Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Page 18
Mánudagur 11. ágúst 200818 Sport Sport Hjörtur bjargaði stigi reykjavíkurliðin Þróttur og Fram skildu jöfn, 1-1, á Valbjarnarvellinum í gærkvöldi. Paul Mcshane kom Fram sem hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu yfir með fínu skoti á 29. mínútu. safamýrarpiltar voru ekki langt frá því að innbyrða sigurinn en Hjörtur Júlíus jafnaði mínútu fyrir lok venjulegs leiktíma úr vítaspyrnu eftir að brotið hefði verið á Jóni ragnari Jónssyni. Fram er því áfram í 4. sæti Landsbankadeildarinnar en Þróttur í því níunda. ÚRSLIT landsbankadeild kk KR - FH 1–2 0-1 Tryggvi Guðmundsson (14, víti.) 0-2 Matthías Guðmundsson (29.), 2-1 Guðmundur Reynir Gunnarsson (64.). Þróttur - Fram 0–1 0-1 Paul McShane (29.) staðan Lið L u j t M st 1. FH 15 11 1 3 35:15 34 2. Keflavík 14 9 3 2 32:21 30 3. Valur 14 8 2 4 26:18 26 4. Fram 14 8 0 6 17:11 24 5. Breið 14 6 5 3 28:20 23 6. Kr 15 7 1 7 24:18 22 7. Fjölnir 14 7 0 22:17 21 8. grinda 14 6 2 6 21:25 20 9. Þróttu 14 4 5 5 21:27 17 10. Fylkir 14 4 1 9 15:27 13 11. Ía 14 1 4 9 11:30 7 12. HK 14 1 2 11 14:37 5 landsbankadeild kvk Breiðablik - Þór/KA 2–1 1-0 Mateja Zver (38.), 1-1 Harpa Þorsteinsdóttir (39.), 2-1 Fanndís Friðriksdóttir (90.). staðan Lið L u j t M st 1. Valur 13 13 0 0 58:8 39 2. Kr 13 11 0 2 40:10 33 3. Breiðabl 13 8 1 4 31:19 25 4. stjarnan 13 6 3 4 24:17 21 5. uMFa 13 5 2 6 10:21 17 6. Þór/Ka 13 5 1 7 23:22 16 7. Fylkir 13 4 1 8 13:31 13 8. Keflavík 13 2 3 8 11:33 9 9. Fjölnir 13 2 2 9 12:39 8 10. HK/Vík. 13 1 3 9 12:34 6 HandbOlTi ól 2008 Ísland - Rússland 33–31 Mörk Íslands: Snorri Steinn Guðjónsson 12, Arnór Atlason 6, Alexander Petersson 6, Ólafur Stefánsson 3, Sturla Ásgeirsson 3, Róbert Gun- narsson 2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8. Önnur úrslit í B-riðli: Egyptaland - Danmörk 23–23 Suður-Kórea - Þýskaland 23–27 MEiDDist Á HÁsin Höskuldur Eiríksson lék vel í hægri bakverði FH í sigurleik bikarmeistar- anna gegn Kr, 2-1, í gær. Hann var ánægður með spilamennskuna og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. „Þetta var svakalega góður leikur hjá okkur og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Við gjörsamlega yfirspiluðum Kr og að öllu eðlilegu hefðum við átt að skora fleiri mörk,“ sagði Höskuldur við dV eftir leikinn. „Í seinni hálfleik misstum við aðeins tökin á leiknum og Kr fór að pressa á okkur. Við áttum samt dauðafæri og ég veit hreinlega ekki hvað við áttum að vera búnir að skora mörg áður en Kr minnkaði muninn. Það fór alveg um mig undir lokin, ég skal viðurkenna það, þegar pressan var sem mest á liðið. En á endanum stóðumst við pressuna og lönduðum góðum sigri,“ sagði Höskuldur kátur en hann þurfti að fara út af í seinni hálfleik. Hann byrjaði mótið meiddur en virðist vera búinn að negla niður bakvarðarstöðuna hægra megin hjá Heimi guðjónssyni. „Ég meiddist aðeins á hásin í fyrri hálfleik og var orðinn svolítið aumur í seinni. Því var betra að fá frískari mann inn í þetta. sjálfur er ég allur að koma til og svo til laus við þessi meiðsli sem hafa verið að hrjá mig í um eitt og hálft ár. Formið er allt að koma,“ sagði Höskuldur Eiríksson að lokum. tomas@dv.is FH verður áfram á toppi Lands- bankadeildar karla sama hvernig fer hjá Keflavík í kvöld eftir 2-1 úti- sigur sinn gegn KR í gær. Bæði mörk FH komu í fyrri hálfleik sem var lík- lega sá besti á Íslandsmótinu í sum- ar. FH-ingar fengu fjöldann allan af færum og áttu að vera meira en 2- 0 yfir þegar KR minnkaði muninn. Heimamenn pressuðu stíft á FH undir lokin en þurftu að sætta sig við tap og rautt spjald á Bjarna Guð- jónsson. Gunnar Sigurðsson í marki FH þurfti fyrstur að sína snilldartakta þegar hann varði skot Guðjóns Baldvinssonar sem hafði sloppið einn í gegn frá miðju. Nánast í næstu sókn tókst Matthíasi Guðmunds- syni á einhvern óskiljanlegan hátt að skjóta framhjá af markteig með opið mark. Tryggvi Guðmundsson sem hafði lagt upp færið gjörsam- lega trylltist en róaðist skömmu síð- ar þegar hann skoraði úr víti sem dæmt var á Portúgalann Jordao Diogo fyrir klaufalega hendi innan teigs. Matti borgaði fyrir sig Aftur varð Tryggvi brjálaður þeg- ar enginn fylgdi eftir skoti hans í innanverða stöngina á 21. mínútu en aftur var Matthías Guðmunds- son þar nærri. Matthías náði þó loks að borga fyrir klúðrið þegar hann klippti