Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Síða 20
Mánudagur 11. ágúst 200820 Sport TvöfalT hjá GK golfklúbbur Keilis í Hafn- arfirði vann í gær tvöfaldan sigur á Íslands- meistaramótinu í sveitakeppni. Karlasveitin bar sigurorð af gKJ í úrslitum en kvennasveitin lagði golfklúbb reykjavíkur að velli. auðunn Einarsson lék gegn nýkrýndum Íslandsmeistara í höggleik, Kristjáni Þór Einarssyni, í úrslitavið- ureigninni þar sem auðunn náði forystu á 17. holu og lét hana ekki af hendi. gKJ varð í 3. sæti í kvennaflokki eftir sigur á gKg um bronsið. veiGar afTur heTjan Veigar Páll gunnarsson skoraði sigurmarkið annan leikinn í röð fyrir stabæk í gærkvöldi. stabæk lagði þá álsund 2-1 í norsku úrvalsdeildinni og styrkti stöðu sína á toppi deildar- innar. Haraldur Freyr guðmundsson lék allan leikinn fyrir álasund. stabæk hefur nú sex stiga forskot á tromsö og Fredrikstad sem leika innbyrðis í kvöld. garðar Jóhannsson og félagar í Fredrikstad þurfa því að vinna leikinn á milli liðanna í 2. og 3. sæti ætlar það sér ekki að missa af stabæk á toppnum. BraSilÍa áfraM Brasilía er komið áfram í keppni í knattspyrnu á Ólympíuleikunum eftir 5-0 sigur á nýja-sjálandi. ronaldinho skoraði tvö mörk fyrir Brassa og anderson, leikmaður Manchester united, eitt. Þá skoruðu Pato frá aC Milan og rafel sobis úr real Betis eitt mark hvor. Brasilía lagði Belgíu í fyrsta leik sínum ekki jafnsannfær- andi og er komið áfram í keppninni. Brassar þykja eins og argentínumenn einstaklega sigurstranglegir í keppninni og má sjá á markaskorinu að Brasilía er með mjög sterkt lið í keppninni. eiTT Gull KOMiÐ Bandaríski sundkappinn Mike Phelps er kominn með eitt gull í sarpinn á Ólympíuleikunum í Peking. Hann var í algjörum sérflokki í 400 metra fjórsundi og kom langfyrstur í mark á undan Laslo Cseh frá ungverjalandi og landa sínum ryan Lochte. Þeir tveir síðarnefndu héldu í við Phelps fram að skriðsundinu þar sem hann stakk gjörsamlega af og gjörbætti eigið heimsmet. Phelps synti á 4:03,84 mínútum sem er ríflega einni og hálfri sekúndu betra en heims- metið sem hann setti fyrir rúmum mánuði. Phelps ætlar sér í hið minnsta sjö gullverðlaun á mótinu til að jafna met landa síns Marks spitz en helst vill hann gull í öllum átta greinunum sem hann tekur þátt í. liTháen Byrjar vel Litháen gerði sér lítið fyrir og lagði ólympíumeistara argentínu á fyrsta leikdegi körfuboltans á Ólympíuleik- unum í Peking. Litháen hafði leikinn í hendi sér allan tímann þó munaði aldrei miklu á liðunum. undir lokin gerðu Litháar sig líklega til að stinga af en ólympíumeistararnir gáfust ekki upp og þurftu Litháar að setja niður þriggja stiga körfu undir blálokin til að tryggja sigurinn. nBa- stjarnan úr liði san antonio spurs, Manu ginobili, var stigahæstur í liði argentínu. larS BjarGaÐi DönuM Egyptaland gerði jafntefli við Evrópumeistara dana í fyrsta leik liðanna á Ólympíuleikunum í handbolta. Bæði liðin eru með Íslandi í riðli en Egyptar hafa verið sterkir að undanförnu og lögðu Íslendinga á æfingamóti í strasbourg fyrir leikana. danir voru yfir lengst af í leiknum en það var hornamaðurinn Lars Christiansen sem bjargaði stiginu fyrir dani undir lokin. Í sama riðli vann Þýskaland suður-Kóreu 27-23. „Ég er mjög ánægður með frammistöðuna í dag. Allir leikmenn- irnir ásamt markverðinum léku mjög vel og við náðum að skora mörk úr hraðaupphlaupum. Takmarkið okk- ar var að fara með tvö stig inn í mill- riðilinn og því þurftum við að vinna Danmörku,“ sagði Einar Guðmunds- son þjálfari U18 ára landsliðs Íslands í handbolta eftir frábæran 33-30 sig- ur á Danmörku á Evrópumótinu í gær. Með sigrinum fara piltarnir ta- plausir inn í milliriðlinn en þeir unnu einnig sigur á Finnum og gestgjöfun- um, Tékkum, sem voru með þeim í riðli. Finnar voru auðveld bráð fyr- ir íslenska liðið og vannst sigur á þeim með tíu mörkum, 34-24. Þar var hægri hornamaðurinn frá Sel- fossi, Guðmundur Árni Ólafsson, at- kvæðamestur með sjö mörk og félagi hans hjá Selfossi, Ragnar Jóhanns- son, með sex. Eftir það lék liðið mikinn marka- leik gegn heimamönnum, Tékkum, sem Ísland vann 39-38. „Ég var ekki ánægður með vörnina eða mark- vörðinn í Tékkaleiknum þar sem við fengum á okkur 38 mörk. Við náð- um samt að snúa leiknum okkur í hag í seinni hálfleik þar sem vörnin skánaði aðeins. Aron Pálmarsson var frábær í