Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Side 10
Mánudagur 11. ágúst 200810 Fréttir
Hinsegin dagar í Reykjavík náðu há-
punkti með mikilli gleðigöngu niður
Laugaveginn á laugardag. Lögregla
og aðstandendur hátíðarinnar eru
sammála um að þetta hafi verið fjöl-
mennasta gleðigangan frá upphafi,
en þetta er í tíunda sinn sem Hinseg-
in dagar eru haldnir í Reykjavík.
„Lögreglan hefur sennilega talið
vitlaust,“ segir Heimir Már Péturs-
son, framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar, sem telur að um níutíu þúsund
manns hafi verið í miðborginni á
laugardagseftirmiðdag. Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu áætlar hins
vegar að á bilinu þrjátíu til fjöru-
tíu þúsund manns hafi verið í bæn-
um. Hvað sem talningum líður var
augljóst að hópurinn skemmti sér
hið besta. Þátttakendur í göngunni
byrjuðu að undirbúa sig við Hlemm
strax upp úr hádegi. Hópurinn lagði
af stað klukkan tvö. Klukkustund síð-
ar var halarófan komin niður á Arn-
arhól þar sem við tók skemmtidag-
skrá.
Borgarstjóri sást hvergi
Ólafi Magnússyni borgarstjóra
var boðið sérstaklega að vera við-
staddur opnunarhátíð Hinseg-
in daga í Háskólabíói, síðastliðið
fimmtudagskvöld. Hann lét þó ekki
sjá sig. „Borgarstjóri hefur sennilega
verið upptekinn og ekki haft færi á að
koma,“ segir Heimir Már. Sæti var frá-
tekið fyrir borgarstjórann á fremsta
bekk í bíóhúsinu, enda Reykjavíkur-
borg einn helsti styrktaraðili hátíðar-
innar.
„Í þessu felst engin móðgun.
Reykjavík hefur styrkt okkur vel og
við erum þakklát fyrir það,“ heldur
Heimir áfram. Hann segir að öllum
borgarfulltrúum hafi verið boðið að
vera viðstaddir opnunarhátíðina.
Hann viti ekki upp á hár hverjir sáu
sér fært að koma, en hann hafi þó
séð Degi B. Eggertssyni bregða fyrir.
Borgarstjórar hafa í gegnum tíð-
ina haldið ræðu við setningarat-
höfn Hinsegin daga og þótti mörg-
um sem rætt var við sérkennilegt að
svo væri ekki að þessu sinni. Fyrr-
verandi borgarstjóri, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir utanríkisráðherra,
hélt hins vegar ræðu á Arnarhóli á
laugardag.
Fjörutíu atriði
Um það bil fjörutíu atriði voru
skráð í sjálfa gleðigönguna, sem þótti
takast einkar vel. Í göngunni mátti
sjá bregða fyrir fulltrúum fjölmargra
menningarkima úr samfélagi sam-
kynhneigðra, ástvina þeirra og ann-
arra sem láta sig málið varða.
Þegar gangan fór af stað frá
Hlemmi virtist sem brugðið gæti til
beggja vona með veður. Smám sam-
an braust þó sólin fram og gangan og
öll skemmtiatriðin fóru fram í blíð-
skaparveðri.
Lestina rak Páll Óskar Hjálmtýs-
son, sem bleikklæddur hélt uppi fjör-
inu á bleikum vörubíl. Hann leiddi
svo fjöldasöng á laginu Ég er eins og
ég er í lok dagskrár á Arnarhóli. Um
nóttina tóku við dansleikir.
Metþátttaka var í gleðigöngu Hinsegin daga á laugardag. Að-
standendur segja hátt í hundrað þúsund manns hafa verið í bæn-
um. Lögreglan telur að þar hafi aðeins verið um 40 þúsund. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir gekk gleðigönguna og hélt ræðu.
Ólafur F. Magnússon, sem boðið hafði verið á setningarathöfn-
ina, lét hvergi sjá sig.
SIGtryGGur ArI jÓhAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
STÆRSTA
GLEÐIGANGAN
„Borgarstjóri hefur
sennilega verið upp-
tekinn og ekki haft
færi á að koma.“
Draggkóngurinn dragg-
kóngurinn 2008 ferðaðist stolt-
ur niður Laugaveginn með
Ómari ragnarssyni í einum af
smábílum hans.
Með fánann á lofti
Einkennisfáni Hinsegin
daga er marglitur og táknar
fjölbreytileika mannlífsins.