Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 2
miðvikudagur 13. ágúst 20082 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Birtíngur kaupir DV Gengið var frá kaupum Út- gáfufélagsins Birtíngs ehf. á DV og dv.is af Dagblaðinu Vísi út- gáfufélagi ehf. í gær. Birtíngur rekur fyrir öfluga tímaritaútgáfu svo sem á vikublöðunum Séð og heyrt og Vikunni, mánaðarritun- um Gestgjafanum, Golfblaðinu, Húsum og híbýlum, Mannlífi, Nýju lífi, Skakka turninum og Söguna allri. Elín G. Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Birtíngs, hefur síðan um áramót stjórnað báð- um útgáfufélögunum. Hún seg- ist fagna þessum kaupum. „DV hefur vaxið mjög hratt og er í dag góð fjárfesting. Það hefur verið unnið markvisst að þessu frá því um áramót og nú er þetta í höfn. Þetta er afskap- lega góð niðurstaða,“ segir Elín. Með kaupunum yfirtekur Birtíngur alla starfssamninga DV. Elín segir að DV verði gefið út með sama hætti og undanfar- ið. Hún segir að mikil hagræðing náist með því að reka DV sam- hliða tímaritunum. Stjórnarfor- maður Birtíngs er Hreinn Lofts- son hæstaréttarlögmaður. Skotinn með loftbyssu Unglingspiltur slapp ótrú- lega vel þegar skotið var á hann úr loftbyssu í Reykjavík í gær. Drengurinn var með gleraugu og þau hafa væntanlega bjargað honum frá alvarlegum augn- skaða þar sem skotið fór í annað glerið og sprengdi það. Lögregla telur að drengur á svipuðu reki hafi skotið á piltinn og lítur málið alvarlegum augum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa sambærileg mál borist lögreglu og hún áréttar að loftbyssur séu ekki leikföng og börn og ungl- ingar hafi því ekkert með þær að gera. Þótt í þeim séu plastkúlur geta þær unnið mikinn og óbæt- anlegan skaða. Loftbyssur heyra undir vopnalög og skotvopnaleyfi fær enginn undir tvítugu. Þá er þeim sem sækja um skotvopna- leyfi gert að sækja námskeið í meðferð og notkun þeirra. Fjögur hundruð hjúkrunarrými Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráð- herra, gerir ráð fyrir 400 nýjum hjúkrunarrýmum á landsvísu til ársins 2012. Það er hrein við- bót við þau sem eru nú þegar í notkun. Þetta kemur fram í nýrri framkvæmdaáætlun ráðuneytis- ins. Auk þess verður 380 rýmum breytt úr fjölbýlum í einbýli. Að uppbyggingu lokinni eiga því 780 manns kost á því að búa í einbýli, einstaklingar sem ekki hafa átt kost á því áður. Miðað við núverandi aðstæður mun heildarkostnaður verkefnisins nema 17 milljörðum króna. Orkuveitan ber viðskiptahagsmuni fyrir sig: Afhendir ekki boðsgestalista á Clapton Orkuveita Reykjavíkur hefur hafn- að beiðni DV um að fá afhentan lista yfir þá einstaklinga sem OR bauð á tónleika Erics Clapton. DV sagði frá því í síðustu viku að Orkuveitan byði stærstu viðskiptavinum sínum í raf- orku á tónleika rokkgoðsins. Þar kom fram að Orkuveitan hefði gefið þeim geisladisk með Clapton og boðið þeim í móttöku fyrir tónleikana. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga- fulltrúi Orkuveitunnar, segir að trún- aður þurfi að ríkja um ýmis efni og ráði þar viðskiptaleg sjónarmið eða umsaminn gagnkvæmur trúnað- ur. „Upplýsingar um að tilteknir að- ilar séu í verulegum viðskiptum við Orkuveitu Reykjavíkur eru viðkvæm- ar viðskiptaupplýsingar fyrir sam- keppnisstarfsemi Orkuveitu Reykja- víkur. Auk þess er eðlilegt að OR haldi trúnað um viðskipti einstakra aðila við fyrirtækið, hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar,“ seg- ir Eiríkur. DV óskaði eftir upplýsingunum á grundvelli upplýsingalaga. Eirík- ur segir að Orkuveita Reykjavíkur sé ekki stofnun, heldur sameignarfyrir- tæki í eigu þriggja sveitarfélaga. Því gildi upplýsingalög ekki um starf- semina. Í svarinu kemur einnig fram að 50 stærstu kaupendur rafmagns af Orkuveitunni kaupi 71 prósent af öllu því rafmagni sem fyrirtækið sel- ur. Því skipti þessi hópur miklu fyr- ir það markmið að standa vörð um markaðshlutdeild. Því þyki ekki skynsamlegt að birta lista yfir við- skiptavini. „Fyrir utan að vera trún- aðarbrot gagnvart viðskiptavininum gæfi það samkeppnisaðilum tæki í hendur til að sækja á mikilvæga við- skiptavini OR,“ segir Eiríkur. baldur@dv.is Orkuveitan hafnar upplýsingabeiðni segir viðskiptahagsmuni í húfi. Mynd: Karl Petersen „Það var að hennar ósk sem séra Gunnar jarðsetti hana, við vorum bara að uppfylla þá ósk,“ segir son- ur aldraðrar konu sem séra Gunnar Björnsson, sóknarprestur á Selfossi, jarðsöng nýlega. Gunnar hefur auk þess gefið saman hjón og skírt börn, eftir að hann tók sér hálfs árs leyfi frá störfum í vor. Það gerði hann eft- ir að