Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Page 6
mánudagur 28. júlí 20086 Fréttir
Nánari upplýsingar
í síma 698 2312 - Jón Aðalsteinn
TIL SÖLU !!!
Honda Shadow
1100cc Sabre
árg.2000,
ekin 6þús mílur
Honda Valkyrie
Interstate 1520cc
árg.1999,
ekin 25þús km
Honda Valkyrie
Rune
árg.2004, ekin
1þús km
„Okkar starf er svo miklu, miklu
lægra launað en sambærileg störf hjá
Reykjavíkurborg,“ segir Davíð Roach
Gunnarsson, einn af þeim leiðbein-
endum Vinnuskólans í Reykjavík
sem stöðva vinnu í dag. „Leiðbein-
endur í félagsmiðstöðvum sem eru
að vinna sömu störf og leiðbeinend-
ur í Vinnuskóla Reykjavíkur og oft
kannski við hliðina á þeim en eru
12 launaflokkum ofar,“ segir Davíð.
„Við stöðvum vinnu í dag klukkan 12
á hádegi og í Ráðhúsinu klukkan tvö
afhendum við borgarstjóra og mann-
auðsstjóra undirskriftalista með 130
undirskriftum og lista yfir þær kröfur
sem við setjum fram. Við sáum okk-
ur ekki annað fært vegna þessa mikla
misréttis,“ segir Davíð.
Aðspurður um óánægju leið-
beinenda Vinnuskólans segir Magn-
ús Arnar Sveinbjörnsson, umhverf-
is- og þróunarfulltrúi og staðgengill
skólastjóra Vinnuskólans í Reykjavík,
að reynt hafi verið að fá kjör þeirra
bætt. Það sama eigi þó við um þetta
sumarstarf og önnur sumarstörf, þau
fari ekki í gegnum starfsmat. „Pró-
sentuhækkanir hafa verið á laun-
um samkvæmt kjarasamningum, en
það hafa ekki verið aðrar hækkanir,“
segir hann. „Þeir leiðbeinendur sem
kjósa að taka þátt í þessum aðgerð-
um þurfa að senda nemendur heim.
Unglingarnir sem þurfa að fara heim
fá þó greitt. Þetta fær bara rétta með-
höndlun innan borgarkerfisins og er
í réttum farvegi þar,“ segir Magnús.
Leiðbeinendur í Vinnuskóla Reykjavíkur eru ósáttir við laun:
Leiðbeinendur í vinnustöðvun
„Þegar ég vildi ekki gefa upp kenni-
tölu fyrirtækisins og bað lögreglu-
manninn að koma sér niður af still-
ansinum tjáði hann mér að ég væri
handtekinn,“ segir blikksmiðurinn
Heiðar Ingi Marinósson. Hann er
sonur eiganda Ísblikks ehf. og um
leið hæstráðandi að eigandanum
fjarstöddum. Heiðar var við ann-
an mann að vinna við þakskyggni
á húsi sem kallað er Gamla bakarí-
ið á Ísafirði. Vinna við þakið er langt
komin en þó á eftir að bárujárns-
klæða.
Reyndu að afstýra tjóni
Rigning í byrjun vikunnar olli því
að vatn lak í gegnum dúkinn. „Við
fórum því upp á þakið og niður á
svalir hinum megin þar sem við gát-
um athafnað okkur við þakskyggnið.
Við vorum að reyna að afstýra miklu
vatnstjóni,“ segir Heiðar. Honum
að óvörum birtist skyndilega lög-
reglumaður sem hafði komið upp
stillansinn. „Hann sagði að kvörtun
hefði borist lögreglunni vegna þess
að við höfðum ekki verið í öryggis-
línu, eins og reglur kveða á um. Það
er rétt, okkur ber skylda til að vera
fastir í línu þegar við vinnum uppi á
þaki,“ segir Heiðar en áréttar að þeir
hafi alls ekki verið að vinna uppi á
þakinu. Þeir hafi einungis átt leið
yfir þakið og niður á svalir. Þeir hafi
því enga ástæðu séð til að útbúa línu
og festa sig í þessar sekúndur sem
það tók að ganga yfir.
