Fréttablaðið - 19.01.2015, Page 54

Fréttablaðið - 19.01.2015, Page 54
19. janúar 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30 Sigurður Sverrisson, þungarokk- ari og almannatengill, hefur í tvö ár verið með 666 vini á Facebook. „Allir sem eru á Facebook átta sig á því að áður en þú veist af ertu kominn með þúsund „vini“ en átt í raun aðeins samskipti við lítið brot þeirra,“ segir Sigurður aðspurður. „Ég fór því kerfisbundið að fækka í þessum hópi og veitti því athygli eitt sinn að vinirnir voru nákvæm- lega 666 talsins. Mér fannst það skemmtileg tilviljun, meðal annars með skírskotun í lagið Number Of The Beast með Iron Maiden en sú sveit er í miklum metum hjá mér,“ segir hann hress en bætir við að hann haldi lítið upp á kölska sjálf- an. „En ég virði rétt fólks til allra trúarbragða án frekara bakgrunns- tékks.“ Eftir að vinur Sigurðar á Face- book vakti athygli á vinafjöldanum einsetti hann sér að halda honum í tölunni 666. „Þetta er reyndar ágætis aðhald og heldur vinafjöldan- um í skefjum. Þegar einhver send- ir mér vinabeiðni met ég hvort ég komi til með eiga einhver samskipti við viðkomandi. Ef ég met það svo samþykki ég beiðnina en fer síðan rakleitt í að finna einhvern sem ég hendi út í staðinn,“ segir hann. „En ef einhverjum hefur sárnað við að detta úr hópi 666 get ég fullvissað hann um að þetta er engin tilviljun. Treg muðár ðem tlla re atteþ.“ - fb Þungarokkari með 666 vini á Facebook Sigurður Sverrisson passar sig á því að henda út vini í hvert sinn sem hann samþykkir vinabeiðni. SIGURÐUR SVERRIS- SON Heldur lítið upp á kölska en virðir rétt fólks til allra trúarbragða án frekara bakgrunns- tékks. ➜ The Number of the Beast kom út 1982 og er eitt vinsælasta lag Iron Maiden. „Ég fæ mér alltaf skyrbúst með hreinu skyri, bláberjum og banana, á meðan ég er að bíða eftir rabarbarajógúrtinni frá Bio-búi.“ Edda Kamilla Örnólfsdóttir, viðskipta- og heimskautaréttarfræðingur og rabarbara- ræktandi. MORGUNMATURINN „Verkefnið sprettur upp úr óperu sem Barði Jóhannsson og Keren Ann Zeidel í hljómsveitinni Lady & Bird voru með í Frakklandi árið 2011 og við erum að vinna þetta með þeim,“ segir Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri og annar stofn- andi GunHil. Fyrirtækið stofnaði hann ásamt Gunnari Karls- syni og sérhæfir það sig í framleiðslu teiknimynda. Nýjasta verkefni GunHil er teiknimyndin Red Waters. Myndin segir forna goðsögu af ánni Red Waters. Áin býr yfir lækningarmætti sem nærliggjandi þorp nýtur góðs af. Í stað- inn neyðast þorpsbúar til þess að færa ánni fórnir, en eitt árið er hefðin rofin. Í mars næstkomandi heldur fyrirtækið á Cartoon Movie 2015. „Þetta er svona evrópskur samframleiðslumarkaður. Við förum þarna með það markmið að finna okkur samstarfs- félaga og fjárfesta í Evrópu,“ segir Hilmar. Fyrsta myndin sem Hilmar og Gunnar störfuðu saman að var teiknimyndin Litla lirfan ljóta sem kom út árið 2002. Framleiðsla á teiknimyndum tekur langan tíma en gert er ráð fyrir að Red Waters komi út árið 2019. „Það þarf alveg afskap- lega mikla þolinmæði, þetta er dýrt og tekur langan tíma,“ segir Hilmar en bætir við: „En eins og allt skapandi starf þá er þetta mjög gefandi líka.“ - gló Teiknimynd unnin upp úr óperu GunHil gerir teiknimynd í fullri lengd upp úr óperu eft ir Lady & Bird. HILMAR SIGURÐSSON Er framkvæmdastjóri og annar stofnandi GunHil. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ➜ Red Waters segir forna goðsögu af ánni Red Waters. Áin býr yfir lækn- ingarmætti sem nærliggjandi þorp nýtur góðs af. „Já ég er sekur, nafnið langastöng er frá mér komið,“ segir Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur og texta- og hugmyndasmiður hjá aug- lýsingastofunni Brandenburg. Hann er ábyrgur fyrir nafninu langastöng á einu vinsælasta fyrir- bæri síðasta árs, selfie-stönginni. Orðið langastöng er þó ekki nýyrði, heldur er það gamalt orð yfir fing- urinn löngutöng. „Það er nú einmitt pælingin á bak við þetta nafn, að þetta sé framlenging á handleggn- um eða hendinni. Orðið er ekki bara sniðugt, ég er líka svona sniðugur,“ segir Bragi léttur. Langastöng er þó ekki eina orðið sem notað hefur verið yfir þetta fyrirbæri en orð eins og montprik, kjánaprik og sjálfustöng hafa öll verið notuð. „Það var víst mikil og fjörug umræða um þetta á Twitter um daginn hvort nota ætti mont- prik eða löngustöng,“ bætir Bragi við. „Svo er bara spurning hvort og hvaða orð nær að festast við þetta.“ Guðmundur A. Guðmundsson, markaðsstjóri hjá NOVA, líkir löngustangaræðinu við Sodastream- og fótanuddtækisæðin sem gripu landann fyrir þó nokkrum árum. „Það varð eiginlega allt tryllt. Við byrjuðum að selja þetta vel fyrir jólin. Þetta hefur verið Sodastream eða fóta- nuddtæki ársins. Það er eiginlega sama hvar á landinu verslunin var staðsett, þetta flaug út,“ segir Guðmundur. Stöngin var einstaklega vinsæl gjöf enda seldist hún margsinnis upp fyrir jólin. „Þetta var eiginlega alltaf upp- selt, enda vinsælt í pakkann og sérstaklega sem möndlugjöf,“ segir hann. Gunnhildur Ásta Guðmunds- dóttir, almannatengill hjá Vodafone, hefur svipaða sögu að segja. „Við tókum stangirnar í sölu í nóvember, en þær flugu út eftir því sem nær dró jólum og voru aðeins örfá stykki eftir þegar hátíðirnar gengu í garð. Hafa þær eflaust verið dregnar fram í ófáum jólaboðunum, enda tilvaldar til að ná myndum af heilu stórfjölskyldunum í einu,“ segir Gunnhildur. Hún reiknar með að magnið sem hafi farið út fyrir jól hafi hlaupið á nokkrum hundruðum. adda@frettabladid.is Bragi ber ábyrgð á nafninu langastöng Baggalúturinn Bragi Valdimar Skúlason er ábyrgur fyrir nafninu langastöng á selfi e-stangirnar, sem voru tvímælalaust langvinsælasta jólagjöfi n í fyrra. Þetta hefur verið Sodastream eða fóta- nuddtæki ársins. Guðmundur A. Guðmundsson. SNIÐUGUR Pælingin á bak við nafnið er að stöngin sé framlenging á handleggnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 E C -5 2 9 8 1 7 E C -5 1 5 C 1 7 E C -5 0 2 0 1 7 E C -4 E E 4 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.