sóknarbörn kærðu hann fyr- ir kynferðisbrot. Biskupsstofa hafði skýrt þá afstöðu sína að hann ætti ekki að framkvæma embættisverk á meðan hann væri í leyfi. Séra Guð- björg Jóhannesdóttir, settur sókn- arprestur við Selfosskirkju, sendi Gunnari bréf þar sem hún tjáði honum að þess væri ekki óskað að hann sinnti prestsverkum í Selfoss- kirkju á meðan á rannsókn málsins stendur. Samkvæmt reglum hef- ur settur sóknarprestur heimild til þess að meina öðrum prestum af- not af kirkju safnaðarins. Fimm sóknarbörn hafa lagt fram kæru gegn séra Gunnari vegna kynferð- isbrota. Lögreglan rannsakar nú kærurnar sem blygðunarsemisbrot, þó ekki sé útilokað að brotin verði rannsökuð sem kynferðisleg áreitni. Hann hefur sjálfur ítrekað lýst yfir sakleysi sínu. Hinsta óskin Séra Gunnar jarðsöng konuna að ósk fjölskyldu hennar en að sögn sonar hennar var náið samband á milli séra Gunnars og móður hans. Hennar hinsta ósk var að fá Gunn- ar til þess að jarðsyngja sig, við því brugðust ættingjar og höfðu sam- band við Gunnar í þeim tilgangi. Ekki var farið í gegnum kirkjuna sjálfa heldur var þessi ákvörðun tek- in þar sem konan hafði óskað eftir því. Gunnar virðist því hafa hundsað sjónarmið Biskupsstofu í þeim til- gangi að virða ósk sóknarbarns síns. Kom okkur á óvart Eysteinn Ó. Jónasson, formaður sóknarnefndar Selfosskirkju, segir að nefndinni hafi vissulega komið á óvart að séra Gunnar hefði sinnt jafn mörgum embættisverkum og raun bar vitni á meðan hann var í leyfi. Séra Gunnar hafi haft aðra skoðun á málinu og þótt það sjálf- sagt að framkvæma þessar athafn- ir, ef leitað var til hans. Aðspurð- ur segist Eysteinn ekki sérstaklega hafa orðið var við að fólk væri ósátt við kirkjuna, það hafi farið þá farið í gegnum prestinn. „Við vorum beð- in um það í upphafi að láta Biskups- stofu sjá um gang þessa máls og við skiptum okkur ekki af þessu máli.“ Fólk var ekki sátt „Við getum orðað það þannig að fólk var ekki sátt við að séra Gunn- ar sinnti embættisverkum á meðan hann væri í leyfinu. Ég minni þó á að hann heldur sínum embættisrétt- indum og hefur ekki verið ákærð- ur í málinu. Það var hins vegar mat mitt í samráði við biskupsembættið að það væri óheppilegt að hann væri með athafnir í Selfosskirkju á meðan á rannsókn málsins stendur,“ segir séra Guðbjörg. Hún bendir á að prestur í leyfi eigi að sinna embættisverkum í umboði setts sóknarprests, þess sem hefur embættisbækur undir höndum og er bundinn af því að færa athafnir inn í bækurnar. Hún segist hins veg- ar hafa fært þær athafnir til kirkju- bókar sem hann framkvæmdi áður en hún hafði samband við hann. „Ég sendi honum bréf þar sem ég sagði honum að þess væri ekki óskað að hann myndi sinna prestsverkum í Selfosskirkju. Þetta er í samráði við Biskupsstofu og vígslubiskups.“ Hún segir séra Gunnar ekki hafa svarað bréfinu eða gert athugasemdir við það og því sé málinu lokið af hennar hálfu. „Ég lít svo á sem séra Gunnar hafi verið að þjóna fólki vegna um- hyggju fyrir því, en ég er sannfærð um að hann muni láta það ráða meiru að andrúmsloftið verði frið- vænlegt í söfnuðinum heldur en að efna til deilna. Það vilja allir að þessu máli ljúki sem fyrst,“ segir hún. Óheppilegt að mati Biskups- stofu Steinunn Arnþrúður Björnsdótt- ir, upplýsingafulltrúi Biskupsstofu, segir málið afar viðkvæmt fyrir alla aðila. „Þegar séra Gunnar sótti um leyfi var honum kunn sú afstaða biskupsembættisins að ekki væri heppilegt að hann sinnti embætt- isverkum í sókninni á meðan á leyfi stæði. Þessi skoðun var svo ítrekuð af biskupsembættinu bréflega í júlí, eftir að borist höfðu athugasemdir,“ segir hún. Ekki náðist í séra Gunnar í gær, þar sem hann er staddur erlendis. Settur sóknarprestur á Selfossi mun ekki færa til kirkjubókar þau embættisverk sem séra Gunnar Björnsson mun framkvæma á næstunni í kirkjusókninni. Biskups- stofa skýrði honum þá afstöðu sína að ekki væri heppilegt að hann framkvæmdi embættisverk á meðan hann er í leyfi. Það var síðar ítrekað bréflega í júlí og nú hef- ur Guðbjörg Jóhannesdóttir settur sóknarprestur sent honum bréf þar sem þess er óskað að hann vinni ekki prestsstörf í sókninni á meðan hann er í leyfi. ÞjónuStar í óÞökk BiSkupS „Það var hins vegar mat mitt í samráði við biskupsemb-ættið að það væri óheppilegt að hann væri með athafn-ir í Selfosskirkju á meðan á rannsókn málsins stendur.“ valGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valur@dv.is Séra Gunnar Björnsson Framkvæmir embættisverk á meðan hann er í leyfi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.