Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Síða 29
Mánudagur 11. ágúst 2008 29Fólkið frábært að sameinast „Þetta átti bara að vera ein sýning en eftir að þessi heppnaðist svona vel hefur Háskólabíó ákveðið að skipu- leggja að minnsta kosti tvær sýning- ar í viðbót,“ segir Guðbjörg Ósk Frið- riksdóttir sem stóð fyrir sérstakri Mamma Mia! söngsýningu síðast- liðinn fimmtudag. Guðbjörg leiddi sönginn ásamt leikkonunum Elvu Ósk Ólafsdóttur og Vigdísi Gunnarsdóttur og Guðrúnu Ár- nýju söngkonu, sem tók fleiri söngvara með sér. „Þegar ég fór í bíó á myndina fannst mér svo gaman og myndin komi mér í svo gott skap. Það var eitthvað svo mikil gleði að sjá Bond syngja og svona. En það sem mér fannst vanta var að það væri sungið með og ég heyrði fólkið í kringum mig tala um það líka að á Abba-sýn- ingunni í Lond- on til dæmis hefði verið svo mik- il stemning að allir hefðu sungið með.“ Guðbjörg hafði því samband við forsvarsmenn Háskólabíós og bar hugmyndina um sérstaka söngsýn- ingu undir þá. „Strákunum í bíóinu fannst nú heldur ólíklegt að Íslend- ingar fengjust til að syngja með en ég tók þarna góðan hóp með mér til að rífa upp stemninguna og það voru allir sem sungu með og stöpp- uðu niður fótunum og það var rosa- lega flott stemning.“ Sjálf er Guðbjörg ekki alls ókunnug því að fylla Há- skólabíó með óvana- legum bíósýningum en í starfi sínu sem jógakennari hefur hún staðið fyrir ým- iss konar uppákom- um og meðal annars bíósýningum. „Ég er með rope jóga-stöð- ina Ósk og er með fullt af námskeiðum þar sem ég kenni fólki að njóta lífsins og gera það sem er skemmtilegt svo ég er oft með uppákomur sem þessa. Póstlistinn minn fékk fyrst upplýsingar um hláturssýninguna og þegar miðar voru auglýstir tveim- ur dögum seinna var þegar búið að selja í kring- um hundrað og fimmtíu miða. Sal- ur- inn var stútfullur og nú hefur til dæmis Kvennakórinn haft samband við mig og vill vera með í næstu sýn- ingu og jafnvel syngja í hléi svo stuð- ið heldur bara áfram,“ segir Guð- björg. Guðbjörg fékk vinkonu sína, leikkonuna Elvu Ósk, með sér í að rífa upp stemninguna en Elva sá myndina í fyrsta skipti á fimmtu- daginn og var hæstánægð með þetta skemmtilega framtak vinkonu sinnar. „Stemningin var svo góð og þarna sá maður svo vel hvað fólk getur verið gott og fallegt þegar all- ir sameinuðust í söngnum. Þetta var alveg frábært. Þetta ýtti saman fullt af skemmtilegum hópum og alveg greinilegt að fólk var ekki að horfa á myndina í fyrsta skipti. Það dansaði með sporunum í myndinni og þetta minnti mig svolítið á Grease-tíma- bilið,“ segir Elva. krista@dv.is MaMMa Mia söngsýning: Ingólfur Þórarinsson, betur þekkt- ur sem Ingó úr Idolinu eða söngv- ari Veðurguðanna, spilar fótbolta í fyrstu deild með Selfossi. Ingó er þekktur fyrir að vera rólynd- isstrákur dagsdaglega en þegar hann er kominn í fótboltagallann og á völlinn fær hann sína útrás, sem getur reynst slæmt á með- an menn spila fótbolta. Nokkrir leikir voru í fyrstu deild fyrir helgi og mætti Selfoss Þór á heimavelli Þórs. Ingó var rekinn út af eftir að hann togaði leikmann Þórs niður. Dómarinn gaf honum gult spjald