Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Page 16
Mánudagur 11. ágúst 200816 Umræða
Hópur sægreifa um allt land lifir í vellystingum á því fyrst og fremst að flytja peninga
á milli hinna ýmsu fjárfestinga og
passa að ljóti kallinn nái ekki í aurana
þeirra. Þeir búa sumir hverjir úti á
landsbyggðinni þar sem flestir eiga
þann bakgrunn
að hafa, kaldir
og hraktir á
hafi úti, eytt
starfsæv-
inni í að
eltast við
fisk sem þeir
oftast náðu.
Tómstundum sín- um
eyddu þeir gjarnan í að bölva kvóta-
kerfinu sem náði þá aðeins til stærri
skipa. Síðan kom sú blessun upp að
hinir harðsnúnu sjósóknarar fengu í
gegn að bátshornin þeirra fengu inni í
kerfinu. Þá var kátt í kotum sjóaranna
sem hver um annan þveran seldu
réttinn til að sækja fisk og lögðust
í fjárfestingar. Bátum þeirra var
breytt í túristabáta eða
þeim einfaldlega
lagt í líflausum
höfnum.
Vestur í Bolung-arvík er
hópur manna á
besta aldri sem
þannig hefur sest í
helgan stein Mamm-
ons. Þeir þurfa ekki lengur að vakna
um miðjar nætur til að hlusta á veð-
urspá og jafnvel að berjast á fleytum
sínum til hafs í norðangarra og frosti.
Nú sofa þeir út og vakna um svipað
leyti og Kauphöllin birtir fyrstu vísi-
tölur um gengi fyrirtækja. Til að halda
hugarró sýsla þeir við áhugamál dag-
ana langa. Golf er þar ofarlega á baugi
enda fátt eins slakandi.
Auðvitað er það þannig að sæ-greifar eru mikilvægir í sam-félaginu og þess vegna greiða
þeir einungis takmarkaðan skatt af
fjármagnstekjum sínum. Áður þurftu
þeir að borga útsvar og tekjuskatt sem
var meira en þriðja hver króna sem
þeir öfluðu. Nú dugir að greiða eina
af hverjum 10 krónum í samneysl-
una. Leiguliðar þeirra sjá síðan um
aðrar greiðslur. Í Bolungarvík eins og
víðar er ekki til siðs að láta sægreifana
greiða fyrir sorphirðu. Enn er nóg af
launamönnum til að annast þau skít-
verk. Sægreifarnir eru þannig sum-
part eins og þjóðhöfðinginn sem ekki
þarf að borga skatta og útsvar. Það er
eðlilegt því reisn samfélagsins sést
best á aðlinum. Því er mikilvægt að sá
hópur sé ekki skattpíndur þannig að
hann þurfi að vakna fyrr á morgnana
eins og sauðsvartur almúginn. Það er
mikilvægt fyrir efnahag landsins og
velferð þjóðarinnar að úthvíldir greif-
ar sinni fjárfestingum sínum af skyn-
semi og nái hámarksarði.
Stöku bæjarstjórar hafa fett fingur út í þetta fyrirkomulag og telja í þröngsýni
sinni að yfir-
stéttin eigi að
leggja meira
eða jafnmikið
til samneysl-
unnar. Vestur
í Bolungarvík
sátu menn uppi
með þannig bæjar-
stjóra og voru með liðsinni sægreif-
anna fljótir að losa sig við hann. Sá
hélt í Búðardal þar sem enga sægreifa
er að finna og sauðsvartur almúg-
inn hjálpast að við sorphirðu jafnt og
önnur samfélagsleg verkefni.
