Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Side 24
mánudagur 28. júlí 200824 Ættfræði
60 ára í dagTil
hamingju
með
afmælið
30 ára afmæli
n Tamara grbic Kleppsvegi 50, Reykjavík
n Simas Kalinskas Básbryggju 7, Reykjavík
n jacek Karmel Iðufelli 12, Reykjavík
n ramirca maria Tavares da rosa Teigsbjargi,
Egilsstaðir
n Finnur Torfi gunnarsson Laufvangi 1, Hafnarfjörður
n Bragi Bergsson Laugateigi 22, Reykjavík
n Erna rán arndísardóttir Fífuseli 7, Reykjavík
n nils Viggó Clausen Stararima 27, Reykjavík
n gunnlaugur már Sigurðsson Dverghólum 23, Selfoss
n guðrún astrid Elvarsdóttir Iðutúni 13, Sauðárkrókur
n Þröstur Heiðar jónsson Karlagötu 6, Reykjavík
n Pétur Hannesson Lækjarvaði 25, Reykjavík
n Pálína guðmundsdóttir Stöðulsholti 6, Borgarnes
n Birgir Thorberg ágústsson Steinum 13, Djúpivogur
n Kristín dögg guðmundsdóttir Leirubakka 36,
Reykjavík
n Sigrún Þóra Skúladóttir Kapellustíg 3, Reykjavík
n Karl Sólnes jónsson Kirkjutorgi 6, Reykjavík
40 ára afmæli
n davíð Tho Van duong Lautasmára 28, Kópavogur
n ívar guðjónsson Krossakri 4, Garðabær
n Páll már guðjónsson Stekkholti 11, Selfoss
n rafn Hafberg guðlaugsson Hulduhlíð 40, Mosfells-
bær
n jóhanna Kristín gunnlaugsdóttir Eikarlundi 21,
Akureyri
n guðmundur Símonarson Gullengi 15, Reykjavík
50 ára afmæli
n Hinrik gunnar Hilmarsson Heiðarási 22, Reykjavík
n Pétur úlfar Ormslev Norðurbrú 2, Garðabær
n ásgeir Sigurðsson Hjallabrekku 35, Kópavogur
n nína Einarsdóttir Hagatúni 7, Höfn
n áslaug guðmundsdóttir Bakkahjalla 10, Kópavogur
n aðalbjörg Erlendsdóttir Nýlendugötu 13, Reykjavík
n jónbjörg Þórsdóttir Skúlaskeiði 18, Hafnarfjörður
n matthildur B. Hólmbergsdóttir Vesturgötu 50a,
Reykjavík
n Heiðar Bergur jónsson Fögrukinn 1, Hafnarfjörður
n Hjördís guðrún Ólafsdóttir Bjarnastaðavör 5,
Álftanes
n Hafdís Erla Baldvinsdóttir Bæjargili 61, Garðabær
n guðjón Sölvi gústafsson Bjarnastaðavör 6, Álftanes
n ragnar alexander Þórsson Heiðmörk 16, Hveragerði
n guðrún Breiðfjörð Ægisdóttir Lambastekk 11,
Reykjavík
60 ára afmæli
n Sigríður johnsen Ásum, Mosfellsbær
n guðrún Hanna Halldórsdóttir Helgustöðum, Fljót
70 ára afmæli
n Edda lóa Skúladóttir Hryggjarseli 20, Reykjavík
n Björn Björnsson Grenimel 45, Reykjavík
n grethe Einarsson Vallargötu 21, Sandgerði
n gissur Sæmann axelsson Holtagerði 55, Kópavogur
n Helga gunnlaugsdóttir Grænagarði 2, Reykjanesbær
n anna Elín Hermannsdóttir Akraseli 10, Reykjavík
75 ára afmæli
n Halldóra Sigurðardóttir Móaflöt 53, Garðabær
n jóhannes jóhannesson Starengi 94, Reykjavík
n Haukur Konráðsson Skarðshlíð 26f, Akureyri
n Sigurður Stefánsson Steinahlíð 1, Egilsstaðir
n anna markrún Sæmundsdóttir Hjarðarholti 2,
Búðardalur
n Elínbjörg Kristjánsdóttir Arnarheiði 11b, Hveragerði
n Oddur Valur Ólafsson Ásvallagötu 1, Reykjavík
n Pétur Þórarinsson Baugholti 27, Reykjanesbær
80 ára afmæli
n ragnar Vignir Sléttuvegi 21, Reykjavík
n Sigríður jóna jónsdóttir Þangbakka 10, Reykjavík
n guðrún guðmundsdóttir Rauðarárstíg 33, Reykjavík
n Sigurþór magnússon Árskógum 8, Reykjavík
85 ára afmæli
n Pétur guðmundsson Hlíðarlundi 2, Akureyri
n Helga guðbrandsdóttir Sólheimum, Búðardalur
n Þórhallur arason Espigerði 14, Reykjavík
90 ára afmæli
n Kristín guðjónsdóttir Kleppsvegi 32, Reykjavík
n Eygerður Björnsdóttir Lækjargötu 34b, Hafnarfjörð-
ur
95 ára afmæli
n margrét Hjartardóttir Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík
Saga geirdal JónSdóttir
lEiKKOna Og lEiKSTjÓri
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
myndliSTarKOna á aKurEyri
Jóna Hlíf fæddist í Holti undir Eyjafjöll-
um og ólst þar upp. Hún var í Seljalands-
skóla, var í Framhaldsskólanum á Skógum,
lauk sjókokkaprófi frá VMA 1997, lauk námi
í rekstrar- og hagfræði við Viðskipta- og
tölvuskólann í Reykjavík, stundaði nám við
Myndlistarskólann á Akureyri, lauk þaðan
diplómaprófi, stundaði listnám við Glasgow
School of Art og lauk þaðan MA-prófi 2007.
