Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Síða 16
mánudagur 28. júlí 200816 Umræða Íslenskt samfélag er eitt hið um-burðarlyndasta í hinum vest-ræna heimi þar sem kemur að frammistöðu stjórnmálamanna. Ár og dagar líða án þess að þjóðin segi mönnum sem ekki standa sig upp vinnunni. Og þjóðin kýs ítrek- að yfir sig menn og flokka sem ekki gera það í vinnunni sem þeir lýstu í umsókninni. Þess vegna er nú svo komið að hér er margt í kaldakoli og almenningur kveinar undan skuldum og himinháu verðlagi. Frændur okkar Bretar hugsa þetta öðruvísi. Þegar stjórn-málamenn standa sig ekki eru þeir yfirleitt reknir úr vinn- unni hið snarasta. Sá ágæti maður Gordon Brown fékk uppfyllt- an þann lang- þráða draum sinn að verða formaður Verka- mannaflokksins og forsætisráðherra þegar hann tók við af Tony Blair sem átt hafði margar sigurgöng- ur með flokk sinn áður en mælir hans fylltist. Á þeim tíma sem er liðinn síðan það gerðist hefur gengi Verkamannaflokksins hrapað hrað- ar en íslensku krónunnar og flokk- urinn er í tjóni. Þingmenn Verka- mannaflokksins rísa auðvitað gegn leiðtoganum og reiknað er með falli hans á næstunni. Þolinmæð- in gagnvart slökum leiðtoga er lítil sem engin. Ferill Gordons er ekki ólíkur ferli Geirs Hilmars Haarde sem lengst af ferli sínum var farsæll báts- maður Davíðs Oddsson- ar, fyrrver- andi forsæt- isráðherra. Geir er fjarri því að vera litrík- ur stjórnmálamaður en hann hefur þótt vera traustur. Þegar Davíð rið- aði til falls ákvað hann, rétt eins og Tony áður, að víkja og afhenda Geir lyklana að Valhöll. Síð- an það gerðist hefur hallað stöðugt und- an fæti. Þjóðarbú- ið stendur í björtu báli og efasemda- raddir um getu for- mannsins eru alls staðar, meira að segja inni í þingflokki Sjálfstæð- isflokks- ins. Hópur þingmanna flokksins er sannfærður um að Geir valdi ekki hlutverki sínu fremur en Brown. Sumir tala opinberlega undir rós en aðrir gnísta tönnum í máttvana þögn. Vandinn liggur nefnilega í því að á Íslandi er hefð fyrir því að umbera næstum allt þar sem stjórnmálamenn eru annars vegar. Við látum kyrrt liggja þótt flokkur lofi stóriðjustoppi fyrir kosningar en svíki það umsvifa- laust þegar í ríkisstjórn er komið. Og við sættum okkur við að flokkur sem lofar einkaframtaki fyrir allar kosningar, svíki það jafnharðan til að efla vígi sitt sem hann reisir á kostnað almennings. Ríkisútvarp- ið er prýðilegt dæmi um það. Og Baugsmálið er annað ágætt dæmi um fasista sem nota tæki samfélags- ins til að berja á meintum óvinum án þess að nefna það fyrir kosningar. Þetta eru mennirnir sem velja vini sína og frændur til að setjast í sæti dómara. En ólík eru kjör þeirra Geirs og Gordons. Á meðan Gordon bíður þess eins að vera tekinn niður er Geir í allsæmilegum mál- um. Þótt hann hafi með aðgerða- leysi bókstaflega klúðrað efnahag Íslendinga þorir enginn að segja að hann eigi að víkja. Þótt fjárhag- ur fyrirtækja og almennra borgara standi anspænis hreinum voða er lítið aðhafst. Sjálfur bregður Geir sér í slökunarferð til Noregs eftir að hafa verið á þeytingi landa í milli lengst af ári án sýnilegs tilgangs. Skipstjóri sökkvandi skips hefur það helst til málanna að leggja að láta þyrlu sækja sig svo hann geti brugðið sér á skíði. En kjós- endur á Íslandi eru þeirrar náttúru að leyfa skipinu að sökkva áður en skipstjórinn er kallaður til ábyrgðar. Bretarnir horfa öðruvísi á málið. Þar er talin ástæða til að grípa strax inn í atburðarásina og fyrirbyggja þannig að þjóðarbúskap- ur þeirra verði fyrir stórslysi. Þótt Gordon og Geir séu í sömu stöðu gagnvart þjóðum sínum býr hinn síðarnefndi við allt annað og betra atvinnuöryggi. Það er vegna þess að atvinnurekendur þeirra eru misvel vakandi yfir frammistöðu þeirra. Gordon oG Geir svarthöfði Brynjólfur Þór fréttastjóri skrifar. Þarna á að setja niður stærðar hús sem stangast á við það sem í kring er og fyrir er. Lélegir arkitektar Leiðari Með því versta sem hefur komið fyrir miðbæ Reykja-víkur eru ýmsar þær bygg-ingar sem hafa verið reist- ar á síðustu áratugum og eru ekki í nokkrum takti við það sem fyrir var. Tökum sem dæmi þá viðurstyggilegu viðbyggingu sem var reist við Lands- bankahúsið í Austurstræti. Lands- bankahúsið er ein fallegasta bygging landsins en viðbyggingin sækir hart að titlinum „ljótasta bygging landsins“. Annað gott dæmi eru hæðirnar sem voru reistar ofan á húsið sem nú hýsir Héraðsdóm Reykjavíkur. Þeir sem réðu ferðinni þar tóku ekkert tillit til þess sem fyrir var og tókst að vissu leyti