Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Side 17
Mánudagur 11. ágúst 2008 17Umræða Einu sinni var sjálfstæðismað- ur andsnúinn Kárahnjúkavirkjun. Staddur á landsfundi viðraði hann ókosti framkvæmdarinnar og vildi að við hana yrði hætt. Úthrópaður lagðist sjálfstæðismaðurinn undir feld og komst að þeirri niðurstöðu að kyndilinn yrði að bera og ákvað að gera það sjálfur. Ofurhuganum var ekki hugað líf og gerðu marg- ir grín að málefnaforgangi hans og framsetningu. Nú er vandræða- gemsinn kominn í samstarf við sína fyrrum félaga, flaggar grimmt sín- um stefnumálum og orðinn æðsti yfirmaður borgarinnar, arftaki Dav- íðs. Þessi umdeildi maður sem á landsfundinum forðum gekk í ber- högg við eigin flokkssystkini tók við vendi borgarstjóra, aftur undir fúk- yrðaflaumi, þó úr annarri átt. Full- yrðingar eins og geðveikur, van- hæfur, flughræddur, órekandi og óferjandi skóku fjölmiðla, borgar- stjórinn talinn eyland, einn, ein- angraður, kolvitlaus og líftími borð- liggjandi stuttur sem æðsti strumpur borgarinnar. Ég man ekki eftir þvílíku tilstandi í kringum nokkurn stjórnmálamann en ímynda mér svipaðan darraðar- dansinn í kringum Hriflu-Jónas á sínum tíma. Ólafur eff hefur sterkar skoð- anir og er alls óhræddur að fylgja þeim eftir. Hann hefur þurft að þola ávirðingar, einelti og rakinn dónaskap, síðast í Kastljósi nú í vik- unni, sér einhver Geir eða Þorgerði hljóta viðlíka útreið? Þrátt fyrir að vera vinsælt skotmark hefur borg- arstjóri staðið keikur og kjósendur Ólafs vita að hverju þeir ganga, af- staða hans breytist ekki að kvöldi kosningadags. Það eru aðrir sem ofbjóða kjósendum sín- um. Frá síðustu sveitarstjórnar- kosningum hafa þrír borgarstjór- ar vermt stólinn. Sá fyrsti hélt ekki vöku sinni í stórkostlegu hags- munamáli Reykvíkinga. Annar ekki heldur fyrir utan að svæfa borgar- búa með endalausu málæði. En sitjandi borgarstjóri, sem spáð var bráðu falli, situr enn. Hvernig getur slíkur maður stjórnað heilli borg? Verk Ólafs eff eru í samræmi við fyrri yfirlýsingar og þeir sem aðhyll- ast hafa skýran valkost. Að því leyti er maðurinn ljós í myrkri innan um allar hugsjónadruslurnar sem hafa hamskipti að kvöldi kjördags. Pól- itísk framtíð Ólafs eff er óráðin og þó fjölmiðlar birti títt kannanir um óvinsældir borgarstjórans er óvíst að það sé raunin. Honum vex ás- megin í embætti borgarstjóra ein- faldlega vegna samfellu orðs og æðis og hvað sem hver segir verður það ekki frá honum tekið. Sandkassinn Ólympíuleikar eru hátíð öfganna. Það er stórkostlegt að fylgjast með afrekum íþrótta- mannanna og öfgakenndri, og oft ómannlegri, getu þeirra. Nefni sem dæmi hringina og jafnvægisrána í fimleikunum; hvernig er þetta hægt?! Fyrirheitin um það öfgas- vall sem koma skal á þessari hátíð voru gefin á opnunarhátíðinni. Ég hef ekki einu sinni ímyndunarafl til að láta mér detta í hug brotabrot af viðlíka trakteringum og kóreó- grafíu. Ég minntist á það fyrir stuttu hér á þessum vettvangi hversu auð- veldlega gæsahúðin spretttur fram á manni þegar íslenskt afreksfólk stendur sig vel á alþjóðlegum vett- vangi. Þá gleymdi ég, sem ég var minntur á um helgina, að þessi sérkennilegu líkamsviðbrögð geta vitanlega líka sprottið fram þegar íþróttamenn af öðru þjóðerni gera það gott. Gæsin hríslaðist til dæm- is um mig við að sjá rúmensku júdókonuna tryggja sér ólympíu- gullið á laugardaginn eftir að hafa lagt tvöfaldan ólympíumeistara og áttfaldan heimsmeistara í undan- úrslitunum. Laun erfiðisins eftir áralangar æfingar og púl að skila sér á stærsta íþróttamóti heimsins. íslensku keppendurnir hafa ekki farið alveg jafn vel af stað og sú rúmenska, ef frá er talið hand- boltalandsliðið. Glæsilegt hjá þeim að leggja Rússana að velli. Þeir voru á mörkunum með að hrein- lega rassskella þá á tímabili en gáfu eftir undir lokin. Ekkert nema gott um það að segja; þeir eiga þá bara meiri orku inni fyrir næsta leik á móti heimsmeisturum Þjóðverja. Þrátt fyrir að Ragna Ingólfsdótt- ir badmintondrottning hafi dottið út eftir einn leik á hún mikið hrós skilið. Það eru ekki allir sem hefðu tryggt sér farseðil á ólympíuleika með slitið krossband í hné, það er alveg morgunljóst. Þegar þetta er skrifað hefur Ragnheiður Ragn- arsdóttir ekki enn hafið keppni í sundinu. Ef hún dettur strax út getur hún ekki vísað til einhverra meiðsla sem hafa verið að plaga hana. Á hinn bóginn gæti skýring- una verið að finna í því að LeBron bara fékk ekki nóg nóttina áður. Kristján Hrafn Guðmundsson er dottinn inn í Ólympíuleikana Fyrirbærið Ólafur eff Veitt við vitann Fólk þarf ekki alltaf að fara langt til að stunda stangveiði. Því virðast þessir menn gera sér grein fyrir sem stunduðu sjóstangveiði í innsiglingunni að reykjavíkurhöfn. Ljósmynd/Róbert Reynissonmyndin P lús eð a m ínu s Spurningin „Það eru margir líklegir,“ segir listamaðurinn snorri ásmundsson sem auglýsir eftir líkum. snorri biðlar til fólks á grafarbakkanum og biður um jarðneskar leifar þeirra í þágu listagyðjunnar. Hann heitir því að skila þeim til útfararþjónustu strax eftir notkun í sama ástandi. Er EinhvEr líklEgur? Mínusinn í dag fær Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri í Reykjavík, fyrir að mæta ekki á setningarhátíð Hinsegin daga. LÝÐUR ÁRNASON heilbrigðisstarfsmaður skrifar „Hvernig getur slík- ur maður stjórnað heilli borg?“ - vertu með í umræðunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.