Fréttablaðið - 12.01.2015, Side 54
12. janúar 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 26
BESTI BITINN
„Við ákváðum eftir að hafa rætt
það lengi að einbeita okkur bara að
tískuheiminum á Norðurlöndun-
um og Eystrasaltslöndunum. Það
er svo gríðarlega mikið af stórum
bloggum í Bandaríkjunum, Bret-
landi, Ítalíu o g Frakklandi, svo
við vildum beina spjótum okkar
annað,“ segir Zymantas Karla-
pavicius frá Litháen, ritstjóri
tískubloggsíðunnar Nordic-Baltic
Fashion.
Hugmyndin að henni kviknaði
fyrst í apríl 2013, en hún var ekki
opnuð í þessari mynd fyrr en í júlí
í fyrra. Ásamt Zymantas standa
að síðunni finnsk poppstjarna og
tískugúrú, grísk sminka, breskur
tískubloggari og dönsk fyrirsæta.
Tískusíðan hefur fjallað mikið
um íslenska hönnuði, meðal annars
Magneu Einarsdóttur, Helicopt-
er og REY. „Fyrst trúði ég ekki
að svona lítið land eins og Ísland
ætti svona flotta og þróaða tísku-
hönnuði. Ég trúi því innilega að
heimurinn geti lært fullt af ykkar
hæfileikaríka fólki og bara ykkur
Íslendingum,“ segir Zymantas.
Hann hefur sjálfur ekki komið
til Íslands, en segir að honum
finnist hann tengdur okkur. „Sem
Lithái finnst mér eins og ég hafi
einhverja sérstaka tengingu við
Ísland. Takk fyrir að standa með
okkur fyrir tuttugu og fimm
árum,“ segir hann og hlær. Áhuga-
samir geta kíkt á síðuna á Nordic-
balticfashion.blogspot.co.uk. - asi
Sameinar tísku á nýrri bloggsíðu
Nordic-Baltic Fashion fj allar aðeins um tísku á Norður-og Eystrasaltslöndunum.
STOFNENDUR NORDIC-BALTIC
Zymantas Karlapavicius og ljós-
myndarinn Anne Laymond eru meðal
stofnenda síðunnar. MYND/ ANNE LAYMOND
„Við tókum upp myndbandið núna
þegar ég kom heim, það er svo gott
að klára þetta hér heima því hér
á maður svo auðveldan aðgang að
frábæru fólki,“ segir söngkonan og
leiklistarneminn Unnur Eggerts-
dóttir.
Hún dvaldi hér á landi yfir jól og
áramót og ákvað að nýta tímann
til þess að taka upp tónlistarmynd-
band við nýtt lag.
Lagið ber titilinn Í nótt og vann
hún það í samvinnu við upptöku-
teymið StopWaitGo. „Lagið var
tekið upp fyrir svolitlu síðan og
því kjörið að klára þetta núna.“
Ingimar Eydal tók myndbandið
upp, Rakel Unnur Thorlacius stíl-
iseraði og Ástrós Erla sá um hár
og förðun.
Unnur, sem lék m.a. Sollu stirðu
í Latabæ og tók þátt í undan-
keppni Eurovision 2013, stefnir
þó ekki á að gefa út plötu á næst-
unni. „Plötuútgáfa er ekki á dag-
skrá svona í náinni framtíð. Ég
vil einbeita mér hundrað prósent
að náminu og sinna því eins vel og
ég get. Það eru þó þvílík forrétt-
indi að geta komið heim og hent
út einu og einu lagi, þótt þau séu
ekki endilega hluti af stærri list-
rænni mynd. Í augnablikinu finnst
mér þetta skemmtilegast og þá
vil ég gera bara akkúrat það. Svo
seinna mun ég kannski vilja gefa
út plötu í allt öðrum stíl og segja
skilið við poppið. Það eru til svo
margar sögur af leiklistarnemum
sem hipsterast svo við námið að
kannski á næsta ári mun ég gefa
út vínylplötu á færeysku. Ég úti-
loka ekkert,“ segir Unnur og hlær.
