Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Síða 25
mánudagur 28. júlí 2008 25Flugan
KampavínssKál
Á föstudagskvöldið fékk býfluga óvenjuspennandi boð um að fara
með karlkynsfélaga á næturklúbb nokkurn sem leynist miðsvæðis í
Reykjavík. Einn galli reyndist þó á gjöf Njarðar; klúbburinn er einungis
ætlaður karlmönnum ... Býfluga reyndi að hylja kvenleika sinn með því
að fara í smóking og hvíta skyrtu, strekkti hárið aftur og setti upp svarta
leðurhúfu sem slútti ofan í augu. Þegar komið var fyrir utan klúbbinn í
Bankastræti (reyndar gengið inn frá Ingólfsstræti) komum við að læstu
hliði og þurftum að hringja bjöllu til að láta vita af komu okkar. Vinur-
inn er meðlimur (og með lim) og var því bæði aufúsugestur og mátti
hafa með sér „vin“. Klúbburinn er „invitation only“, og tókst býflugu að
komast inn sem herra.
Siðprúðum, kirkjuræknum borgarbúum er eflaust fáum kunnugt
um þennan leikvöll lastanna en staðurinn þjónar karlkyns gestum sem
hneigjast til sama kyns. Í kvöldlegu tali kallast hann víst MSC. Býfluga
var eina kvenkyns lífveran innan dyra og skoðaði heilluð unga, hálf-
klædda menn en leður og latex voru ráðandi í þeim litlu efnisbútum
sem strekktust yfir bera holdið. Pínkulítill bar sá um tilhlýðilegar veit-
ingar og daðurslegir dansarar sveifluðu mjöðmum í búrum sem héngu
ofan úr loftinu. Sýndist líka glitta í eins konar „fullorðinsrólu“ ... sannur
Sódómubragur löðrandi í latexþrungnu loftinu. Kann ekki við að nafn-
greina gesti hins nautnalega leyninæturklúbbs. Skemmtilegt að Ingólfs-
strætið sé svona frjálslegt í fasi, öfugt við íbúa til dæmis Njálsgötu sem
þjáðst hafa af nöturlegum nágranna-njálg; ósáttir við að aðrir en smá-
borgarar dvelji í kumböldunum þar.
synd og
sKömm
Það var ekki fögur þessi sjónin sem
blasti við borgarbúum og ferðamönnum
á sunnudagsröltinu í gær. Þótt klukkan
væri að ganga tvö höfðu borgarstarfs-
menn ekki hirt um að ganga frá þessari
skelfingu en eitthvað mikið hefur gengið
á um nóttina eða undir morgun. Möl-
brotið gler úti um allt á gangstéttinni og
langt út á götu og kaðlarnir, sem notaðir
eru til að mynda röð fólks eftir leigubíl-
um, eins og hráviði úti um allt. Fyrir utan
óprýðina af þessu er slysahættan aug-
ljós. Getur hreinsunardeildin ekki verið
jafn árrisul og stöðumælaverðirnir? Þeir
eru alla vega ALLTAF í vinnunni.
Meistari Jakob; leyfir þú hreinsunar-
deildinni djörfu að sofa út um helgar?
Hönnuðurinn gaga Skorrdal hefur nú tekið
við rekstri Blómálfsins á Vesturgötu og fæst þar nú
framúrstefnuleg hönnun í bland við blóm.
Blómálfurinn
prýðist
álfahúfum
Ástkæri Blómálfurinn okkar miðborg-
arbúa neðst á Vesturgötu hefur nú breytt
um svip og leikkonan Helga Thorberg
hefur afhent lyklana listakonunni GAGA
Skorrdal. Hin frumlega GAGA er fata-
hönnuður og fer eigin leiðir í hönnun
sinni en þekktust er hún líklega fyrir
einstæðar prjónahúfur sínar. (Þegar bý-
flugu bar að garði var kroppurinn Valdi-
mar Örn Flygenring að mála húsvegg rétt
við búðina en hann er flottastur allra
karla, svo einfalt er það.) En hönnuður-
inn í Blómálfinum hefur verið að koma
sér vel fyrir síðustu daga og þótt blóm
verði áfram á boðstólum er fjölbreytt og
lífsglöð fatahönnunin í aðalhlutverki.