Bað lögreglumanninn að fara
niður
Erlingur Tryggvason er sá sem
keypti verkið af Ísblikki. Hann varð
vitni að atvikinu og staðfestir frá-
sögn Heiðars. „Lögreglumaðurinn
kom þarna upp í óleyfi og bað Heið-
ar um kennitölu fyrirtækisins. Hana
bar honum engin skylda til að gefa
upp. Því næst spurði lögreglumað-
urinn drengina hvers vegna þeir
væru ekki í línu,“ segir Erlingur.
Heiðar furðar sig á þeirri ákvörð-
un. „Ég sagðist ekki trúa því að hann
ætlaði að handtaka mig fyrir svona
litlar sakir. Hann stóð fastur við sitt,“
segir Heiðar sem segist ávallt fara
að reglum í sinni vinnu og vera í
góðu sambandi við vinnueftirlit-
ið á staðnum. Heiðar fór með lög-
reglumanninum á stöðina. Þar var
honum lesinn réttur sinn en Heiðar
skilur þó ekki hvers vegna hann var
handtekinn. „Það fór ekkert glæp-
samlegt þarna fram. Þetta er mjög
skrýtið mál,“ segir hann. „Á stöðinni
var ég beðinn um kennitölu mína og
ég veitti hana fúslega, enda engin
ástæða til annars,“ segir Heiðar sem
var sleppt eftir skýrslutöku.
Slæmt fyrir orðsporið
Önundur Jónsson, yfirlögreglu-
þjónn á Vestfjörðum, segir aðspurð-
ur að Heiðar hafi verið handtekinn
þar sem hann hafi ekki viljað gefa
upp nafn sitt og kennitölu. „Það
barst ábending frá vinnueftirlitinu
þar sem kom fram að þeir hefðu
ekki gætt fyllsta öryggis. Þess vegna
fórum við á staðinn og athuguð-
um málið. Heiðar vildi ekki gefa
upp kennitölu sína og því var hann
handtekinn. Hann veitti hana hins
vegar fúslega þegar á lögreglustöð-
ina var komið,“ staðfestir Önundur.
„Ég hef ekkert heyrt meira og veit
ekki hvert framhaldið verður. Eftir
þetta fór ég aftur og gekk frá þaks-
kyggninu. Ég skil ekki hvers vegna
þetta þurfti að vera svona. Það er
ekki gott fyrir mannorðið að vera
handtekinn við vinnu sína,“ segir
Heiðar sem segir þó að mestu hafi
skipt að honum hafi tekist að koma
í veg fyrir tjónið. „Mér fannst þetta
svolítið gróft. Ég veit ekki til þess
að þeir sem eru að grilla á svölun-
um hjá sér þurfi að vera fastir í línu.
Hvers vegna þurfum við þess þá?“
spyr Heiðar að lokum.
Heiðar Ingi Marinósson blikksmiður var að vinna við þak á svölum Gamla bakarísins á Ísafirði þegar lögregl-
una bar að garði. Heiðar bað lögregluna að fara niður af pallinum sem hann hafði umsjón með. Þegar Heiðar
vildi ekki gefa upp kennitölu fyrirtækisins var honum tilkynnt að hann væri handtekinn. Lögreglan ber því
við að Heiðar hafi ekki viljað gefa upp kennitölu sína. Heiðar furðar sig á vinnubrögðum lögreglunnar.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Þeir sögðust ekki geta
verið í línu þar sem þeir
væru að vinna á svölun-
um og báðu lögreglu-
manninn að fara niður.“
Vinnuskóli leiðbeinendur
leggja niður störf á hádegi.
BLIKKSMIÐUR
HANDTEKINN
Heiðar Ingi á þakinu Fyrir neðan sjást
svalirnar þar sem Heiðar var að vinna.
H&n-mynd Halldór Sveinbjörnsson