Fréttablaðið - 12.01.2015, Page 46

Fréttablaðið - 12.01.2015, Page 46
12. janúar 2015 MÁNUDAGUR| MENNING | 18 INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 18. SUN. 13 - 17. INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. INTERSP ORT ER Í FUL LUM GAN GI! 30% afslá ttur 50% afslá ttur 70%afsláttur LEIKLIST ★★★★★ Hundur í óskilum Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson LEIKSTJÓRI: ÁGÚSTA SKÚLADÓTTIR LEIKMYND: AXEL HRAFNKELL JÓHANNSSON Árið 2014 hélt hljómsveitin Hund- ur í óskilum, sem samanstendur af Eiríki Stephensen og Hjörleifi Hjartarsyni, upp á tuttugu ára starfsafmæli sitt. Í tilefni þess settu þeir saman sýninguna Öldin okkar sem frumsýnd var í Hofi á Akur- eyri fyrr í haust og hafa þeir hafa nú fært sig um set á Nýja svið Borg- arleikhússins. Sýningin er í raun ekki leikrit heldur revía af gamla skólanum þar sem þeir draga saman atburði síð- ustu fimmtán ára á Íslandi og rekja þróun hljómsveitarinnar samhliða líðandi stund úr einföldu árshátíð- arbandi í Hundur í óskilum Group sem stofnuð var í góðærinu. Upp- haflega var hugmyndin sú að gera risastóra sýningu með dansmeyj- um, þjóðþekktum leikurum og Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands en eftir hrun var nauðsynlegt að draga saman seglin og einungis þeir eru eftirstandandi. Eiríkur og Hjörleifur eru án efa með bestu textahöfundum starfandi á landinu í dag og virðast hafa lítið fyrir því að leika sér með íslenska málið hvort sem það er í formi mis- munandi bragarhátta, íslenskra staðaheita eða orðaleikja. Hofinu á Akureyri er lýst sem „Stalíntertu“ og Harpan í Reykjavík er ekkert annað en „biluð diskóbrauðrist“. En ballið er rétt að byrja því þeir takmarka sig ekki við móðurmálið heldur syngja þeir Eurovisionlag á norsku, stílfæra amerískt rapp- lag á íslensku, fara með Queen á dönsku og vippa Stuðmönnum yfir á þýsku, allt með beinum vísunum í íslenskan raunveruleika. Slíkir orðafimleikar eru bara á færi ein- stakra hæfileikamanna svo ekki sé nú minnst á hljóðfæraleikinn. Fyrir utan rafmagnsgítar, bassa og kontrabassa spila þeir á hækj- ur, þrjár blokkflautur í einu, hár- blásara og tromma á sérútbúið pottasett. Risastór og gríðarlega flókin heimasmíðuð hljóðfæri eru færð fram á sviðið, kannski bara í eitt lag, en það er algjörlega þess virði. Leikmynd Axels Hrafnkels Jóhannssonar samanstendur af forláta viðarbrettum þar sem hljóð- færi er að finna í hverju skúmaskoti og passar hún vel við lágstemmdu nálgun þeirra félaga þar sem kraft- urinn kemur úr sviðsframkomu frekar en prjáli. Sömu sögu má segja um leikstjórn Ágústu Skúla- dóttur en hún er til þess gerð að styðja við flutning parsins frekar en að flækja málin eitthvað frekar. Hundur í óskilum fyllir rýmið með einstakri orku, auðmjúkri fram- komu og dúndrandi hljóðfæraleik. Erfiljóðið sem Hjörleifur fékk ekki leyfi til að gefa út sem minn- ingargrein en fer þess í stað með í sýningunni er besta grínatriði leik- Hundur í óskilum slær í gegn HUNDUR Í ÓSKILUM Eiríkur og Hjörleifur koma fram af mikilli innlifun í yndislegri og bráðfyndinni sýningu sem enginn má láta fram hjá sér fara. ársins hingað til. Danstaktar Eiríks á meðan þeir rappa um Jamaíkuferð Björgúlfsfeðganna eru sömuleiðis algjörlega óborganlegir. Leikgleði, umkomuleysi og einlægni einkenna alla sviðsframkomu og slíkt er hressandi í listaumhverfi landsins. DO með bláu höndina, fylgi- hluturinn Dóri, Jóhanna og Ólafur Ragnar fá öll rækilega á baukinn, líka bankastarfmenn, fégráðugt viðskiptafólk og hinn almenni borg- ari sem sökkti sér í lífsgæðakapp- hlaupið. Þeir eru óhræddir við að vera beittir í þjóðfélagsgagnrýn- inni og hafa einstakt sjónarhorn á íslenska tilveru. Myndlíkingarnar eru oft teygðar út í hið óendanlega eins og frábær kafli þar sem koma Bobby Fischer til Íslands er fram- sett sem eins konar manngangur og Keikó kemur einnig við sögu. Þeir leyfa sér stundum aðeins að ganga of langt með fimmaurabrandarana og klósetthúmorinn en það er allt hluti af revíustílnum. Hundur í óskilum hefur nú starf- að í tuttugu ár en aldurinn sést aldeilis ekki á þeim. Eiríkur og Hjörleifur koma fram af mikilli innlifun í yndislegri og bráðfynd- inni sýningu sem enginn má láta fram hjá sér fara. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Áhorfendur eiga eftir að veltast um úr hlátri. Stórskemmti- leg sýning þar sem hugmyndaauðgi, einlægni og beittur húmor ráða ríkjum. MENNING 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 E 9 -B 3 1 8 1 7 E 9 -B 1 D C 1 7 E 9 -B 0 A 0 1 7 E 9 -A F 6 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.