Hún er að læra leiklist við skól-
ann The American Academy of
Dramatic Arts í New York. „Ég
dýrka New York,“ segir Unnur og
bætir við: „Ég er mjög ánægð með
námið. Þetta var sjúklega erfið
önn en ég er búin að læra ótrúlega
mikið.“
Hún hefur þó náð að njóta lífsins
með náminu úti og kynntist frægri
persónu. „Ég og Chantel Riley,
stelpan sem leikur Nölu í Lion
Tók upp myndband í
heimsókn til Íslands
Unnur Eggertsdóttir nýtti ferðina til Íslands og tók upp nýtt tónlistarmyndband.
NÝTT MYNDBAND Unnur Eggertsdóttir kann vel við sig í New York, þar sem hún
býr núna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það eru til svo
margar sögur af leiklistar-
nemum sem hipsterast
svo við námið að kannski
á næsta ári mun ég gefa
út vínylplötu á færeysku.
King á Broadway, erum orðnar
fínar vinkonur. Ég kom samt varla
upp orði þegar ég hitti hana fyrst,
slefaði bara og muldraði að mér
fyndist hún frábær. Næst á dag-
skrá er að drösla henni til Íslands,“
segir Unnur og hlær.
gunnarleo@frettabladid.is
„Fresco-salat! Palm Beach
klikkar ekki. Ótrúlega gott og hollt
í leiðinni.“
Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona.
Hingað er væntanleg Ina May
Gaskin, frægasta ljósmóðir Banda-
ríkjanna. „Hún hefur starfað sem
ljósmóðir í fjörutíu ár og er mikil
baráttukona fyrir náttúrulegum
og ótrufluðum fæðingum,“ segir
Soffía Bæringsdóttir doula sem
stendur fyrir komu hennar til
landsins.
Að auki hefur Gaskin skrifað
fjórar metsölubækur um „Spirit-
ual midwifery“. „Það er of oft grip-
ið inn í eðlilega fæðingu. Konur
eru aldar upp í ótta við fæðingar,
en fái þær rétta ljósmæðraleidda
umönnun og fá að
stjórna henni sjálfar
þá er mun líklegra
að þær upplifi góða
fæðingu,“ segir
Soffía og bætir við
að Gaskin telji fæð-
inguna vanmetið
mannréttindamál og mikilvægt sé
að virða rétt kvenna í henni.
Soffía segir Ísland nokkuð
framar lega í þessum málum, en
við megum ekki missa niður þráð-
inn. „Við stöndum á smá veltikúlu.
Það er búið að loka fæðingarstöð-
um, gangsetningartíðni er há og
það er bara val um heima- eða
sjúkrahúsfæðingu. Margar konur
gætu hugsað sér að vera þarna á
milli. Með því að stýra fæðingunni
of mikið þá erum við að útrýma
þessari eðlilegu fæðingu,“ segir
Soffía.
„Við stöndum vel, en þurfum
samt að koma á fót vitundarvakn-
ingu meðal kvenna,“ segir Soffía.
Fyrirlesturinn er opinn öllum og
verður haldinn 6. febrúar á Hótel
Sögu klukkan níu.
- asi
Frægasta ljósmóðir Bandaríkjanna til Íslands
Þekktasta ljósmóðir Bandaríkjanna, Ina May Gaskin, segir fæðinguna vera vanmetin mannréttindi.
ÞARF VITUNDARVAKNINGU Soffía
Bæringsdóttir segir okkur Íslendinga
framarlega í þessum málum, en
vitundarvakning sé engu að síður
nauðsynleg.
INA MAY
GRESKIN
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
8
-B
C
3
8
1
7
E
8
-B
A
F
C
1
7
E
8
-B
9
C
0
1
7
E
8
-B
8
8
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K