Fréttablaðið - 12.01.2015, Síða 2
12. janúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
MENNING Ný íslensk kvikmynd í
leikstjórn Ísoldar Uggadóttur hefur
hlotið vilyrði fyrir 80 milljóna
króna framleiðslustyrk frá Kvik-
myndamiðstöð Íslands.
Í kvikmyndinni eru fléttað-
ar saman sögur tveggja ólíkra
kvenna; hælisleitanda frá Úganda
og einstæðrar móður á Reykjanesi
sem starfar við vegabréfaskoðun
á Keflavíkurflugvelli. Ísold segist
hafa viljað skoða málefnið út frá
sjónarhorni tveggja ólíkra kvenna.
„Annars vegar frá sjónarhorni
konu sem hneppt er í varðhald fyrir
það eitt að reyna að bæta eigin lífs-
kjör, og hins vegar konu sem óvænt
er farin að vinna við landamæra-
eftirlit og er þannig komin í valda-
stöðu sem hún sjálf er afar stolt af,
í fyrstu að minnsta kosti.“
Samfélagsleg málefni hafa verið
Ísold hugleikin, en í fjórum verð-
launastuttmyndum hennar, Góðum
gestum, Njálsgötu, Clean og Útrás
Reykjavík, hefur hún fengist við
við kynhneigð, fíkniefnanotkun og
afleiðingar efnahagshruns á heldri
konu. Allar myndirnar eiga það
sameiginlegt að hafa konur í aðal-
hlutverki, og er kvikmynd hennar
„Andið eðlilega“ þar engin undan-
tekning. „Af einhverjum ástæðum
þá dettur mér aldrei í hug að hafa
karl í aðalhlutverki. Það er ósjálf-
rátt,“ útskýrir Ísold.
Skúli Malmquist er aðalfram-
leiðandi, og vinnur hann nú að
áframhaldandi fjármögnun erlend-
is, í samstarfi við aðila í Svíþjóð,
Frakklandi og Belgíu.
„Andið eðlilega“ verður fyrsta
kvikmynd Ísoldar í fullri lengd, en
hún lauk mastersnámi í leikstjórn
og handritsgerð frá Columbia-
háskóla í New York vorið 2011, þar
sem hún var meðal annars valin
besti kvenleikstjórinn. „Verkefnið
mitt var Útrás Reykjavík og í þessu
tilfelli var verið að veita verðlaun
til kvenna til hvatningar. Það var
valið úr útskriftarhópnum og mik-
ils virði að fá þessa viðurkenningu.“
Konur hafa borið skarðan hlut
frá borði síðustu ár þegar kemur
að styrkjum frá stofnuninni og þá
sérstaklega þegar kemur að fram-
leiðslustyrkjum til kvikmynda í
fullri lengd. Breytinga hefur sann-
arlega orðið vart því fleiri kvik-
myndagerðarkonur hafa fengið vil-
yrði fyrir framleiðslustyrk. Kristín
Jóhannesdóttir hlaut 90 milljóna
vilyrði fyrir styrk til framleiðslu
kvikmyndarinnar Þá og þegar
elskan og Ása Helga Hjörleifsdótt-
ir 80 milljónir fyrir kvikmynd sína
Svanurinn.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Hlýtur styrk upp á
80 milljónir króna
Ísold Uggadóttir fær vilyrði fyrir 80 milljóna framleiðslustyrk frá Kvikmynda-
miðstöð Íslands. Kvikmyndagerðarkonur hafa fengið hlutfallslega fáa styrki.
SPENNANDI
VERKEFNI Ísold
Uggadóttir gerir
kvikmynd um
hælisleitanda og
einstæða móður.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR EYJÓLFSSON
MENNTAMÁL Fjölbrautaskóli Snæ-
fellinga hefur þurft að neita fjölda
einstaklinga um nám á vorönn.
Ástæða þess eru breytingar sem
gerðar voru á nemendaígildum
menntaskólanna í fjárlagafrum-
varpinu fyrir þetta ár. Jón Egg-
ert Bragason, skólameistari Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga, segir það
bagalegt að þurfa að vísa fólki frá
skólanum sem vilji hefja nám á
framhaldsskólastigi.
Fjölbrautaskólinn var með 80
dreifnema á haustönn 2014 en
þeir eru nú aðeins um 50 á vor-
önn 2015. Hvatinn til að taka við
nýjum nemendum er ekki lengur
til staðar að mati skólameistara
„Við höfum verið að hafna nýjum
dreifnemum á þessu ári,“ segir
Jón Eggert.
„Við í Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga erum með ákveðinn nem-
endakvóta og ráðuneytinu er í
sjálfu sér sama hvort það eru
dreifnemar eða staðarnemar,“
segir Jón Eggert. Skólinn er að
miklu leyti byggður upp á fjar-
kennslu og voru á síðustu önn um
80 nemendur í dreifnámi eins og
það er kallað.
„Dagskólanemendur taka upp
stærri hluta kvótans þannig að
minna er eftir fyrir nema í svo-
kallaðri fjarkennslu. Þeir eru ekki
hópur sem má ekki vera í fram-
haldsskóla, síður en svo, en það er
ekki svigrúm hjá mér til að taka
þá inn því skólinn fær ekki greitt
fyrir umframnemendur,“ segir Jón
Eggert.
