Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2008, Blaðsíða 30
mánudagur 28. júlí 200830 Síðast en ekki síst
Sandkorn
n Smekkleysa plötubúð virðist
vera með níu líf ef marka má
nýjustu fregnir. Það hafa eflaust
fáar verslanir tilkynnt jafnoft
um lokun
en svo ver-
ið opnað-
ar skömmu
síðar í nýjum
húsakynn-
um, tónlist-
aráhuga-
mönnum
til mikillar
gleði. Um helgina var verslunin
einmitt opnuð á ný á Laugavegi
35 með heljarinnar opnunarteiti
á föstudeginum. Tónlistarmað-
urinn Plúseinn tróð upp gest-
um til mikillar gleði en hann er
þekktastur fyrir tónlistarsköp-
un sína með gleðisveitinni FM
Belfast.
n Gagnrýnendur íslensku blað-
anna eru sammála um að kvik-
myndin The Dark Knight sé sú
besta á þessu ári enn sem kom-
ið er. Allir
virðast sáttir
fyrir utan
Dr. Gunna
sem skrifar á
bloggi sínu:
„Á hvaða
tímapunkti
var það
ákveðið að
þessi nýjasta
Batman mynd væri best mynd
í heimi? Mér finnst eins og það
hafi verið löngu ákveðið áður en
myndin kom í bíó og svo gekk
það svona ægilega fínt eftir. Er
það af því að Heath er dáinn?
Mig langar eiginlega ekkert
á þessa mynd.“ Hann tekur
það einnig fram að hann horfi
kannski á hana í sjónvarpinu og
sofni yfir henni rétt eins og fyrri
myndinni, Batman Begins.
n Morgunblaðið greindi frá því
á föstudag að Einar Bárðar-
son hygðist láta af störfum sem
umboðsmaður og helsti ráðgjafi
Garðars Thórs Cortes. Megin-
ástæðurnar sem umboðsmað-
urinn gaf upp var væntanlegur
erfingi númer tvö og að Garðar
væri kominn í fremstu röð á
sínu sviði á
heimsvísu
og þyrfti því
ráðgjafa sem
væri lengra
kominn
en Einar á
erlendum
mörkuð-
um. Eftir
samtalið við blaðamann sagðist
Einar vera að fara að hitta ann-
an skjólstæðing sinn, eina allra
virtustu óperusöngkonu heims,
Kiri Te Kanawa. Ef Garðar er
„of stór“ fyrir Einar, hvað þá
með frú Te Kanawa?
Hver er maðurinn?
„Silja Úlfarsdóttir, hlaupadrottning.
Ætla að fá að segja það í síðasta skipti
núna.“
Hvað drífur þig áfram?
„Það er spurning um í hverju fyrst
ég er að hætta að hlaupa. Ég er mjög
metnaðarfull í því sem ég tek mér fyr-
ir hendur.“
Við hvað lékstu þér helst þegar
þú varst yngri?
„Barbí.“
Hvað langaði þig til að verða
þegar þú yrðir stór?
„Sjoppukona.“
Hver er uppáhaldssjónvarpsþátt-
urinn?
„Sex and the City. Mér finnst vin-
konuþemað alltaf skemmtilegt.“
Við hvað starfar þú?
„Ég er akkúrat á tímamótum. Í dag er
ég íþróttamaður en á morgun verð ég
þjálfari.“
Hvernig líður þér núna?
„Það eru mjög miklar tilfinningar í
gangi. Ég er mjög hamingjusöm en
samt hálfsnökktandi.“
Er verra eða betra að hætta eftir
svona árangursríkt mót?
„Ég held að það sé betra því þá hættir
maður ánægður og á toppnum.“
Hvað ertu margfaldur Íslands-
meistari í dag?
„Ég er fimmfaldur Íslandsmeistari
um helgina en örugglega um fimm-
tíufaldur samtals.“
Finnst þér þú hafa afrekað allt
sem er í boði hér heima fyrst
ólympíulágmörkin náðust ekki?
„Nei, hefði viljað ná betri árangri.
Hefði viljað keppa meira á stórmót-
um og hlaupa bara miklu hraðar.“
Er það ekki bara smá hvíld og
mæta síðan aftur á toppi ferilsins
og komast á Ólymíuleikana í
London 2012?
„Er ekki farin að hugsa svo langt enn-
þá.“
Er andlegir þátturinn vanmetinn
í frjálsum íþróttum sem og
öðrum?
„Það hugsa ég. Fólk þarf að vinna mun
meira í því en oft er raunin. Mér finnst
fólk þurfa að hafa aðeins meiri trú á
sér. Maður verður að æfa sig heima
líka en ekki bara á æfingum.“
Hvaða ráð vilt þú gefa ungu
frjálsíþróttafólki landsins sem
lítur upp til þín?
„Vera dugleg á æfingum og hlusta á
þjálfarana.“
Ætlarðu að mennta þig sem
þjálfara?
„Ég er mikið sjálfmenntuð í gegn-
um mína miklu reynslu sem íþrótta-
maður og hún mun nýtast mér vel.
Í vetur ætla ég svo í einkaþjálfara-
nám í Íþróttaakademíu Keflavíkur.
Mig langar einnig að læra meira um
íþróttameiðsli.“
FH gaf þér utanlandsferð að gjöf.
Hvert er ferðinni heitið?
