifnaðarhætti, en allt innbú samanstend- ur af framúrskarandi hönnunarmun- um frá báðum þjóðum, þekktum sem nýjum. Sýningin verður opin fyrir bæði fjölmiðla og almenning og gestum og gangandi því velkomið að banka upp á. „Í raun verður heimilishald eins nálægt því sem gerist í raun, en von er á viðburðum eins og innflutnings partíi, matarboðum, veislum og eftirpartíi. Með verkefninu vonumst við til að mynda sterkari og nánari tengsl á milli fólks en samskipti á hönnunarsýningum geta oft verið yfirborðskennd því það er svo margt um að vera. Það verður allt vinalegra inni á heimilum,“ útskýrir Sari. Sýningastjórar eru hönnuðirnir Elina Aalto og Marika Tesolin frá FROM og Hlín Helga Guðlaugsdóttir. Grafíkin er í höndum Sigga Odds og Sanna Ge- beyehu frá Codesign fer með listræna stjórnun verkefnisins. „Um sextíu hönnuðir taka þátt í We live here, um það bil þrjátíu frá Íslandi og þrjátíu frá Finnlandi, þeir bestu frá báðum löndum. Íslensku hönnuðirnir verða því í verulega góðum félagsskap.“ ■ liljabjork@365.is SAMBANDIÐ KOMIÐ Á NÆSTA STIG SAMNORRÆN HÖNNUN Íslenskir og finnskir hönnuðir vinna saman að til- raunaverkefni á hönnunarvikunni í Stokkhólmi sem kallast We live here. SARI PELTONEN Sari er verkefnisstjóri We live here. Hún segir Íslendinga og Finna eiga margt sameiginlegt. MYND/STEFÁN WE LIVE HERE Hönnuðirnir Elina Aalto, Marika Tesolin og Hlín Helga Guðlaugs- dóttir taka þátt í samnorræna verkefninu We live here sem verður sýnt á hönnunar- vikunni í Stokk- hólmi í febrúar. MYND/MILIS SMITH ● HÖNNUN Gustaf Fjæstad (1868-1948) var sænskur listmálari og til- heyrði Racken-listamanna- hópnum í Värmland í Svíþjóð. Áður en Fjæstad varð frægur fyrir listmálun hannaði hann og smíðaði stóla sem hann kall- aði Stabbestolar. Þá skar hann út úr þykkasta hluta af stofni furutrés. Verkið tók langan tíma enda stóllinn fagurlega útskorinn en Fjæstad notaðist aðeins við handaflið. Stólarnir vöktu tals- verða athygli á sínum tíma og eru enn í dag á söfnum og sér- stökum sýning- um. STABBESTOLAR Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS Virkar lausnir frá OptiBac Bifidobacteria & Fibre Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 ÚTSALA kr. 75.700 Áður kr. 124.800 ÚTSALA 10 - 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HÚSGÖGNUM OG SMÁVÖRU SVEFNSÓFI ÚTSALA kr. 109.900 Áður kr. 139.900 VALMONT ÚTSALA kr. 128.600 Áður kr. 151.300 RETRO ÚTSALA kr. 118.800 Áður kr. 167.800 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 E C -B F 3 8 1 7 E C -B D F C 1 7 E C -B C C 0 1 7 E C -B B 8 4 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.