Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Síða 14
mánudagur 28. júlí 200814 Neytendur Lof&Last n lofið fær n1 við gagnveg í grafarholti. ánægður fjölskyldufaðir hafði samband við dV og sagði viðmótið þar til fyrirmyndar. Hann hafi verið á leið í sumarbústað og komið við í versluninni til að metta fjölskylduna og gera bílinn kláran fyrir ferðalagið. Þjónustan var persónuleg og góð þrátt fyrir mikið annríki. gott upphaf að góðri ferð. n lastið fær Intersport fyrir að gefa ekki inneignarnótu fyrir útsöluvörum. Sá sem vill skipta þarf því að kaupa eitthvað annað á staðnum þó svo hann langi ekki í neitt eða bíði eftir vöru sem hann vill. Svo er afgangur og þá þarf að eyða honum líka. Fáránlegt. Breytt ákvæði í innbúskaskótryggingum hjá Sjóvá: Tryggja ekki ÚTliTsgalla Sjóvá bætir ekki tjón vegna útlits- galla. Þetta kemur fram í nýju ákvæði í innbúskaskótrygginu. Það þýðir að félagið bætir ekki tjón sem eingöngu veldur útlitsgalla en rýrir ekki nota- gildi þess vátryggða. Þeir sem fengu bréf um þessar breytingar eru eflaust undrandi á svona breytingum á ka- skótyggingu. „Við erum í raun að árétta vinnu- reglur sem við höfum fylgt og sýna betur hvernig tryggingin virkar í raun og veru,“ segir Ingvar Hjálmarsson, sölustjóri á einstaklingssviði hjá Sjó- vá. „Það þýðir að ef þú missir fartölv- una í gólfið og það kemur rispa utan á hana en hún virkar að öðru leyti er tryggingin ekki ætluð til að bæta fyr- ir það.“ Aðspurður hvort fyrirtækið lendi í því að krafist sé bóta fyrir hluti sem eru í raun ekki skemmdir eða fólk hefur sjálft laskað segir hann það hafa komið upp. „Þetta er eitt skref sem við erum að taka í þeim málum svo fólk skilji samningana.“ Hægt er að fá innbúskaskótrygg- ingar hjá flestum tryggingarfélögum. Ingvar telur skilmálana sambærilega og það sama sé upp á teningnum hjá öðrum. „Við höfum ekki fengið nein viðbrögð við þessum breytingum ennþá frá fólki.“ Gullinbrú 171,70 189,60 Bensín dísel Bíldshöfða 170,20 188,10 Bensín dísel Bústaðavegi 171,20 189,10 Bensín dísel Miklubraut 168,10 186,0 Bensín dísel Grafarholti 170,20 188,10 Bensín dísel Fellsmúla 170,20 188,10 Bensín dísel Lækjargötu,Hfj. 166,70 184,60 Bensín díselel d sn ey t i Hinn almenna neytanda svíður undan bensínverðinu og engin leið er að fá nema lítinn afslátt. Spurningar um sérkjör til stórnotenda vakna og í kjölfarið finnur hinn almenni neytandi sig svikinn. Olíufélögin vilja ekkert upp gefa og segja það trúnaðarmál. Því meira eldsneyti sem keypt er, því meiri afsláttur. Öll OlíufélÖgin fela afsláttinnHundrað króna munurVínarbrauð hefur verið með vinsælasta sætabrauði í mörg ár. Verð á vínarbrauðslengjum hefur hækkað gríðarlega að undanförnu og fer á sumum stöðum yfir 500 krónur. Bernhöftsbakarí er ódýrast. „Allir stærri notendur eru með sér- kjör,“ segir Hugi Hreiðarsson, mark- aðsstjóri Atlantsolíu. Hvaða fyrir- tæki og hversu hár afslátturinn er segir hann trúnaðarmál. Það rennir stoðum undir þann grun að sérafs- lættirnir séu leyndarmál. Enginn vill gefa upp hversu margir njóta sér- kjara eða hversu góð þau eru. Þeir sem njóta afsláttarins segja held- ur ekki neitt. Hver fær afsláttinn og hver þarf að borga fyrir hann í stað- inn? Algjör trúnaður ríkir Hugi svaraði um afsláttinn þeg- ar blaðamaður spurði: „Allir sem hafa sérkjör hafa verið með þau frá upphafi.