leiknum,“ sagði Einar Guð- mundsson en Aron skoraði 9 mörk í leiknum. Með sigrinum á Dönum sem voru fyrirfram taldir sigurstranglegastir í riðlinum fara Íslendingar með tvö stig í milliriðilinn og mæta þar Frökk- um sem unnu alla sína leiki sannfær- andi í A-riðlinum og Norðmönnum sem urðu í 2. sæti í sama riðli. Guðmundur Árni Ólafsson úr Selfossi hefur verið drjúgur fyrir ís- lenska liðið ásamt fyrirliðanum Ar- oni Pálmarssyni úr FH. Þetta er fyrsta stórmótið sem þessir drengir fæddir 1990 taka þátt í en árið 2003 varð Ís- land Evrópumeistari í sama aldurs- flokki. tomas@dv.is U18 ára landsliði Íslands gengur frábærlega á Evrópumótinu: TAPLAUSIR Í MILLIRIÐILINN risinn Heimir Óli Heimisson úr Haukum hér í strangri gæslu heimamanna í tékklandi. Flestir fótboltaunnendur viðurkenna að þeir hafi saknað enska boltans þótt þeir hafi fengið heilt Evrópu- meistaramót til að gæða sér á í júní. Fyrir þá er leikurinn um Samfélags- skjöldinn það sem boðar nýjan fót- boltavetur. Fyrstu leikirnir bera keim af sum- arfríi leikmanna sem eru að koma sér í gang á ný og sumir að aðlagast nýj- um liðsfélögum. Þess þurfti ekki hjá Manchester United sem enn er með óbreyttan leikmannahóp frá í fyrra. Liðið hafði hreðjatak á Portsmouth nær allan leikinn í gær. En sóknar- menn liðsins eru fæstir klárir og það sást. Þrátt fyrir yfirburðina og nokkur góð færi, þar sem þau bestu féllu fyr- ir Darren Fletcher, tókst liðinu ekki að skora í venjulegum leiktíma. vítin út í Tempsá Í leiknum um skjöldinn er far- ið beint í vítaspyrnukeppni þar sem leikmenn Portsmouth afgreiddu sjálfa sig með skelfilegum spyrn- um. Glen Johnson og Lassana Di- arra sendu sínar spyrnur út í Temp- sá og spyrna Arnolds Mvuemba var varin. Auðveldur sigur fyrir leik- menn Manchester United sem varla nenntu að fagna þegar Johnson skaut yfir. Carlos Tevez hljóp af stað, en stoppaði til að biðja samherja sína að fagna með sér. Skömmu fyrir leikslok lenti Arg- entínumanninum saman við harð- jaxlinn Hermann Hreiðarsson. Fót- ur Tevez lenti á Hermanni sem greip í fótinn og hélt svo Tevez féll við. Hann vildi víti en fékk ekki. Her- mann ásakaði Tevez eftir leikinn um að hafa stigið viljandi á sig. „Ég lá og hann tróð á mér. Mér fannst hann ekki þurfa þess. Þess vegna greip ég í hann.“ Wes fær verkefni Bakvörðurinn og fyrirliðinn Gary Neville spilaði í klukkutíma. Fergu- son segir að erfitt verði að velja milli hans og Wes Brown sem var í bakvarðarstöðunni vegna meiðsla Neville í fyrra. „Wes missti bara af tveimur leikjum í fyrra og stóð sig mjög vel. Ég verð mjög ánægður ef Gary spilar 35 leiki svo Wes fær ein- hver verkefni.“ Ferguson hefur staðfest að Unit- ed leiti sér að framherja en engin tíð- indi eru enn komin af þeim vígstöðv- um. David Silva, Valencia og Thierry Henry, Barcelona, urðu um helgina seinustu framherjarnir til að vera orðaðir við United. „Við höfum unn- ið í þessu frá því í vor. Við viljum hafa fjóra framherja. Það dúkkar upp nýtt nafn í blöðunum á hverjum degi. Það er mögulegt að ég kaupi einhvern í vikunni. Það eru einn eða tveir inni í myndinni.“ Skorar ekki nema skjóti Harry Redknapp, stjóri Port- smouth, var veikur og ræddi ekki við fréttamenn eftir leikinn en aðstoðar- maðurinn Joe Jordan svaraði spurn- ingum þeirra í staðinn. „Menn vinna ekkert ef þeir skjóta ekki á markið. Við höfðum ekki breiddina til að styðja betur við framherjana. Stjórinn er enn að horfa eftir leikmönnum. Við ætlum að reyna að spila 4-4-2 í vet- ur því við erum með góða framherja en við verðum að styðja betur við þá. Við vorum bara með átján leikmenn í hópnum í dag og við þurfum fleiri því við verðum í Evrópukeppninni.“ Gunnar GunnarSSOn blaðamaður skrifar: sport@dv.is Stuðningsmenn Manchester United vonast til að Samfélagsskjöldurinn sé fyrsti sigur- inn af mörgum sem liðið vinnur á komandi keppnistímabili. United hafði yfirburði gegn Portsmouth en þurfti vítaspyrnukeppni til að vinna leikinn. Eyjapeyinn hermann hreiðarsson segir Argentínumanninn Carlos Tevez hafa stigið viljandi á hann. Haustboðinn ljúfi Þarf ekki að vera fast Lassanna diarra ætlaði sér að skora tvö mörk í einu og skaut himinhátt yfir í vítaspyrnukeppninni. Þrír góðir Carlos tevez, Patrice Evra og nani brostu með samfélagsskjöldinn í rigningunni í London.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.