Eftir heimsókn og mátun á álfahúfum
ýmiss konar var komið við á Búllunni
hans Tómasar Tómassonar og þar rakst
býfluga á fasteignasalann Magnús Leó-
poldsson sem leit svona svakalega vel út.
stungið af
úr landi
Ekki er blómlegt menningarlífið í
borginni á sumrin, fröken Reykjavík
verður löt og síestuleg og borgarbúar
stinga af í sveitasæluna eða til útlanda.
Fátt er því um fína drætti fram undan, við
getum þó alla vega hlakkað til Gay Pride,
guði sé lof, og svo menningarnæturinnar
miklu.
Svo er blessuð verslunarmannahelgin
handan við hornið en það er ekki
býflugustíll að fara á útihátíðir og
velkjast um í tjaldi undir rammfölsku
kassagítarspili, fjarri lúxusnum. Og hún
nennir sko alls ekki að hanga á Innipúk-
anum á NASA eina verslunarmannahelg-
ina enn. Því verður flugið tekið til Dublin
hvar okkar kona ætlar að kynna sér
alvöru, írska kráarstemningu, kaupa sér
nýjustu fatahaustlínuna og byrgja sig upp
af snyrtivörum í fríhöfninni fyrir vetur-
inn.
Þið lofið að skemmta ykkur vel á
meðan ...
Flugan Fór víða um helgina:
Að vanda var sólskin og hiti á Krútt-
landinu okkar góða um helgina og býfluga
fleygði hamslaus af gleði af sér hamnum
eftir langa og sveitta biðröð í Laugardals-
lauginni og stakk sér til sunds. Við stelp-
urnar röðuðum okkur síðan sólarolíu-
bornar ofan í saltpottinn með sólgleraugu
á nefbroddum en í saltvatninu verður
kona einmitt brúnust. Tandurhreinar með
sólroða í kinnum skruppum við vinkon-
urnar svo í Suðurgötukirkjugarð á leyni-
staðinn okkar þar sem er mikið skjól og
sólríkt og nánir ættingjar á næsta leiti,
þöglir sem gröfin, voru með okkur í anda
þegar við opnuðum kampavínsflösku
og drukkum kvenlega af stút. Í þeim til-
gangi að kæla okkur niður höfðum einnig
meðferðis nokkrar gerðir af exótískum og
safaríkum melónum. Skálað var fyrir ætt-
ingjum neðanjarðar, blíðviðrinu og vin-
skapnum. Úr kirkjugarðinum lá leið okk-
ar í léttan kvöldverð borinn fram á dúklagt
borð í hlýrri kvöldsólinni fyrir utan Thor-
valdsen og um áttaleytið fengum við okk-
ur hressigöngu upp Laugaveginn með
sterkt kaffi í skrautlegum götumálum. Í
hitamollunni þennan hlýjasta dag ársins
flykktist fólk út á götur borgarinnar, létt-
klætt og brosandi og stjörnulögmaðurinn
Sveinn Andri Sveinsson fékk hjörtu okkar
til að slá örar þar sem hann gekk einsam-
all niður Laugaveginn, kæruleysislegur í
spori, í afar vel sniðnum svörtum jakka-
fötum.
Býflugan
Líf og fjör var á markaðinum
hjá leikkonunum sem voru með
tískuráðgjöf. meðal annarra var þar
fyrrverandi ungfrú reykjavík,
Fanney lára guðmundsdóttir.
Atómstöðin var með útgáfu-
tónleika á Organ á laugardags-
kvöldið og var rokkbandið með
fjöruga sviðsframkomu.
Leikkonurnar Elma Lísa og
Magga úti á svölum fatamarkað-
arins skemmtilega sem haldinn var
á lindargötu, sú fyrrnefnda með
ómótstæðilegan monroe-kjól.
Götuspilarinn vinalegi, jojo,
hitaði upp fyrir atómstöðina.
í KirKjugarðinum
leynilegur lastaKlúBBur
Valdimar Örn Flygenring
var sérlega myndarlegur í
málningargallanum á
sunnudagsmorguninn en sá
fagri kroppur heillaði býflugu
upp úr skónum.