Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Side 28
Mánudagur 11. ágúst 200828 Fókus „Takk fyrir og góða skemmt- un,“ var það eina sem ég heyrði frá Ellen Kristjáns, eftir að ég hafði þurft að bíða nokkuð lengur fyrir utan Egilshöllina en ég hafði ráð- gert. Nú var komið hlé og enn tæp- ur hálftími í að stóri maðurinn stigi á svið. Ég vatt mér því í eina af hin- um ofsalöngu röðum í bjórsöluna og vonaði innra með mér að hún gengi nú hratt og smurt. Nú leið og beið. Og enn beið og beið. Fimm- tíu og fimm mínútum síðar var ég loksins búinn að fá afgreiðslu og í millitíðinni hafði ég þurft að hlusta á fyrstu fimm lög Erics Clapton í þessari ógurlegu röð. Það skipti kannski ekki höfuðmáli, því tón- listin hljómaði alveg ágætlega. Eric Clapton er fagmaður fram í fingurgóma og hann gerði akk- úrat nóg til þess að velflestir gestir fengu það sem þeir borguðu fyrir. Hann passaði sig þó á því að gera ekkert meira. Það er aldrei gott þegar tónleikagesturinn fær það á tilfinninguna að tónlistarmaðurinn álíti sjálfan sig bara vera að vinna vinnuna sína og lítið meira en það. Óaðfinnanleg rútína. Clapton kann þó að vinna vinnuna sína og jafnvel þó að á fyrri hluti tónleikanna hafi hljómað lög sem fáir þekktu voru þar á ferð frábær blúslög þar sem Clapton naut sín í botn með Fend- er Stratocaster-gítarinn sinn. Allt í kringum mig voru dáleiddir ungl- ingar í för með miðaldra foreldr- um sínum, svo spenntir yfir gítar- tilburðum Claptons að gröfturinn í unglingabólunum hreinlega fruss- aðist úr andlitum þeirra. Tónleikarnir fóru svo á enn hærra flug þegar Clapton settist niður með kassagítarinn og renndi í gegnum frábært prógramm. Þeir sem hafa hlustað á órafmögn- uðu MTV-tónleikana hans fengu heilmikið fyrir sinn snúð. Algjör- lega ógleymanlegur kafli. Clapton og hljómsveit hans voru nú komin á svo gott skrið að ég var alveg búinn að steingleyma ergelsinu frá því í bjórröðinni. Þeg- ar Wonderful Tonight hljómaði breyttist Egilshöll í rómantískasta stað landsins. Ástina var sannar- lega að finna í Grafarvoginum, sem endra nær. Næst kvað við annan tón, því ofurtöffaralagið Cocaine var flutt í algjörlega stórkostlegri útgáfu. Hljómsveitin fékk að njóta sín í botn. Hraði hljómborðsleikarans minnti einna helst á þrautþjálfað- an vélritara og trommuleikarinn barði húðirnar eins og þungavigt- armeistari. Á þeirri stundu var Eg- ilshöllin algjörlega á valdi hljóm- sveitarinnar. Hápunkti kvöldsins var náð. Uppklappið var svo hálf- gert formsatriði, svona til þess að halda í rokkhefðina. Tónleikagest- ir voru greinilega búnir að fá sitt og lagavalið í uppklappinu endur- speglaði það. Þegar á heildina er litið má segja að Egilshöllin er ekki skemmtileg- ur tónleikastaður, en hljóðið hefur oft verið verra og Clapton er nægi- lega stórt númer til þess að höndla staðinn. Það er meira en margir tónlistarmenn geta sagt. Veri hann velkominn aftur. Valgeir Örn Ragnarsson á m á n u d e g i Hvað veistu? 1. Hvaða fyrirtæki bauð völdum viðskiptavinum sínum á tónleika Erics Clapton á föstudagskvöldið? 2. tilkynnt var í síðustu viku að einn af virtustu tónlistarmönnum þjóðarinnar myndi spila á airwaves-hátíðinni í haust. Hver? 3. Hver hlaut Myndstefsverðlaunin í ár sem afhent voru fyrir helgi? CLAPTOn SKYggÐi á BJÓRKLÚÐRiÐHafmeyjan öskrar Á föstudagskvöldum er snilldarút- varpsþátturinn Litla hafmeyjan á Rás 2. Þar fara félagarnir Þórður H. Þórð- arson, betur þekktur sem Doddi litli, og Andri Freyr Viðarsson á kostum. Andri er búsettur í Danmörku og ber þátturinn keim af því að hann er ekki á staðnum með Dodda. Reyndar er það mjög fyndið þegar Andri er hálfutan- gátta og kallar stöðugt inn í viðtölin sem Doddi tekur við viðmælendur þeirra. Þegar einhver hringir inn virð- ast tæknileg vandamál steðja að og þá heyrir sá sem hringir ekkert í Andra nema hann öskri af öllum lífs og sálar kröftum. Þetta er það fyndnasta sem ég hef heyrt í útvarpi, Andri hefur lag á því að gera svona hluti fyndna sem aðrir gætu jafnvel látið fara í taugarn- ar á sér. Síðastliðinn föstudag var þátturinn að sjálfsögðu tileinkaður Gay Pride og Páll Óskar kom í heimsókn. Fast- ir liðir eru í þættinum og eru þeir