Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Blaðsíða 2
Mánudagur 11. ágúst 20082 Fréttir „Við hjónin tilkynntum það nánast samstundis að hann væri látinn. Síðan þá höfum við endurtekið fengið bréf frá Tryggingastofnun þess efnis að þeir þyrftu að fá upplýsingar um tekjur hans til að geta reiknað út örorkubætur,“ seg- ir Guðmundur Guðjónsson, fað- ir ungs manns sem svipti sig lífi í Danmörku síðasta haust. Sonur Guðmundar fékk bætur greiddar mánaðarlega frá Trygg- ingastofnun en þeim greiðslum var hætt mánaðamótin eftir lát hans. „Það er óttalega óþægilegt að fá svona hótunarbréf,“ segir hann. Tilkynntu andlátið tvisvar Guðmundur var fjárhaldsmað- ur sonar síns og því voru bæturn- ar greiddar inn á reikning Guð- mundar sem síðan millifærði þær á reikning sonar síns í Danmörku. Strax í september í fyrra tilkynnti Guðmundur Tryggingastofnun um lát sonar síns. „Við höfum í tví- gang haft samband og sagt þeim að hann væri látinn,“ segir hann. Þrátt fyrir það fær hann áfram bréf þar sem honum er gert að skila inn gögnum til stofnunarinnar. Í fyrri bréfum hefur verið óskað eftir upplýsingum um tekjur son- ar hans á síðasta ári. „Að afla gagna um hvort hann hafi mögulega haft einhverjar tekjur í öðru landi á síðasta ári er okkur ómögulegt,“ segir Guðmundur. „Konan mín var í símasambandi við stúlku hjá Tryggingastofnun sem þurfti að ganga á milli sinna yfirboðara til að fá svör. Skilaboðin sem við fengum var að þetta væru gögn sem við þyrftum að skila inn, þrátt fyrir að hann væri látinn.“ Grunaði maðk í mysunni Í nýjasta bréfinu sem honum barst nú um mánaðamótin bregð- ur hins vegar við nýjan tón. Þar er honum tilkynnt að greiðslum bóta verði hætt frá og með september- mánuði ef tilgreindar upplýsing- ar berist ekki stofnuninni fyrir 20. ágúst. „Þetta síðasta bréf er alveg út úr korti. Það er eiginlega sterkara en fyrri bréf. Við höfum ekki feng- ið krónu, eðlilega, síðan hann lést í september. Þetta er hreinlega bara hótunarbréf,“ segir Guðmundur. „Þarna er gefið í skyn að það sé enn verið að greiða þessar örorku- bætur inn á reikninginn, sem er auðvitað af og frá. Maður spyr sig þá hvort það sé einhver hjá Trygg- ingastofnun sem er mögulega að falsa dauða hans og þessar greiðsl- ur fari þá inn á reikning starfsmanns,“ segir hann. Annað hljóð í skattstjóranum Þau gögn sem Guðmundur er nú beðinn um að skila eru afrit af hans eigin skattaskýrslu. „Ég get ekki séð hvað það hefur með bætur til hans að gera, sem engar eru.“ Hann furðar sig á vinnubrögð- um Tryggingastofnunar og bend- ir á hversu liðlegt starfsfólk Rík- isskattsjóra var þegar hann hafði samband þegar honum barst beiðni um skattaskýrslu sonar síns. „Ég bara hringdi í þá og sagði þeim að hann hefði svipt sig lífi. Sú sem ég talaði við var ekkert nema kurteisin uppmáluð og gekk frá þessu. Þar hefur ekki verið neitt vandamál,“ segir Guðmundur. Mistök Tryggingastofnunar Að mati Guðmundar er einnig undarlegt að enginn starfsmað- ur Tryggingastofnunar skuli vera skrifaður fyrir þeim bréfum sem berast. Undir þau er einfaldlega skrifað: Tryggingastofnun ríkisins. „Mér er ekki boðið að hafa sam- band við neinn og ekki gefið upp símanúmer hjá neinum sem sér um málið. Það er enginn ábyrgur fyrir bréfinu.“ Þegar blaðamaður hafði samband við Trygg- ingastofnun bar hann upp erindi sitt við starfsmann á skiptiborði. Sá bað blaða- mann um að bíða augna- blik. Stuttu síðar var hon- um tilkynnt að þetta væru mistök. Þannig þyrfti Guð- mundur ekki að skila inn neinum gögnum og eng- ar greiðslur eyrnamerkt- ar syni hans hefðu ver- ið reiddar af hendi. Þær skýringar voru gefnar að nafn sonar hans hefði lent í röngum bunka. „Það er óttalega óþægilegt að fá svona hótunarbréf.“ Guðmundur Guðjónsson hefur ítrekað fengið bréf frá Tryggingastofnun þar sem óskað er upplýsinga vegna bótagreiðslna til sonar hans. Sonur Guðmundar lést hins vegar í september í fyrra og tilkynnti Guðmundur strax um andlátið. Engar bóta- greiðslur hafa borist síðan en Tryggingastofnun sendir honum enn bréf og hótar nú að hætta greiðslum um næstu mánaðamót ef viðeigandi upplýsingar berast ekki. Guðmundur furðar sig á vinnubrögðunum. ErlA HlynsdóTTir blaðamaður skrifar: erla@dv.is LÁTNUM SYNI HÓTAÐ Tóku ekki mark á föðurnum trygginga- stofnun tók ekki gild þau svör guðmundar að sonur hans væri látinn og óskaði eftir gögnum um tekjur hans á síðasta ári. óskar enn eftir persónuupplýsingum sonur guðmundar lést fyrir ellefu mánuðum en tryggingastofnun sendir enn