“ Til þeirra teljast verk- takar og aðrir stórnotendur sem eru með marga bíla hjá sér. Aðpurð- ur hvort afslátturinn hlaupi á tug- um króna segir hann svo ekki vera. „Það fer bara eftir eldsneytismagn- inu og stærð fyrirtækisins.“ Upphæð afsláttarins gefur hann ekki upp. Í grein sem birtist í DV þann 16. júlí síðastliðinn og fjallaði um afslætti olíufélaganna sagði Sigurður Páls- son, forstöðumaður markaðssviðs ÓB: „Ég hef ekki hugmynd um hvað þau eru mörg. Sérafslættir til fyrir- tækja eru mjög mismunandi og það er trúnaðarmál hversu háir afslættir þetta eru.“ Engin rök „Ef menn eru að veita einhverj- um vildarkúnnum meiri afslátt, þá er hinn almenni viðskiptavinur að borga á móti,“ segir Runólfur Ólafs- son, framkvæmdastjóri FÍB. „Það eru engin rök fyrir því.“ Aðspurður hversu háan afslátt stórkaupend- ur fái segist hann hafa heyrt um tíu til ellefu króna afslátt frá þjón- ustuverði. „Í rauninni er frjáls verð- myndun á markaðnum en við hjá FÍB viljum auðvitað að þetta sé sem gegnsæjast og að félögin gefi upp ítarlegar upplýsingar á heimasíð- um sínum og það sé skýrt hvað sé í boði á hverjum tíma,“ segir Runólf- ur. Þess má geta að áður en verð var gefið frjálst tíðkaðist ekki að gefa af- slátt af bensíni. Afslættir rugla neytandann Runólfur segir að erfitt sé að gera verðsamanburð og það rugli neytandann. „Í gangi eru alls kon- ar dælulyklar, viðskiptakort, fé- lagasamtök og samningar við fyr- irtæki. N1, Olís og Shell eru með hæstu verðin á þjónustudælum en bjóða jafnframt lægra verð í sjálfs- afgreiðslu. Svo eru sjálfsafgreiðslu- stöðvarnar sem bjóða 1,5 krón- ur undir hinum stöðvunum. Þá er verðið komið 6 krónur undir hæsta verð. Svo geta tryggðarlyklar gefið 2 til 3 króna aukaafslátt. Í sumum tilvikum getur munað 10 krónum. Fyrir venjulegan fjölskyldubíl mun- ar það 13 þúsund krónum á ári.“ Sérkjör í klúbbum Hægt er að fá sérkjör með því að skrá sig í ýmsa klúbba og halda niðri bensínkostnaði þannig. „Skrán- ing í 4x4 klúbbinn gefur afslátt hjá Skeljungi, ef þú ert í FÍB færðu dælu- lykil og 3 króna afslátt, kort frá Ork- unni gefur 3 króna afslátt af hverjum lítra og ég hef heyrt að Fornbíla- klúbburinn sé með einhvern afslátt, svo dæmi séu nefnd,“ segir Runólf- ur. Auk þess fá stúdentar 10 króna afslátt af þjónustuverði með Stúd- entakorti. vínarbrauðslengjur Bernhöftsbakarí 450 krónur kornið 490 krónur Bæjarbakarí 495 krónur Passion 510 krónur Bakarameistarinn 555 krónur kökuhornið 575 krónur Hjá jóa Fel 595 krónur AldrEi SpArAð jAfnmikið „Eftir að ég flutti og skipti um hverfi finn ég að ég spara tugþúsundir á mánuði,“ segir guðrún Ög- mundsdóttir verkefnisstjóri. „nú er ég með þrjár Bónusverslanir í kringum mig en áður fyrr var maður alltaf að fara í nóatún. Ég sé það núna afar skýrt hvað það er mikil búbót að hafa þessa búð og hefði ég ekki trúað þessu almennilega. nú fylli ég frystikistuna eins og maður gerði í gamla daga. Það er afar skemmtileg tilfinning.“neytendur@dv.is umSjón: áSdíS BjÖrg jóHannESdóttIr Neyte dur neytandinn „Ef menn eru að veita einhverjum vildar- kúnnum meiri afslátt, þá er hinn almenni viðskiptavinur að borga á móti.“ Atlantsolía gefur stór- notendum sérafslátt en vill ekki gefa upp hve mikinn. ÁSdÍS BjÖrG jÓHAnnESdÓTTir blaðamaður skrifar: asdisbjorg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.