kynntir með mjög fyndnum innskot- um, til dæmis kallast einn af þessum föstu liðum Sakbitin sæla og þá segir viðmælandinn frá einhverri hljóm- sveit eða lagi sem hann hálfskamm- ast sín fyrir að hlusta á. Þetta er einkar sniðugt og skemmtilegt. En mikið er Páll Óskar alltaf skemmtilegur, ég held að hann sé svona vinsæll og eft- irsóttur því hann kemur svo óheflað fram, hann er alltaf hann sjálfur. Það er örugglega ákveðinn galdur að gera útvarp það skemmtilegt að maður geti hlegið upphátt og það hefur þessum tveimur snillingum tekist að gera svo um munar. Stillið á Rás 2 á föstudög- um og komið ykkur í gírinn fyrir helg- ina. Ástrún Friðbjörnsdóttir Helgargír Hugmyndin að baki útvarpsþættinum Rúntinum er einföld; að koma hlust- endum í helgarskap með því besta í rokk- og dægurtónlist fortíðar. Út- varpsstöðin Gullbylgjan hefur reynt að þjónusta áhugamenn um sígilda dæg- urtónlist, en hefur hins vegar flaskað á því að vera of mjúk í lagavali. Rúnturinn fellur ekki í sömu gildru, heldur myndar trúverðugan þver- skurð tónlistarsögunnar síðustu ára- tugina og gerir ekki einni stefnu hærra undir höfði en annarri. Lögin eru spiluð í tímaröð, eitt frá hverju ári yfir ákveðið tímabil. Þess á milli heldur umsjónarmaðurinn Kristinn Pálsson uppi hressandi spjalli með stór- skemmtilegu orðavali og öruggu fasi. Síðasta þætti var ætlað að koma hlustendum í hinsegin skapið fyrir Gay Pride. Kristinn bauð því upp á hressandi kokkteil öfugrar tónlistar í breiðasta skilningi þeirrar skilgrein- ingar. Segja má að ætlunarverkið hafi tekist, því afraksturinn var þétt blanda diskó- og rokktónlistar sem myndaði góðan stíganda og kom mér alveg í rétta gírinn fyrir helgina. Brynjólfur Þór Guðmundsson Aðalpersóna hinnar nýju mynd- ar Sólveigar Anspach, Skrapp út, er miðaldra skáldkona. Hún býr í nið- urníddum hjalli í miðbæ Reykjavíkur ásamt tveimur sonum sínum. Það er mikið fjör í húsinu, sannkölluð gleði- víma, enda konan dópsali, þó að ekki virðist henni hafa græðst fé á því. Nú er hún orðin þreytt á öllu ruglinu, vill losna úr því í eitt skipti fyrir öll, komast eitthvert langt, langt í burt með strákunum sínum. Úr þeirri við- leitni spinnst dapurleg kómedía með hnyttilegri vísan í ævintýrið um gull- gæsina. Hvort konan kemst þangað er eiginlega aukaatriði, en ekki hefur maður nú mikla trú á því. Það er margt gott um þessa mynd að segja. Hún er yfirleitt vel gerð, vel leikin og leikendavalið sérlega vel heppnað. Hún er hins vegar ansi hæg, einkum framan af; Snæfellsnesskafl- inn leysist upp í langdregna vega- mynd. Einstök skot, sem gegna ekki stóru hlutverki í framvindu sögunn- ar, verða of teygð, nánast eins og leik- stjórinn hafi orðið svo hrifinn af þeim að hann hafi viljað halda þeim sem lengst. Að einhverju leyti má vera að þetta sé hugsað sem stílbragð, en það virkar ekki alltaf nógu vel. Í myndinni er heilmikið persónu- gallerí og maður hefði viljað kynnast sumum nánar, einkum bróður skáld- konunnar og bóndanum, vini henn- ar. Þær persónur hefði þurft að móta betur, ef þær áttu á annað borð að fá þarna inni. Aðrir eru ágætir eins og þeir eru, til dæmis ungi og barnslegi Frakkinn sem er kominn til lands- ins til að skrifa um skáldið doktors- ritgerð. Skemmtileg andstæða við þá óhrjálegu mannlífskássu, sem hann er dottinn ofan í, að ekki sé minnst á skáldkonuna sjálfa sem Didda Jóns- dóttir leikur hreint út sagt frábærlega vel. Hefur maður séð amatörleikara leika jafn vel í íslenskri mynd? Sé svo, þá man ég ekki eftir því, ekki í svip að minnsta kosti. Ég hugsa að styttingar og skýrari fókus á þau tvö hefði gert þetta að mun betri mynd. Jón Viðar Jónsson Burt úr ruglinu KVIKMYNDIR Svör: 1. Orkuveita Reykjavíkur 2. Megas 3. Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari útvarp LitLa HafMEyjan HHHHH rás 2 föstudagar kLukkan 19.30 tiL 22.00 tÓNLEIKar EriC CLaPtOn HHHHH EgiLsHöLL 8. ágúst Eric Clapton spilaði fyrir troðfullri Egilshöll á föstudagskvöldið. bíÓdÓmur skraPP út HHHHH LEikstjórn: sóLvEig ansPaCH aðaLHLutvErk: didda jónsdóttir, jörundur ragnarssOn FJÖLmIÐLadÓmur rúnturinn HHHHH rás 2 útvarPsþáttur á rás 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.