bréf til að fá upplýsingar um hann. stofnuninni hefur tvívegis verið tilkynnt um andlátið. Ítrekunin síðasta bréfið sem guðmundur fékk frá tryggingastofnun. Hlaup í Skaftá Hlaup hófst í Skaftá á laugardaginn og var rennslið í gærmorgun 300 rúmmetr- ar á sekúndu. Guðmundur Ingi Ingason, varðstjóri hjá lögreglunni á Kirkjubæj- arklaustri, sagði að alltaf væri að bætast í ána. Vatn hafi ekki farið yfir veginn hjá Kirkjubæjarklaustri en í Skaftárdal liggur vegurinn að sumarbústöðunum meðfram ánni og er vegurinn undir vatni. Ekki er jafn mikið vatn núna og var árið 2006 þar sem aðeins er um að ræða annan ketilinn í Vatnajökli en ekki báða eins og 2006. „Bankarnir eru lokaðir og þetta er sá ískaldi raunveruleiki sem við stönd- um frammi fyrir,“ segir Karl Georg Sig- urbjörnsson hæstaréttarlögmaður og annar tveggja eigenda fasteignasöl- unnar Miðborgar. Fyrirtækið hefur nú sagt upp þremur af átta starfsmönn- um. „Við verðum bara að sníða okkur stakk eftir vexti. Það er svo einfalt. Það vantar peninga til að fjármagna eign- irnar. Kerfið er alveg frosið og bank- arnir lána ekki krónu. Við höfum horft upp á 80 til 90 prósenta samdrátt á fast- eignamarkaði,“ segir Karl. Hann á ekki von á því að þurfa að segja upp fleiri starfsmönnum. Hann vonast til þess að ástandið glæðist með haustinu en bendir á að ríkisstjórnin hafi lítið sem ekkert gert til að bæta úr ástandinu. Hann segir enn fremur að stærst sé vandamálið hvað stórar eignir varðar. Íbúðalánasjóður láni vissa upphæð en ekki nærri nóg til að stórar eignir selj- ist. Þrátt fyrir uppsagnir hjá eigin fyrir- tæki segist Karl hafa mestar áhyggjur af fólki sem hafi freistast til að taka lán í erlendri mynt. „Þeir sem tóku erlend lán upp á 30 til 40 milljónir sitja verst í súpunni. Lánin hafa hækkað um allt að helming og eru miklu hærri en verðgildi húsanna,“ segir Karl að lok- um. baldur@dv.is Þremur af átta starfsmönnum fasteignasölunnar Miðborgar sagt upp: Ískaldur raunveruleikinn Bankarnir lokaðir „Við verðum bara að sníða okkur stakk eftir vexti. Það er svo einfalt,“ segir eigandi fasteignasölu. Ástin blómstrar á ný í Bolungarvík Ástarvikan í Bolungarvík var sett í fimmta sinn í gær. Hátíðin hefur það markmið að fjölga íbúum bæjarins. Hún hefur verið vinsæl síð- ustu ár og sett skemmtilegan svip á sumrin í Bolungarvík þau ár sem hátíðin hefur ver- ið haldin. Hátíðin var sett þar sem svokallaður Hundruð hjarta skógur var skapaður úr hjörtum skornum úr við. Hjörtun verða reist upp sem tré sem merkja ást Bolvík- inga á heiminum öllum. Panikk á Prikinu „Það greip um sig ofsa- hræðsla í smástund, eða þar til lögreglan opnaði töskuna og komst að því að þetta var fransk- ur listamaður,“ segir Símon Örn Reynisson, aðstoðaryfirkokk- ur á Prikinu. Í gærkvöldi kom á Prikið arabi sem bað um að fá að geyma töskur sínar á staðnum meðan hann skryppi frá í tvo tíma. Töskurnar vöktu grun- semdir starfsfólks, sér í lagi í ljósi sprengjuhótunar vegna Gay Pride göngunnar fyrr í vikunni. Þar sem Q-bar er við hlið Priks- ins og taskan var læst með talna- lási var lögreglan kölluð út. Bet- ur fór þó en á horfðist. „Í báðum töskunum voru sundurskornar dósir og einhver skringilegur klæðnaður,“ segir Símon Örn en töskurnar höfðu enn ekki verið sóttar þegar DV talaði við hann. Bústaður eyði- lagðist í eldi Sumarbústaður nærri Geysi í Haukadal gjöreyðilagðist í eldsvoða í gærmorgun. Lög- regla fékk tilkynningu um eld- inn stundarfjórðung yfir sjö í gærmorgun. Lögreglumenn frá Selfossi og slökkviliðsmenn frá Reykholti og Laugarvatni héldu á staðinn til að berjast við eldinn en þegar komið var á staðinn var sumarbústaðurinn alelda. Vatnsskortur gerði slökkvistarf enn erfiðara en ella. Þó tókst að slökkva eldinn eftir um þrjár klukkustundir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi er bústað- urinn alveg ónýtur ásamt öllu því sem í honum var. Enginn var í bústaðnum og eldsupptök voru út frá logandi kerti sem eigand- inn skildi eftir þegar hann fór í gönguferð. Hrossin hurfu Lögreglunni á Suðurnesj- um var tilkynnt um hross á hlaupum á Reykjanesbraut- inni ekki langt frá Kúagerði aðfaranótt sunnudags. Er lögregla kom á vettvang voru sjö hross á hlaupum austur Reykjanesbrautina. Hrossin hlupu út af veginum skammt vestan við álverið í Straums- vík þar sem þau hlupu niður að sjó og hafa ekki sést síðan. Reynt var að hafa uppi á eig- anda hrossanna en ekki var búið að finna eigandann síð- degis í gær. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.