„Ég fer til Parísar í viku með mann-
inum mínum Vigni Grétari Stefáns-
syni (fyrrverandi Íslands- og Norð-
urlandameistari í júdó). Frakkland er
liggur við eina landið í Evrópu sem ég
á eftir að koma til. Allavega af þeim
stóru. Svo það verður frábært.“
MAÐUR
DAGSINS
Íþróttamaður Í dag,
þjálfari á morgun
Silja Úlfarsdóttir keppti á sínu
síðasta móti um helgina. Hún varð íslands-
meistari í öllum fimm greinunum sem hún
keppti í og hættir því á toppnum. Það var
tilfinningaþrungin stund þegar hún hljóp
síðasta hlaupið. Silja stefnir á þjálfun en
fyrst ætlar hún að slaka á í París.
BókStAfleGA
„Þetta fólk er
fyrst og fremst
að skemmta
sér. Fram-
koman er öll
í þeim anda
sem út af fyrir sig
er í góðu lagi,“
n Friðrik Sophusson, forstjóri
landsvirkjunar, um háttalag Saving
Iceland. - visir.is
„Ég sagði í vetur, við litla
hrifningu Samfylkingarinn-
ar, að liður í lausn efna-
hagsvandans væri sá að
semja við Samfylkinguna
um að hún talaði ekki um
efnahagsmál í hálft ár. Mér
sýnist full þörf á því ennþá.“
n Steingrímur j. Sigfússon um ráð gegn
efnahagsvandanum. - dV
„Þetta eru athyglissjúk-
ir bjánar sem vilja bara
standa í þessu brölti
með sínum líkum. Fá sér
kannski bjór á eftir.“
n Egill Helgason, sjónvarpsmaður og
þjóðfélagsrýnir, um meðlimi Saving
Iceland. - eyjan.is/silfuregils
„Flestar greinar reyna að
skoða sjálfar sig, setja nið-
ur framtíðarplön og fleira.
En það er ekkert svoleiðis
í íslenska kvik-
myndabrans-
anum. Við
höfum alltaf
haldið illa á
okkar mál-
um.“
n Hjálmtýr Heiðdal, formaður Félags
kvikmyndagerðarmanna. - dV
„Ég hef stungið upp á því
við Garðar að
ég láti af störf-
um sem um-
boðsmaður
og hans helsti
ráðgjafi.“
n Einar Bárðason „umboðsmaður
íslands“ um að hann ætlar að einbeita
sér meira að fjölskyldunni og
stjórnarstörfum hjá Believer music. -
morgunblaðið.
„Nei, ég hef ekki hitt Mört-
hu Stewart. Hún er greini-
lega í miklu og góðu atlæti
hjá forsetanum. Hann hef-
ur séð um þá deild.“
n Þorgerður Katrín gunnarsdóttir
menntamálaráðherra og starfandi
forsætisráðherra um heimsókn mörthu
Stewart til íslands. - dV
„Jón Trausti er vissulega
frægur og hefur ímynd
hörku en í mínum augum
er hann ósköp venjulegur
náungi en með slæmt orð-
spor.“
n Sveinn andri Sveinsson lögfræðingur
um skjólstæðing sinn, vítisengilinn jón
Trausta lútherson. - dV
„Er þetta ekki eðlileg tog-
streita milli þeirra sem eru
að reyna að vekja á sér at-
hygli og þeirra sem þykjast
vita hvernig hlutirnir eiga
að vera?“
n Óttarr Proppé
söngvari um alla
þá gagnrýni sem
fylgt hefur nýjustu
auglýsingaherferð
Vodafone. - dV
„Brimrún Birta hefur alltaf haft
gaman af því að teikna. Ég hef verið
að fikta smá við að mála með olíulit-
um og hún hefur oft spurt hvort hún
megi prufa. Hún fór svo í listasmiðju
í Viðburðaviku Vesturlands sem var
haldin í vor á Snæfellsnesi og þá fékk
hún að mála með akríllitum,“ segir
Sigríður Margrét Vigfúsdóttir móðir
Brimrúnar Birtu sem hefur selt mál-
verk sín á kaffihúsi móður sinnar,
Gamla Rifi, vinum og kunningjum
og erlendum ferðamönnum.
Öll verk barnanna sem voru í
listasmiðjunni voru til sýnis á kaffi-
húsinu Gamla Rifi. „Við erum að fá
Svíahópa til okkar og einn Svíinn
vildi kaupa eina mynd á veggnum
og það var akkúrat myndin henn-
ar Brimrúnar Birtu,“ segir Sigríður.
„Hann keypti myndina á tvö þúsund
krónur og það kveikti alveg í henni
áhugann. Hún fór heim og málaði
fleiri myndir.“
Brimrún Birta hefur selt á bilinu
sautján til tuttugu myndir í sumar
og má það teljast mjög gott þar sem
stúlkan er aðeins ellefu ára göm-
ul. „Það hafði rosalega mikil áhrif á
sjálfstraustið hjá henni að einhver
hefði áhuga á að kaupa myndirn-
ar hennar. Systir hennar er á leið í
Listaháskólann í haust og ég býst al-
veg við því að hún fari svipaða leið
þegar hún verður eldri,“ segir Sigríð-
ur stolt af dóttur sinni.
Brimrún Birta er ungur listamaður á Snæfellsnesi:
Málar myndir af Snæfellsjökli
Snæfellsjökull Brimrún Birta byrjaði að
mála jöklamyndir í vor í Viðburðaviku
Vesturlands.
dV-mYnd áSgEIr