Það vill gleymast að því fylgir áhætta að vera sægreifi. Menn sem áður glímdu við Ægi kon-
ung og lentu reglubundið í lífsháska
vegna brotsjóa þurfa í dag að gæta
stöðugt að fjárhag sínum í kolsvartri
kreppunni. Daglega falla hlutabréf
í verði og enginn virðist óhultur í
þeim háska. Það er áríðandi að hinn
almenni borgari sem greiðir útsvar
leggist á árarnar og hjálpi sægreifun-
um í gegnum fárviðri kreppunnar. Og
það er það minnsta sem þeir geta gert
að hjálpa þeim að mennta börnin sín
og hreinsa í burtu sorp þeirra ókeypis.
Góður sægreifi er nefnilega sómi síns
byggðarlags rétt eins og forsetinn er
sverð og skjöldur þjóðarinnar. Þjóð
án aðals er hvorki fugl né fiskur.
Sorp Sægreifanna
svarthöfði
Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttastjóri skrifar „En þá þorðu stjórnmálamenn ekki að stíga skrefið til fulls.“
Að stíga skref til fulls
Leiðari
Það er merkilegt að á sama tíma og tugþúsundir flykkjast í miðbæ Reykjavíkur til að sýna samkyn-hneigðum stuðning sinn strandar
réttindabarátta þeirra á andstöðu stjórnvalda
þegar kemur að hjúskap þeirra.
Nú skal ekki gera lítið úr því sem þegar hefur
verið gert. Mikið hefur áunnist í réttindabar-
áttu samkynhneigðra hin síðari ár. Lagabreyt-
ingarnar fyrir fáeinum árum voru stórt skref
fram á við. En þá þorðu stjórnmálamenn ekki
að stíga skrefið til fulls. Eftir stendur meðal
annars að samkynhneigð pör fá ekki að ganga
í hjónaband. Í stað þess að breyta lögum svo
samkynhneigðir fengju sama rétt í þessum málum og gagnkyn-
hneigðir voru settar sérreglur um þá. Þeir Halldór Ásgrímsson og
Davíð Oddsson vildu bæta rétt samkynhneigðra en treystu sér ekki
til að veita þeim sama rétt og sjálfum sér. Reyndar sagði Halldór að
það væri vegna þess að Þjóðkirkjan væri ekki búin að gera upp hug
sinn í þessu máli. Þess vegna stóðu erfiðleikar eins trúfélags í að
gera upp hug sinn í vegi fyrir því að fjöldi fólks fengi sömu stöðu og
þorri þjóðarinnar.
Annars minnir Gleðigangan í Reykjavík mig alltaf á sögu sem ung-
ur persneskur transi, Predrag að for-
nafni, sagði mér fyrir nokkrum árum.
Þá hafði hann nokkru áður tekið
þátt í fyrstu göngunni í Serbíu til að
leggja áherslu á tilvist og rétt sam-
kynhneigðra. Þeir sem að göngunni
stóðu vissu að brugðið gæti til beggja
vona. Hommahatur er landlægt í Ser-
bíu. Enda fór það svo að fjölmennur
hópur manna mætti á svæðið og réð-
ist á þá samkynhneigðu. Þegar svo
lögreglan mætti á staðinn héldu Pre-
drag og félagar að þeim væri borgið.
En svo gott var það víst ekk því sum-
ir lögreglumenn létu slagsmálin afskiptalaus en aðrir tóku þátt í
að berja hommana. „Þetta var gaman,“ sagði Predrag kaldhæðinn
þegar ýmsum Vestur-Evrópubúunum í hópnum brá við frásögnina.
Svo brosti hann breitt svo brotna tönnin úr slagsmálunum fékk að
njóta sín. Predrag og félagar vissu hverju þeir gætu mætt en ákváðu
að berjast fyrir rétti sínum. Sem betur fer mega samkynhneigðir Ís-
lendingar ekki lengur eiga von á svona viðbrögðum öllum stund-
um. En það er ekki svo ýkja langt síðan þeir voru í svipaðri stöðu og
þurftu jafnvel að flýja land.
DómstóLL götunnar
Hvað finnst þér um fjölgun máva á tjörninni?