að eyðileggja Lækjartorg. Húsið sem markar norðurhlið torgsins og hefur nú ver- ið málað svart fullkomnar svo þá niðurlægingu. Það er því ekki furða þó andmæli heyrist við tillögunni sem er komin fram um byggingu Listaháskólans við Laugaveg. Sú tillaga tekur því sem næst ekkert tillit til þess sem er fyrir við Laugaveginn á þessum slóðum. Þarna á að setja niður stærðar hús sem stangast á við það sem í kring er og fyrir er. Þrátt fyrir þá stefnumótun borgaryfirvalda að láta götumynd 19. aldar halda sér er ekkert gert með það. Arki- tektar halda áfram að hanna sér minnisvarða, minnisvarða sem að einhverjum árum eða áratugum liðn- um kunna að verða hönnuðum sín- um til jafnmikillar minnkunar og sum þau hús sem reist voru við Laugaveg eftir síðari heimsstyrjöld. Hús sem nú eru í flokki þeirra ljótustu við götuna. Laugavegurinn er dásamlegt fyrir- bæri. Menn nöldra stundum um að þangað komi ekki nógu margir dags- daglega en raunin er sú að um leið og sólin glennir sig eða eitthvað er um að vera er það Laugavegurinn sem fólk velur. Menn geta gert grín að því að tala um 19. aldar götumynd Laugavegarins og vísað til þess að flest húsin voru reist á 20. öld eða var breytt verulega á þeim tíma. En staðreyndin er sú að flest falleg- ustu húsin eru í hópi elstu húsanna við Laugaveginn. Í stað þess að ætla alltaf að reyna að finna upp á einhverju nýju ættu menn að hafa metnað fyrir því að gera Laugaveginn að heilsteyptri fallegri götu. Þess í stað hafa verktakar og arkitektar áratugum saman reynt að breyta Laugaveginum í nokkurs konar bútasaum, hálfgerðan geð- klofa. Hingað og ekki lengra, segi ég. Betri er fölsuð 19. aldar götumynd, með nýbyggingum í gömlum stíl, en að setja niður fleiri minnis- varða um lélegan arkitektúr síðustu áratuga. DómstóLL götunnar Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannaHelgina? „Ég ætla að hjóla nesjavallahringinn um verslunarmannahelgina. Það er markmið sumarfrísins.“ Helgi Jón Jónsson, 47 ára prentari „Ég verð að vinna í veiðihúsinu viða norðurá sem mamma og pabbi reka.“ Daníel Guðmundsson, 15 ára veiðistrákur „Við ætlum að fara saman í útilegu, þangað sem sólin skín.“ Ragna Ásgeirsdóttir, 9 ára, og Guðrún Ástrós Bergsveinsdóttir, 45 ára fasteignasali „Ég ætla sennilega að skella mér til london.“ Friðrik Örn Guðlaugsson, 15 ára pitsubakari Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur Helgason, asi@birtingur.is dV á netinu: dV.is aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40. Umbrot: dV. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. sanDkorn n Mótmælandinn Helgi Hóseasson, sem stendur vakt- ina á Langholtsvegi, var notað- ur sem sviðsmynd þegar sætu- koppurinn og sjónvarpsstjarnan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir var með við- tal við hljóm- sveitina Atómstöðina á Langholts- vegi. Nota átti gamla manninn til að fara með vísu til að skreyta enn frekar uppákom- una en hann harðneitaði og var hinn viðskotaillsti. „Hafiði bara ykkar tónlist,“ sagði hann við furðulostið sjónvarpsliðið. n Skúbbsíðan Orðið á götunni sem Andrés Jónsson bloggari kom á fót á sínum tíma hefur legið í nokkrum dvala undan- farið. Síðan tók nokkurn kipp fyrir helgi þar sem spáð var fyrir um fram- tíðarstarf Tryggva Þórs Her- bertssonar, efnahagsráðgjafa og stjóra Askar Capital. Orðið spáir því að Tryggvi sé á leið í Seðlabankann til að framfylgja nýrri efnahagsstefnu og þar með verði gamall draumur hans að veruleika. n Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrrverandi ábyrgðarmaður Sandkorna, dregur ekkert af sér í gagnrýni á menn og málefni. Meðal uppá- haldsskot- spóna ráð- herrans eru Ólafur Ragn- ar Gríms- son, forseti Íslands, og Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra sem fá reglulega á baukinn. Úr stétt matreiðslu- meistara hefur gamli bloggar- inn mestan áhuga á listakokkin- um Sigga Hall. Færslur Jónasar um Sigga og Food and Fun hátíðina benda til þráhyggju og með góðum vilja mætti flokka þær sem einelti. n Sú ákvörðun Einars Bárðar- sonar að hætta sem umboðs- maður Garðars Thors Cortes vekur athygli. Mogginn hefur það eftir Einari að það sé vegna yfirvofandi barneign- ar Einars og eigin- konu hans. Sú skýring er ekki trú- verðug þar sem Einar hefur eytt ómældri orku og tíma í að dá- sama uppgang Garðars og látið í það skína að hann muni fara á hæsta stall. Menn velta fyrir sér hvort um sé að kenna fjár- hagslegum ástæðum fremur en barneignum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.