Jóna Hlíf var kokkur á Halastjörnunni í
Öxnadalnum í þrjú sumur, er sýningarstjóri
VeggVerks og Gallerís Ráðhúss á Akureyri
og er einn af stofnendum gallerís BOX. Hún
hefur haldið sjö einkasýningar, hér á landi og
erlendis, er einmitt með sýningu núna sem
stendur til 15. ágúst, í 101 Galleríi við Hverf-
isgötu í Reykjavík og verður með sýningu í
Listasal Mosfellsbæjar sem hefst 9. ágúst og
haldin verður í tilefni 50 ára afmælis Mos-
fellsbæjar. Þá er Jóna Hlíf með sýninguu í D-
salnum í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi.
Fjölskylda
Maður Jónu Hlífar er Hjálmar Stefán
Brynjólfsson, f. 20.6. 1981, lögfræðinemi og
blaðamaður við Morgunblaðið á Akureyri.
Foreldrar Jónu Hlífar eru séra Halldór
Gunnarsson, f. 14.1. 1941, pr. í Holti und-
ir Eyjafjöllum, og Margrét Jónsdóttir, f. 11.9.
1944, húsfreyja og bóndi í Holti.
jónbjörg Þórisdóttir er fimmtug í dag:
Ekki fyrir stórar afmælisveislur
„Mér finnst bara fínt að verða
fimmtug. Það er fínt að ná þeim
aldri,“ segir Jónbjörg Þórisdóttir, en
hún heldur upp fimmtíu ára afmæli
sitt í dag,. „Afmælisdagurinn verð-
ur rólegur hjá mér, ég verð bara að
vinna.“ Þegar hún er spurð hvað hana
langi í í afmælisgjöf verður fljótt um
svör: „Eitthvað sem tengist útivist. Ég
fer mikið í göngur og það væri gott að
fá einhvern búnað fyrir það.“
Jónbjörg er ekki mikið fyrir stór-
ar veislur og því bauð hún fjöl-
skyldu sinni í grill um helgina. „Það
eru flestir í fjölskyldunni, foreldrar
og systkini, í ferðalagi. Ætli ég haldi
ekki smá veislu eða hitting þegar þau
koma aftur heim.“ Þegar Jónbjörg
var fertug bauð hún fjölskyldu sinni
heim í mat og lýsti hún því sem ró-
legri og léttri afmælisveislu. „Afmæl-
isveislan hjá mér þetta árið verður
ábyggilega bara með svipuðu móti
og fyrir tíu árum. Eftir tíu ár þegar ég
verð sextug sé ég mig bara á svipuð-
um stað og ég er í dag og ætli ég haldi
ekki annað matarboð þá líka,“ segir
Jónbjörg og hlær.
Saga fæddist á Akureyri og ólst þar upp
í foreldrahúsum. Hún starfaði hjá KEA á
unglingsárunum en var aðeins sextán ára
þegar hún hóf að leika hjá Leikfélagi Akur-
eyrar, árið 1964. Hún var síðan í hópi fyrstu
fastráðnu leikara LA 1973-78, lék síðan hjá
Þjóðleikhúsinu í sex ár og auk þess við Borg-
arleikhúsið.
Saga hefur komið við sögu hjá flestum
miðlum sem sinna leiklist, á að baki tugi
hlutverka hjá LA, LR, Þjóðleikhúsinu, sjón-
varpi, útvarpi og í kvikmyndum, hefur einn-
ig starfað með fjölda leikhópa og rak sinn
eigin leikhóp, Revíuleikhúsið, um árabil, frá
1981, sem setti upp eitt til tvö leikverk á ári.
