Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Qupperneq 9
Mánudagur 11. ágúst 2008 9Fréttir Mál Stefáns Guðmundssonar sem gat ekki umgengist dætur sínar svo mánuðum skipti hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Líklegt er að tugir foreldra séu í svipaðri stöðu og hann var. Dagsektir, sem eru eina refsingin við svokölluðum tálmunum, virka ekki sem skyldi. Félag um foreldrajafnrétti lítur á ólöglegar tálmanir sem ofbeldi gagnvart börnum. SEKTAÐ FYRIR BARNAOFBELDI „Í dag getur foreldri síendurtekið komið í veg fyrir að hitt foreldrið sjái börnin sín án þess að fá nokkra teljanlega refsingu fyrir það,“ segir Lúðvík Börkur Jónsson, formaður Félags um foreldrajafnrétti. „Ef annað foreldri vildi gæti það haldið börnum sínum og falið fyrir hinu í mánuði og ár,“ segir Lúðvík og tekur fram að félagið telji þetta stórkostlegan galla í réttarkerf- inu. Hann segir að í slíkum mál- um þurfi ný úrræði, því að þau sem notuð séu í dag virki illa. Í nýjasta helgarblaði DV var viðtal við Stefán Guðmundsson sem fékk loksins að hitta dætur sínar eftir tíu mánaða stapp þar sem barnsmóðir hans hafði hundsað dómsúrskurði og hamlað því að þau hittust. Ofbeldi gegn börnum Lúðvík segir félagið berjast fyr- ir því að ný refsiákvæði verði tek- in í gagnið sem geri ástæðulausar tálmanir refsiverðar. „Í Frakklandi er til dæmis refsiramminn þriggja ára fangelsi og tálmunin er skil- greind sem ofbeldi gegn börnum. Þar fara tugir foreldra í fangelsi á hverju ári fyrir ástæðulausar tálm- anir,“ segir Lúðvík. Hann segir Ís- land þurfa að líta til annarra landa og endurskoða lögin í þessum mál- um til þess að koma í veg fyrir að slík mál dragist á langinn. Lúðvík segir marga foreldra gefast upp í ferlinu, málin séu gríðarlega erfið og það geti tekið mörg ár að fara með þau í gegnum kerfið. Tugir mála „Ég fullyrði að það séu tugir mála í gangi hverju sinni þar sem tálmanir eru ástæðulausar,“ segir Lúðvík en bætir því við að auðvit- að séu til tilvik þar sem tálmanir eigi sér gildar ástæð- ur. Hann segir að í hvert sinn sem slík mál eru í umræðunni í fjölmiðlum streymi fólk á skrifstofu félagsins sem hafi svipaða sögu að segja. Sumir hafi átt lengi í vand- ræðum með að fá að hitta börnin sín áður en þeir leiti til félagsins. Að sögn Lúðvíks eru níu af hverj- um tíu þeirra sem tálma konur enda fari þær með lögheimili barn- anna í þessum hlutföllum. Félag um foreldrajafnrétti lítur á tálmun foreldris sem ofbeldi gagnvart því barni sem á í hlut og bendir á að það hafi langvarandi áhrif á sálar- líf barnsins. Vinnur samkvæmt lögum Rúnar Guðjónsson, sýslumað- ur í Reykjavík, segir dagsektirnar ekki vera eina úrræðið sem sé til staðar. „Ef dagsektarúrræðið hríf- ur ekki er unnt að fara fram á svo- kallaða innsetningu. Þá er barn- ið tekið af foreldrinu og afhent því foreldri sem hefur orðið fyrir tálm- uninni,“ segir Rúnar og bendir á að þannig geti foreldri fengið að hitta barn sitt á nýjan leik. Hann segir að forsjárlaust foreldri geti einnig hafið dómsmál og krafist þess að fá forsjá yfir barninu. Hann segir það svo undir dómskerfinu komið hvernig slík mál fari. Þegar Rúnar er spurður hvort hertar refsingar séu nauðsynlegar í slíkum málum segir hann það ekki vera sitt mál að dæma um það. „Það er löggjafinn sem setur lögin, við vinnum eftir þeim.