fyrir brotið en Ingó tók ekki vel í það. Hann klappaði fyrir honum, setti upp svip og var með stæla sem varð til þess að dómarinn gaf honum rautt spjald. Jógakennarinn Guðbjörg Ósk stóð fyrir vel heppnaðri söngsýningu á einni vinsælustu kvikmynd landsins, Mamma Mia!. Guðbjörg fékk hressan hóp með sér í lið, þar á meðal leikkonuna Elvu Ósk Ólafsdóttur sem líkti stemning- unni á sýningunni við Grease-tímabilið þar sem allir dönsuðu og sungu með. í söng Leatherface rokkaði á Clapton skapmikiLL á veLLinum Hestamaðurinn Fjölnir Þorgeirs- son sagði nýlega í opinskáu viðtali við DV að hann hefði fundið ást- ina á nýjan leik eftir skilnaðinn við barnsmóður sína Mailinn Solér. Sú heppna heitir Johanna Göransson. Parið kynntist í hestamennskunni rétt eins og Mailinn og Fjölnir. Stuttu eftir viðtalið í DV sagði Fjölnir við glanstímaritið Séð og heyrt að hann hefði fengið nóg af kvenfólki í bili og að hann væri á lausu. Á Facebook- síðu kappans kemur fram að hann er nú víst aftur kominn í samband. Það er spurning hvort hann og Jo- hanna hafi tekið saman á nýjan leik eða hvort Fjölnir er kominn með nýja dömu upp á arminn. Eitt er víst – kvennabindindið er búið. kvenna- bindindið Sá vel hvað fólk getur verið gott og fallegt Elvu fannst stemningin á sýningunni frábær og gaman hvað allir tóku undir. Fannst gleðilegt að sjá Bond syngja Abba- lög guðbjörg Ósk skemmti sér svo vel þegar hún fór fyrst að sjá Mamma Mia! að hún ákvað að slá upp Mamma Mia! söngsýningum í kjölfarið. Tökur standa nú yfir á íslensku hryllingsmyndinni Reykjavik Whale Watchin g Massacre. Með aðalhlutverk í myndinni fer Gunnar Hansen, betur þekktur sem Leatherface: Tökur eru nú hafnar á íslensku hryllingsmyndinni Reykjavik Whale Watching Massacre. Mynd- in er í leikstjórn Júlíusar Kemp en hér er á ferðinni sannkölluð „slasher“-kvikmynd og sú fyrsta sinnar tegundar sem gerð er á Ís- landi. Með aðalhlutverk í myndinni fer sjálfur Gunnar Hansen, sem þekktastur er fyrir að leika Leath- erface í kvikmyndinni The Tex- as Chainsaw Massacre sem er ein frægasta kvikmynd hryllings- myndasögunnar. Gunnar er búsettur í Banda- ríkjunum en er nú staddur á Ís- landi við tökur á Reykjavik Whale Watching Massacre. „Hann er kominn til landsins og skellti sér meðal annars á Eric Clapton-tón- leikana á föstudaginn og skemmti sér gríðarlega vel. Við reiknum með því að tökur á myndinni standi yfir í fjörutíu daga og hún verður sýnd næsta sumar,“ segir Ingvar Þórðarson sem framleiðir kvikmyndina ásamt Júlíusi Kemp. Gunnar Hansen er þó ekki eini maðurinn sem þurfti að fljúga sérstaklega til Íslands til að vera við tökur á myndinni en athafna- maðurinn Helgi Björnsson sem búsettur er í Berlín stóran hluta árs leikur einnig í myndinni og er því staddur á Íslandi um þessar mundir. Sjón skrifaði handritið að myndinni en hún segir frá hópi hvalaskoðunarmanna sem lenda í hremmingum er skip þeirra bil- ar og þeim er bjargað um borð í hvalveiðiskip. krista@dv.is Leðurfésið komið til landsins gunnar Hansen er við tökur á Íslandi og skellti sér á tónleikana með Eric Clapton.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.