Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Síða 7
Mánudagur 11. ágúst 2008 7Fréttir Íslenska sprotafyrirtækið Amivox hefur undanfarin tvö ár unnið að nýju samskiptaforriti fyrir farsíma- notendur. Nú býðst farsímanotend- um um heim allan að hlaða frumút- gáfu forritsins í símann sinn. Forritið byggir á því að eiga samskipti með raddupptökum. Amivox kemur til með að slíta barnsskónum á íslenskum mark- aði, að sögn Birkis Marteinssonar, eins þriggja stofnenda fyrirtækisins. Stefnan er þó sett á heiminn allan. Röddin best Amivox byggir á svipaðri hugs- un og MSN-samskiptaforritið. Mun- urinn er hins vegar sá að notendur taka upp raddskilaboð á farsímann og senda sín á milli í stað þess að rita skilaboðin. Amivox býður einnig upp á þá möguleika að senda radd- upptökurnar í heimasíma, tölvupóst, SMS og jafnvel til tengiliða á MSN. Birkir segir til mikils hægðarauka að nota röddina í stað þess að bisa við lyklaborð farsímanna og skrifa skilaboðin. Nafnið Amivox vísar til þessa, en það er samsuða orðanna amicus og vox, sem merkja vinur og rödd. „Röddin er í rauninni það tól sem er þægilegt fyrir alla að nota þegar þú átt í samskiptum,“ segir Birkir. „Í farsímaheiminum er það alþekkt að vinsælasta þjónustan er einfaldlega að tala í símann.“ Ódýrt Hugmyndin að Amivox spratt hjá stofnendum fyrirtækisins þegar þeir unnu sjálfir hjá íslenskum sím- fyrirtækjum. „Við sáum að það voru að koma fullkomnari farsímar, full- komnara internet og gagnaflutning- ur að aukast. Þá kviknaði sú hug- mynd að búa til samskiptanet sem lægi ofan á öllum hinum samskipta- netunum eða símkerfunum.“ Amivox notast við gagnaflutn- ingsnet farsímakerfanna til að koma raddupptökunum á milli notenda. Samkvæmt útreikningum fyrirtæk- isins er slíkt í mörgum tilfellum mun ódýrara en að hringja hefðbundin símtöl eða senda textaskilaboð. „Þannig gætir þú átt samskipti við vini þína hvar sem þeir væru, hér á Íslandi, í Ástralíu eða hvar sem er í heiminum á innlendu verði,“ segir Birkir. Stórir draumar Amivox hlaut styrk frá tækniþró- unarsjóði í fyrra. Þar að auki hefur það aðstöðu í nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Klakinu, og í Hill- ington Wireless Innovation Centre tæknigarðinum í Skotlandi. Að sögn Birkis munu fyrstu skref Amivox stigin á Íslandi þó ekkert sé því til fyrirstöðu að heimurinn allur tileinki sér tæknina. „Þú getur strax byrjað og átt vini í Ástralíu þess vegna. Það er ekkert sem stoppar dreifingu nokkurs stað- ar í heiminum.“ Birkir segir fyrirtæk- ið horfa svo á að margir munu nýta sér þjónustuna og hún dreifast um allan heim. „Við eigum stóra drauma,“ segir Birkir að lokum. Áhugasömum er bent á heima- síðu Amivox, amivox.com, en þar má nálgast forritið. Íslenska sprotafyrirtækið Amivox býður nú farsímanotendum nýtt samskiptaforrit þeim að kostnaðarlausu. Hugmyndin að baki forritinu er að hægt sé að senda raddupptökur á milli notenda. Slíkt er að sögn talsmanna fyrirtækisins í mörgum tilfellum mun ódýrara en hefðbundin símaþjónusta. Vonir fyrirtækisins standa til að Amivox nái alheimsdreifingu. Þeir Stefna á heimSyfirráð „Þú getur strax byrj- að og átt vini í Ástralíu þess vegna. Það er ekk- ert sem stoppar dreif- ingu nokkurs staðar í heiminum.“ hafSteinn gunnaR haukSSon blaðamaður skrifar: hafsteinng@dv.is Borgin greiðir lægStu launin holar@simnet.is SÖNN SAKAMÁL fróðleikur og gamansögur SPENNA - nýtt tímarit spenna1-2008.qxp 7.7. 2008 15:26 Page 1 Að eiga og elska heimsins versta hund -Mjög fyndin ástarjátning ... Í bókinni Marley og ég er viðfangsefninu lýst af hlýju ... gamansemi og ástúð. New York Times -Fyndin og hjartnæm saga um fimmtíu kílóa Labrador sem var jafn tryggur og elskulegur og hann var óþekkur. People -Hugsanlega hugljúfasta bók ársins. Sannarlega hundavinabók ársins. USA Today MARLEY OG ÉG er bók sem allir hundaáhugamenn verða að lesa - og hinir líka. Marley og ég John Grogan Að eiga og elska heimsins versta hund Á metsölulista New York Times Frum- útgáfa í kilju HÓLAR Merki fyrirtækisins amivox stefnir á alheimsdreifingu forritsins. amivox-teymið Frá hægri talið eru stofnendurnir Birkir Marteinsson og Erik Figueras torres ásamt starfsmanninum Þórarni sigurðssyni. á myndina vantar þriðja stofnandann arnar gestsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.