- sa
Fjölbrautaskóli Snæfellinga hefur þurft að fækka nemum í fjarnámi vegna fjárlaga ríkisstjórnarinnar:
Hafa þurft að hafna nýjum nemendum
NEITAÐ UM NÁM Fjölbrautaskóli
Snæfellinga hefur þurft að vísa fólki frá
skólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÍSAFJARÐARBÆR Fræðslunefnd
Ísafjarðarbæjar leggur það til við
bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að
loka leikskóladeild á Eyrarsól á
næsta leikskólaári.
Eyrarsól var starfrækt fyrir
fimm ára börn og hugsuð sem
úrræði vegna skorts á leikskóla-
plássum. Þegar deildin var sett á
laggirnar var lagt til að hún yrði
endurskoðuð að tveimur árum
liðnum.
Að mati fræðslunefndar er ekki
sama þörf fyrir leikskólapláss nú
og þegar deildin var sett á lagg-
irnar. Því er lagt til við bæjar-
stjórn að deildinni verði lokað
næsta leikskólaár. - sa
Ekki eins mikil þörf og áður:
Leggja til lokun
leikskóladeildar
SAMFÉLAG Víða sleppti fólk því að klæðast buxum þegar það tók neðan-
jarðarlest í gær. Þá var nefnilega svokallaður „Buxnalausi neðanjarð-
arlestardagurinn“ í mörgum borgum. Þessi siður hófst með uppátæki
sjö stráka í New York árið 2002. Árið 2006 tóku 150 lestarfarþegar
í borginni þátt. Nokkrir þeirra voru handteknir fyrir óspektir á
almannafæri en svo látnir lausir. Siðurinn hefur svo breiðst út, meðal
annars til Evrópu. - jhh
Strákapör í New York orðin að árlegum sið um víða veröld:
Buxnalausir í neðanjarðarlest
FRJÁLSLYNDIR FARÞEGAR Það voru nokkrir prakkarar í New York sem byrjuðu á
því að fara buxnalausir í lest. Nú er það orðinn alþjóðlegur siður. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Hvorki forsætisráð-
herra né utanríkisráðherra voru
viðstaddir friðargönguna í París í
gær, vegna þeirra voðaverka sem
dunið hafa yfir Parísarbúa síðustu
sólarhringa.
Urður Gunnarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi utanríkisráðuneytis-
ins, sagði í samtali við Fréttablaðið
að staðgengill sendiherra Íslands
í Frakklandi hafi verið viðstadd-
ur friðargönguna sem fulltrúi
íslenskra stjórnvalda. Hún sagði
sendiherrann ekki hafa verið í
Frakklandi í gær. Af þeim sökum
hafi hann því ekki getað verið við-
staddur.
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð-
armaður forsætisráðherra, segir
forsætisráðherra ekki hafa getað
þekkst boð franskra stjórnvalda.
„Íslenskum stjórnvöldum barst
boð frá frönsku ríkisstjórninni um
að vera viðstödd friðargönguna
síðdegis á föstudegi. Á þeim tíma-
punkti átti forsætisráðherra ekki
þess kost að þekkjast boð að þessu
sinni. Hins vegar hafði hann stuttu
áður hitt franska sendiherrann á
Íslandi og fært honum samúðar-
kveðjur til frönsku þjóðarinnar,
en gat því miður ekki mætt í gær
til Parísar,“ segir Jóhannes.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins barst sams konar boð til
forsetaembættisins og utanríkis-
ráðuneytisins frá frönskum stjórn-
völdum. - sa
Staðgengill sendiherra Íslands í Frakklandi var viðstaddur friðargöngu í París:
Forsætisráðherra ekki viðstaddur
HITTI SENDIHERRANN Forsætisráð-
herra komst ekki til Frakklands en hitti
franska sendiherrann og færði honum
samúðarkveðjur.
Bragðast sveitasnakkið betur
en Prins Póló?
„Já, ef það fæst í gleri.“
Þúsundþjalasmiðurinn og forsprakki Prins
Póló, Svavar Pétur Eysteinsson, ætlar að
hefja framleiðslu á snakki gerðu úr gulrófum,
sem hann ræktar sjálfur.
BJÖRGUN Um hundrað björgunar-
sveitarmenn tóku í gærkvöldi
þátt í aðgerðum í Esjunni þar sem
göngumaður var í sjálfheldu í
Blikdal í vonskuveðri. Erfiðlega
gekk að staðsetja manninn en
símasamband við hann var stop-
ult, samkvæmt tilkynningu frá
Landsbjörgu.
Björgunarsveitamenn fóru upp
fjallið frá fjórum stöðum; upp
Blikdal, frá Eilífsdal, Þverfells-
horni og Skálafelli á snjóbílum,
snjósleðum, fjórhjólum og með
gönguhópum. Maðurinn fannst
um klukkan tuttugu mínútur yfir
níu. Hann var blautur og kaldur
en ómeiddur. - jhh
Hundrað menn við björgun:
Á Esjunni í
vonskuveðri
SPURNING DAGSINS
ht.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK
Engin venjuleg upplifun
Við kynnum
Philips Ambilight
9000 sjónvörpin
Ultra HD
með Android
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
8
-3
B
D
8
1
7
E
8
-3
A
9
C
1
7
E
8
-3
9
6
0
1
7
E
8
-3
8
2
4
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K