Saga vann hjá Stöð 2 um nokkurra ára
skeið við að talsetja teiknimyndir, stjórna
þáttum og semja barnaefni. Hún hefur einn-
ig kennt leiklist á fjölmörgum námskeiðum
á Akureyri, í Reykjavík og víða um land. Má
nefna að Leikklúbburinn Saga var stofnaður
árið 1978 eftir slíkt námskeið og heitir í höf-
uðið á leikkonunni. Þá hefur Saga skemmt
víða um land í gegnum árin, ýmist ein eða
með fleirum, á árshátíðum og öðrum sam-
komum, en dæmi um slíkar skemmtanir eru
Þórskabarett og Stjúpsystur. Þá hefur Saga
starfað að markaðs- og sölumálum hjá LR,
Þjóðleikhúsinu og LA. Loks hefur Saga leik-
stýrt fjölda leiksýninga bæði heima og er-
lendis.
Saga snéri aftur norður 1999 og starfaði
hjá LA sem leikari og markaðs- og sölustjóri
til 2004. Hún hefur einkum stundað leik-
stjórn sl. þrjú ár, fyrir t.d. Freyvangsleikhús-
ið, Leikfélag Hörgdæla og Leikfélag Dalvík-
ur.
Fjölskylda
Sambýlismaður Sögu er Guðmundur
Óskar Guðmundsson, f. 14.4. 1946, kennari
við VMA.
Synir Sögu eru Hreiðar Ingi Júlíusson;
Friðrik Geirdal Júlíusson og Helgi Páll Þór-
isson.
Foreldrar Sögu voru Jón Kristján Hólm
Ingimarsson, f. 6.4. 1913, d. 1981, formað-
ur Iðju og bæjarfulltrúi á Akureyri, og k.h.,
Gefn Jóhanna Geirdal, f. 20.8. 1910, d. 1988,
húsmóðir.
Ætt
Föðurforeldrar Sögu voru Ingimar Jóns-
son, iðnverkamaður á Akureyri, og María
Kristjánsdóttir.
Móðurforeldrar Sögu voru Steinólfur Eyj-
ólfur Geirdal, kennari og smiður í Gríms-
ey, og Hólmfríður Petrína Sigurgeirsdóttir.
Hún var dóttir Sigurgeirs, b. á Parti í Reykja-
dal Stefánssonar og Jóhönnu Pálsdóttur.
Foreldrar Steinólfs voru Eyjólfur, b. í Gils-
fjarðarmúla Bjarnason, pr. í Garpsdal, Egg-
ertssonar, og Jóhanna Halldórsdóttir, pr. í
Tröllatungu Jónssonar.
30 ára í dag
merkir íslendingar
Birgir Thorlacius
F. 28. júlí 1913, d. 2. OKTÓBEr 2001
Birgir Thorlacius var í hópi kunnustu
ráðuneytisstjóra hér á landi: Gárungarn-
ir höfðu fyrir satt að eitt sinn hafi maður
nokkur viljað ná tali af ráðherra en feng-
ið eftirfarandi svar frá ritara: „Ráðherrann
er því miður ekki við en þú getur fengið að
tala við Birgi sjálfan.“ Hér skal ósagt látið
hvort sagan sé sönn. En hún er mjög dæmi-
gerð fyrir þau miklu áhrif sem Birgir hafði
sem ráðuneytisstjóri um áratuga skeið.
Birgir fæddist að Búlandsnesi í Suður-
Múlasýslu. Hann stundaði nám við Sam-
vinnuskólann í Reykjavík og lauk þaðan
samvinnuprófi 1932, og var síðan opinber
starfsmaður allan sinn starfsferil. Hann var
þingskrifari 1931-35, starfsmaður fjármála-
ráðuneytisins 1935-38, ritari forsætisráð-
herra 1939 og fulltrúi í forsætisráðuneytinu
1941, ráðuneytisstjóri í forsætis- og mennta-
málaráðuneytinu 1947-70 og í mennta-
málaráðuneytinu til starfsloka 1983.
Birgir var auk þess í lengri eða skemmri
tíma forsetaritari og orðuritari, ríkisráðs-
ritari í tvo áratugi, formaður orðunefndar
og í stjórn Menningarsjóðs Norðurlanda,
tók þátt í menntamálaráðherrafundum
Norðurlanda, Evrópuráðs og UNESCO, sat
í nefnd um gerð skjaldarmerkis lýðveldis-
ins 1944 og um íslenska fánann og veitti
forstöðu miklum fjölda stjórnskipaðra
nefnda. Hann fór t.d. fyrir ýmsum opinber-
um nefndum sem sömdu lög um stofnun
eða breytingar á ýmsum helstu mennta-
stofnunum landsins.
Birgir var kvæntur Sigríði Stefánsdótt-
ur, formanni Kvenfélagasambands Íslands
og fyrrv. blaðamanni. Meðal systkina hans
var Kristján Thorlacius, formaður BSRB.
Foreldrar Birgis voru Ólafur Thorlacius,
héraðslæknir á Búlandsnesi í Suður-Múla-
sýslu, og k.h., Ragnhildur Pétursdóttir hús-
freyja.
Fimmtíu ára afmæli jónbjörg
Þórisdóttir heldur rólegar
og léttar afmælisveislur.