fyrirgjöf Höskuldar Eiríks- sonar í netið á 29. mínútu og var augljóslega mikið létt. FH gjörsamlega yfirspilaði FH í fyrri hálfleiknum. Matthías Vil- hjálmsson átti frábæran leik og var tveggja manna maki á miðjunni en hann ásamt Davíð Þór Viðars- syni átti ekki í vandræðum með að stjórna leiknum. Hinn ungi Björn Daníel Sverrisson sem hefur komið sterkur inn í lið FH að undanförnu var ekki alveg tilbúinn að leika fyrir framan 2000 manns á KR-vellinum og sást ekki. Það breytti þó litlu fyr- ir Hafnfirðinga sem léku einstaklega vel og voru ekkert annað en klaufar að vera ekki meira en 2-0 yfir eftir fyrri hálfleikinn. Vörnin vond FH klúðraði algjörum dauðafær- um í fyrri hluta seinni hálfleiks og fór því um leikmenn liðsins þegar varamaðurinn Guðmundur Reyn- ir Gunnarsson jafnaði leikinn með gullfallegu marki á 64. mínútu. Eft- ir það pressaði KR stíft á FH og fékk prýðisfæri en bikarmeistararnir voru klókir, sterkir í vörn og lönd- uðu góðum 2-1 sigri sem trygg- ir þeim áframhaldandi veru í efsta sætinu. „Þetta var hrikalega svekkjandi,“ sagði Stefán Logi Magnússon mark- vörður KR sem var helsta ástæða þess að KR fékk ekki á sig fleiri mörk. Vörn KR var gjörsamlega heillum horfin án Péturs Hafliða Marteins- sonar og innkoma Gunnlaugs Jóns- sonar minnti rækilega á fyrri leiki KR í ár. Hann og Grétar Sigfinnur eiga enga samleið í vörninni og verður Grétar sem átti þó skárri leik eflaust guðs lifandi feginn þegar Pétur Haf- liði kemur í næsta leik eftir bannið. Ætluðum okkur titilinn með sigri Eins og áður segir var Stefán Logi Magnússon alveg frábær í liði KR og var mjög svekktur þegar DV ræddi við hann eftir leikinn. „Hefð- um við unnið þennan leik ætluðum við bara að gefa út að við ætluðum okkur titilinn. Það verður þó held- ur betur erfitt núna,“ sagði Stefán sem var ánægður með margt í leik sinna manna. „Mér fannst FH ekk- ert betra. Það var meira að við gerð- um ekki það sem við lögðum upp með. Menn voru of langt frá mönn- unum sínum og mörkin sem við fengum á okkur voru döpur,“ sagði Stefán Logi. Mögnuð spilamennska FH í fyrri hálfleik gegn KR í gær skilaði liðinu góðum 2-1 sigri og áframhaldandi forystu í Landsbankadeildinni sama hvernig fer í leikjum kvöldsins. FH lék meistaralega í fyrri hálfleik og var KR heppið að FH leiddi aðeins 2-0. KR skoraði gegn gangi leiksins í seinni hálfleik og hleypti mikilli spennu í leikinn. bjarni guðjóns- son fékk rautt í sínum þriðja leik með KR. tÓMas ÞÓr ÞÓrðarsOn blaðamaður skrifar: tomas@dv.is „Fyrir utan fyrstu 5 til 7 mínúturn- ar fannst mér við spila virkilega vel í fyrri hálfleiknum og fengum urm- ul færa,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, við DV eftir 2-1 sigurleik hans manna gegn KR í Vesturbæn- um í gær. Með sigrinum heldur FH toppsætinu í Landsbankadeildinni sama hvernig fer hjá Keflavík í kvöld en Keflvíkingar geta minnkað mun- inn aftur í eitt stig. „Við vorum algjörir klaufar að skora ekki meira í fyrri hálfleik og fyrstu tuttugu mínúturnar í seinni hálfleik. Þar fengum við þrjú eða fjögur algjör dauðafæri en tókst ekki að skora. Svo tekst KR að skora á okk- ur og þá fannst mér strákarnir aðeins missa dampinn. Þeir hættu að gera hluti sem voru búnir að vera að virka allan leikinn,“ sagði Heimir og sagði sigurinn sanngjarnan. KR lá mikið á FH undir lokin eftir að varamaðurinn Guðmund- ur Reynir Gunnarsson skoraði fal- legt mark með skoti fyrir utan teig en bikarmeistararnir héldu þetta út. „KR setti okkur undir pressu og við lentum í smá vandræðum að koma boltum burt sem voru að detta í og við vítateiginn. Vörnin hélt samt og það gefur henni mikið sjálfstraust að geta haldið út í svona pressu,“ sagði Heimir sem fer nú að undirbúa liðið fyrir ævintýrið gegn Aston Villa í Evr- ópukeppninni á fimmtudaginn. „Nú getur maður aðeins farið að hugsa um Villa-leikinn. Kannski kíkja á einhverjar spólur með þeim,“ sagði Heimir að lokum og hló dátt þegar blaðamaður benti honum á að hann ætti að geta fengið nokkrar spólur hjá félögum sínum á Stöð 2 Sport enda Heimir einn sérfræð- inga stöðvarinnar. tomas@dv.is Heimir guðjónsson, þjálfari FH, var sáttur við lið sitt í gær: „Klaufar að skora ekki Villa næst Heimir guðjónsson mætir með sína drengi á Laugardalsvöllinn á fimmtudag- inn þar sem liðið mætir aston Villa. FRÁBÆR FYRRI HÁLFLEIKUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.