“ Sektir virka ekki „Úrræðin í kerfinu eru seinvirk og það er tíma- frekt að ná fram rétti sínum,“ segir Dögg Páls- dóttir, hæstaréttarlögmaður og lögmaður Stefán Guðmundsson- ar. Hún segir lögin í raun bara gera ráð fyrir dagsektarúrræðum, þó að það sé að vissu leyti ákveðin refsing nægi það stundum engan veginn. „Það eru dæmi um það að foreldri lýsi yfir gjaldþroti frekar en að koma á um- gengni, en þá er fátt annað hægt að gera,“ segir Dögg og bætir því við að sumir foreldrar borgi dagsekt- irnar ekki. Hún tekur fram að í máli Stefáns hafi barnsmóðirin borgað dagsektirnar til að koma í veg fyrir að faðirinn gæti hitt börnin og þess vegna séu dagsektirnar ekki það þvingunarúrræði sem þeim er ætlað að vera. Þrír punktar „Ég tel að minnsta kosti að það sé full ástæða til þess að skoða hvort það sé hægt að gera úrræðin fljótvirkari eða skilvirkari,“ segir Dögg þeg- ar hún er spurð hvort breyta þurfi viðurlögum við tálm- unum. Hún segir eðlilegt að þá væri litið til annarra landa í því sambandi og athugað hvað hefur reynst best þar. Dögg seg- ir það slæmt hvernig slík mál fái að viðgangast til lengri tíma og því lengur sem málin dragist þeim mun harðvítugri verði þau. Að lokum segir hún áherslupunktana í rauninni vera þrjá: „Málin eru ekki mjög algeng en þau sem koma upp eru alvarleg. Gildandi úrræði eru ekki að virka nægilega vel. Það er full ástæða til þess að skoða hvort hægt er að finna ný úrræði.“ Langvarandi áhrif „Svona mál geta haft langvar- andi og mjög slæm áhrif á líðan og þroska barnanna og geta í raun haft áhrif á það hvernig þeim vegn- ar í lífinu,“ segir Gunnar Hrafn Birgisson sálfræðingur sem starfar á vegum sýslumannsembættanna og dómsmálaráðuneytisins við að sætta foreldra í slíkum deilum. Hann segir mjög brýnt að unnið sé að því að skapa frið á milli for- eldra, sérstaklega barnanna vegna. Hann segir foreldri stundum slíta sambandi algjörlega og vinna svo markvisst að því að skemma sam- band barnsins við hitt foreldrið, en það sé kallað foreldrafjarlægð- arheilkenni. Ástæður þess að for- eldrar beiti slíkum aðferðum eru mismunandi en þær geta legið hjá öðru hvoru foreldri eða þá í sam- spili á milli foreldranna. Hann segir foreldra oft eyða mikilli orku og tíma í það að reyna að finna sökudólginn þegar þeir ættu að einbeita sér að Jón bJarki maGnúSSOn blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is „Svona mál geta haft langvarandi og mjög slæm áhrif á líðan og þroska barnanna og geta í raun haft áhrif á það hvernig þeim vegnar í lífinu.“ Lúðvík börkur Jónsson Formaður Félags um foreldrajafnrétti segist líta á ólöglega tálmun eins og hvert annað ofbeldi gagnvart börnum. Stefán Guðmunds- son Barnsmóðir hans beitti tálmunum til þess að koma í veg fyrir að hann hitti dætur sínar. Dögg Pálsdóttir Lögmaður stefáns segir úrræðin í tálmunarmálum seinvirk og tímafrekt að ná fram rétti sínum. SELjA KvóTA EÐA BíÐA gjALDþROTS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.