Fréttablaðið - 12.01.2015, Síða 46
12. janúar 2015 MÁNUDAGUR| MENNING | 18
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 18. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSP
ORT
ER Í FUL
LUM GAN
GI!
30%
afslá
ttur 50%
afslá
ttur 70%afsláttur
LEIKLIST ★★★★★
Hundur í óskilum
Eiríkur Stephensen og Hjörleifur
Hjartarson
LEIKSTJÓRI: ÁGÚSTA SKÚLADÓTTIR
LEIKMYND: AXEL HRAFNKELL
JÓHANNSSON
Árið 2014 hélt hljómsveitin Hund-
ur í óskilum, sem samanstendur
af Eiríki Stephensen og Hjörleifi
Hjartarsyni, upp á tuttugu ára
starfsafmæli sitt. Í tilefni þess settu
þeir saman sýninguna Öldin okkar
sem frumsýnd var í Hofi á Akur-
eyri fyrr í haust og hafa þeir hafa
nú fært sig um set á Nýja svið Borg-
arleikhússins.
Sýningin er í raun ekki leikrit
heldur revía af gamla skólanum þar
sem þeir draga saman atburði síð-
ustu fimmtán ára á Íslandi og rekja
þróun hljómsveitarinnar samhliða
líðandi stund úr einföldu árshátíð-
arbandi í Hundur í óskilum Group
sem stofnuð var í góðærinu. Upp-
haflega var hugmyndin sú að gera
risastóra sýningu með dansmeyj-
um, þjóðþekktum leikurum og Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands en
eftir hrun var nauðsynlegt að draga
saman seglin og einungis þeir eru
eftirstandandi.
Eiríkur og Hjörleifur eru án efa
með bestu textahöfundum starfandi
á landinu í dag og virðast hafa lítið
fyrir því að leika sér með íslenska
málið hvort sem það er í formi mis-
munandi bragarhátta, íslenskra
staðaheita eða orðaleikja. Hofinu á
Akureyri er lýst sem „Stalíntertu“
og Harpan í Reykjavík er ekkert
annað en „biluð diskóbrauðrist“.
En ballið er rétt að byrja því þeir
takmarka sig ekki við móðurmálið
heldur syngja þeir Eurovisionlag
á norsku, stílfæra amerískt rapp-
lag á íslensku, fara með Queen á
dönsku og vippa Stuðmönnum yfir
á þýsku, allt með beinum vísunum
í íslenskan raunveruleika. Slíkir
orðafimleikar eru bara á færi ein-
stakra hæfileikamanna svo ekki sé
nú minnst á hljóðfæraleikinn.
Fyrir utan rafmagnsgítar, bassa
og kontrabassa spila þeir á hækj-
ur, þrjár blokkflautur í einu, hár-
blásara og tromma á sérútbúið
pottasett. Risastór og gríðarlega
flókin heimasmíðuð hljóðfæri eru
færð fram á sviðið, kannski bara í
eitt lag, en það er algjörlega þess
virði. Leikmynd Axels Hrafnkels
Jóhannssonar samanstendur af
forláta viðarbrettum þar sem hljóð-
færi er að finna í hverju skúmaskoti
og passar hún vel við lágstemmdu
nálgun þeirra félaga þar sem kraft-
urinn kemur úr sviðsframkomu
frekar en prjáli. Sömu sögu má
segja um leikstjórn Ágústu Skúla-
dóttur en hún er til þess gerð að
styðja við flutning parsins frekar
en að flækja málin eitthvað frekar.
Hundur í óskilum fyllir rýmið með
einstakri orku, auðmjúkri fram-
komu og dúndrandi hljóðfæraleik.
Erfiljóðið sem Hjörleifur fékk
ekki leyfi til að gefa út sem minn-
ingargrein en fer þess í stað með í
sýningunni er besta grínatriði leik-
Hundur í óskilum
slær í gegn
HUNDUR Í ÓSKILUM Eiríkur og Hjörleifur koma fram af mikilli innlifun í yndislegri og bráðfyndinni sýningu sem enginn má
láta fram hjá sér fara.
ársins hingað til. Danstaktar Eiríks
á meðan þeir rappa um Jamaíkuferð
Björgúlfsfeðganna eru sömuleiðis
algjörlega óborganlegir. Leikgleði,
umkomuleysi og einlægni einkenna
alla sviðsframkomu og slíkt er
hressandi í listaumhverfi landsins.
DO með bláu höndina, fylgi-
hluturinn Dóri, Jóhanna og Ólafur
Ragnar fá öll rækilega á baukinn,
líka bankastarfmenn, fégráðugt
viðskiptafólk og hinn almenni borg-
ari sem sökkti sér í lífsgæðakapp-
hlaupið. Þeir eru óhræddir við að
vera beittir í þjóðfélagsgagnrýn-
inni og hafa einstakt sjónarhorn á
íslenska tilveru. Myndlíkingarnar
eru oft teygðar út í hið óendanlega
eins og frábær kafli þar sem koma
Bobby Fischer til Íslands er fram-
sett sem eins konar manngangur og
Keikó kemur einnig við sögu. Þeir
leyfa sér stundum aðeins að ganga
of langt með fimmaurabrandarana
og klósetthúmorinn en það er allt
hluti af revíustílnum.
Hundur í óskilum hefur nú starf-
að í tuttugu ár en aldurinn sést
aldeilis ekki á þeim. Eiríkur og
Hjörleifur koma fram af mikilli
innlifun í yndislegri og bráðfynd-
inni sýningu sem enginn má láta
fram hjá sér fara. Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Áhorfendur eiga eftir
að veltast um úr hlátri. Stórskemmti-
leg sýning þar sem hugmyndaauðgi,
einlægni og beittur húmor ráða
ríkjum.
MENNING
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
9
-B
3
1
8
1
7
E
9
-B
1
D
C
1
7
E
9
-B
0
A
0
1
7
E
9
-A
F
6
4
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K