Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Side 6
Mánudagur 11. ágúst 20086 Fréttir Launin sem ungmenni hafa fengið greidd fyrir vinnu hjá sveitarfélögum landsins eru mjög mismunandi eftir því hvar þau búa. Reykjavíkurborg greiðir unglingum í vinnuskóla lægstu launin á landinu. Dæmi eru um að sveitarfélög á Vestfjörðum greiði 60 prósent hærri laun en borgin. Verkalýðsfulltrúi hrósar sveitarfélögunum fyrir gott framtak. Unglingar að störfum í Reykjavík Fá 40 til 60 prósent lægri laun en starfsmenn vinnuskólanna á Vestfjörðum. dV-Mynd gúndi Borgin greiðir lægstu launin lilja gUðmUndsdóttiR blaðamaður skrifar lilja@dv.is Tveimur hópum manna laust saman á Hverfisgötu um klukkan 17 á laugardag. Í miðjum átökun- um var hnífi brugðið og einn mað- ur var fluttur á slysadeild með skurð á hendi. Einhverjir í hópnum huldu andlit sín með grímum og sjónar- vottur segir andlit Osama bin Laden hafa skotið upp kollinum í áflogun- um. Fjórir voru handteknir vegna málsins, þrír fljótlega og einn síðar um daginn. Sá fjórði sem lögregl- an handsamaði reyndist vera árás- armaðurinn. Hann var yfirheyrður á laugardagskvöld og viðurkenndi þátt sinn í verknaðinum. Að sögn sjónarvottar að árásinni var sá sem fyrir hnífsbragðinu varð með bin Laden grímu. „Þetta var rosalegt. Blóðbunan stóð út úr hendinni á honum. Maður er eigin- lega í sjokki eftir að hafa horft upp á þetta,“ sagði sjónarvotturinn í við- tali við dv.is á laugardag. „Hér eru tveir hópar í leðri fyrir utan. Löggan og hommarnir,“ sagði íbúi við Hverfisgötuna skammt frá árásarstaðnum. Hann sagðist hafa rokið út þegar hann varð var við atganginn og hafði það eftir lög- reglumanni á vettvangi að svo virt- ist sem um uppgjör tveggja hópa út- lendinga hefði verið að ræða. Þetta reyndist þó ekki rétt þar sem allir í átökunum eru Íslendingar. Lögguhasarinn á Hverfisgötunni fór heldur ekki fram hjá útvarps- manninum Halldóri E. á Útvarpi Sögu, sem býr við Hverfisgötu. „Ég sá fyrst að eitthvað væri athuga- vert þegar ég sá tvo lögreglumenn standa heiðursvörð við þvottahúss- dyrnar hjá mér, Ég tengdi þetta strax því að ég var að þvo nærbuxur sem ég á í fánalitunum,“ segir Halldór. Þegar Halldór varð var við lög- reglumenn sem rótuðu í garði hans með kylfum komst hann að því að verið væri að leita að árásarvopn- inu fyrir utan húsið. Lögreglumað- ur á staðnum vildi ekki staðfesta að hann væri að leita að hnífi en sagði: „Við erum að minnsta kosti að leita að einhverju.“ Lögreglan lokaði hluta Hverf- isgötunnar um stund og girti vett- vanginn af. Blóðslóðin á götunni var býsna löng og því ljóst að maðurinn, sem fyrir árásinni varð, hefur misst talsvert blóð þótt meiðsl hans séu eki sögð alvarleg. Lögreglan stað- festi að einhverjir mannanna hefðu hulið andlit sín grímum en gat ekki staðfest að bin Laden hefði verið í hópnum. toti@dv.is „Að mínu mati er brotið á unglingum með þessum lágu launum. Við leit- umst við að vera sanngjörn því þau vinna ómetanlega vinnu,“ segir Eyr- ún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps. Hreppurinn, ásamt Vesturbyggð, greiðir hæstu launin á landinu. Þessi tvö bæjar- félög ákváðu að gera sérstaklega vel við unglinga vinnuskólans til þess að veita þeim hvatningu til að snúa aftur heim næsta sumar. „Við greið- um mun hærri laun en í