„Ég tel að það væri skynsamleg leið til
að tryggja heilbrigða og vistvæna
útivist íbúa á reykjavíkursvæðinu að
skjóta sem flesta máva.“
Tryggvi Hallgrímsson,
29 ára aðjúnkt við Háskólann á
Akureyri
„Því meira fuglalíf, því betra.“
Arnar Gauti Finnsson,
29 ára bankamaður
„Mér finnst hún viðbjóðsleg þar sem
þetta eru ránfuglar sem eiga ekkert
heima á tjörninni og ætti að skjóta þá
alla.“
Kjartan Höskuldsson,
28 ára bankamaður
„Mér gæti ekki verið meira sama, ég
hef bara litla skoðun á því hvort það
séu mávar eða endur.“
Ragnar Veigar,
30 ára verkefnastjóri
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúMer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsíMi: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
sanDkorn
n Dómstóll DV um bestu og
verstu spyrlana í ljósvakamiðlum
vakti mikla athygli. Þeir kump-
ánar Sigmar Guðmundsson og
Helgi Seljan úr Kastljósi sigruðu
með yfirburðum. Í hópi þeirra
slökustu var síðan sambýliskona
Sigmars,
Þóra Tómas-
dóttir. Aftur
á móti voru
einhverjir
sem söknuðu
þeirra Heim-
is Karlssonar
og Kolbrún-
ar Björns-
dóttur sem gjarnan fara mikinn
á morgnana og krefjast svara án
afsláttar. Einhver taldi skýring-
una vera að dómstóllinn hafi
verið samansettur af fólki sem
vaknar ekki í bítið á morgnana.
n Tekjur ofurbloggara á Íslandi
vekja gjarnan athygli en að
þessu sinni tók DV að sér að
birta slíkan lista. Bág kjör Stef-
áns Fr. Stefánssonar, eins allra
besta bloggara landsins, vekja
ónneitanlega athygli en hann er
óralangt undir fátæktarmörkum
með 2.923 krónur í mánaðarlaun
og hafði fallið talsvert frá sein-
asta ári. Hermt er að þegar laun
Stefáns voru birt í fyrra hafi hon-
um orðið svo mikið um að það
brast á blogghlé um tíma. Nú
tekur hann uppljóstrunum með
karlmennsku.
n Annar af skemmtilegustu
bloggurum landsins, eyjublogg-
arinn Tómas Hafliðason, liggur
ekki á skoðunum sínum. Hann
var einn þeirra 15 þúsund sem
lögðu leið sína á tónleika Erics
Clapton í Egilshöll. Tómas er
betur launaður en Stefán Fr.
sem hefði að
óbreyttu verið
um þrjá mán-
uði að vinna
fyrir miðan-
um. Hann
var þó óhress
með að vera
ekki í gæð-
ingaflokki
Orkuveitunnar og fá frímiða en
tónleikarnir vöktu enga hrifn-
ingu ef marka má blogg hans.
„Fyrir utan hita var Clapton la
la. Eins og að vera mættur í fiski-
skurð út á Granda. Kláraði vinn-
una sína óaðfinnanlega en engin
vinnugleði í mannskapnum ...“
n Tónlistarmaðurinn Bubbi
Morthens hefur sýnt fádæma
kjark og karlmennsku í opinberri
umræðu um fjárhagsleg bágindi
sín sem hann reifaði fyrst í viðtali
við Kolbrúnu Bergþórsdóttur í
Mogganum. Á sunnudag fylgdi
Mogginn
málinu eftir
og bað kóng-
inn um nán-
ari skýring-
ar. Þá kom
á daginn að
hann hafði
haft mest dá-
læti á Eim-
skipi, Exista og FL Group sem
öll lentu í frjálsu falli. „Áður var
ég efnaður, en nú er ég nokkurn
veginn á floti,“ segir Bubbi sem
lagt hefur til að tónleikar verði
haldnir fyrir fátæka.