fyrra og auð- vitað eykur það kostnaðinn hjá okk- ur umtalsvert en þetta skiptir okkur máli,“ segir hún. Hærri laun á landsbyggðinni Samkvæmt úttekt Verkalýðs- félags Akraness greiðir Reykjavík- urborg lægstu laun þeirra fjórtán sveitarfélaga sem starfsmenn verka- lýðsfélagsins skoðuðu. Í könnuninni voru laun 14, 15 og 16 ára unglinga vítt og breitt um landið borin saman. Borgin greiðir 16 ára unglingi 486 krónur á tímann meðan tvö sveitar- félög á Vestfjörðum greiða 735 krón- ur fyrir sömu vinnu. Munurinn er 216,16 krónur, eða 44,5 prósent. Rúmlega 35.000 meira í mánaðarlaun Mestur er munurinn þó hjá 15 ára unglingum en Ísafjörður og Súðavík greiða þessum aldurshópi 585,13 krónur á tímann en Reykjavíkurborg aðeins 366 krónur, eða 219,13 krón- um minna. Vestfirsku sveitarfélögin greiða því 59,9 prósent hærri laun í þessum aldursflokki en borgin. Sveit- arfélög á Vestfjörðum og Austurlandi koma best út á meðan vel stæð sveit- arfélög eins og Reykjavík, Akureyri og Akranes greiða sínum unglingum lægstu launin. Reykvískir unglingar gætu virkilega bætt kjör sín með því að fara á Vestfirði og vinna yfir sum- artímann. Fimmtán ára stelpa fær 58.560 krónur í mánaðarlaun fyr- ir 8 tíma vinnu í Reykjavík, en fengi 93.621 krónu fyrir sömu vinnu á Ísa- firði eða í Súðavík. Það gera rúmlega 35.000 krónum hærri laun. Engin skýring á launamuninum Sveitarfélögin hafa ekki sameig- inlegan taxta en hafa þó samning Starfsgreinasambandsins til viðmið- unar. „Þessu er algjörlega öfugt farið á hinum almenna vinnumarkaði þar sem lægstu launin eru úti á landi. Það er rík ástæða til að hrósa þeim sveitarfélögum sem miða við að lág- markslaun 16 ára krakka séu 90 pró- sent af lágmarkslaunum, rétt eins og á almenna vinnumarkaðnum. Kannski stafar þetta af meira fram- boði vel launaðrar vinnu fyrir þessa krakka á landsbyggðinni en í raun hef ég enga skýringu. Stærri sveit- arfélögin ættu að taka þetta til fyrir- myndar,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. minni sveitarfélög bjóða betur Á Norðurlandi eru launin ein- ungis litlu hærri en í Reykjavík en 16 ára unglingar á Akureyri fá þremum krónum meira á tímann. Akranes býður aðeins betur og greiðir 16 ára 538 krónur á tímann sem er tæpum 27 prósentum hærra en í Reykjavík. Svo virðist sem minni sveitarfélög um allt land geri betur við unglinga sína þrátt fyrir að samkeppni um vinnuafl sé minni þar. Starfsemi vinnuskólanna er nú víðast hvar lokið en síðasti vinnudagur- inn var á föstudag- inn hjá borginni. tímakaUp Hjá 16 áRa Unglingi ak ur ey ri st ra nd ab yg gð re yk hó la r Fj al la by gg ð Bo lu ng ar ví k Da lv ík se yð isf jö rð ur Hö fn Ís af jö rð ur Fj ar ða rb yg gð tá lk na fjö rð ur re yk ja ví k 486 k r. 489 k r. 493 k r. 503 k r. 529 k r. 585 k r. 705,7 2 kr. 735 k r. 702,1 6 kr.638,6 kr.632 k r. 623,3 1 kr. dáist að litlu sveitarfélögunum Vilhjálmur Birgisson vill að fleiri sveitarfélög greiði 16 ára unglingum 90 prósent af lágmarkslaunum fullorðinna. Einn særðist illa á hendi þegar tveir hópar börðust í miðbæ Reykjavíkur: Bin Laden í hnífabardaga á Hverfisgötu lögregla leitar sönnun- argagna Mikið blóð var á vettvangi. Lögreglumenn leituðu sönnunargagna í nágrenni svæðisins þar sem bardaginn átti sér stað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.