Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Page 8
miðvikudagur 13. ágúst 20088 Fréttir RáðabRugg í Ráðhúsinu „Nei, nei, það er ekki í deiglunni,“ segir Óskar Bergsson spurður hvort það sé möguleiki á að hann verði þriðja hjólið í meirihlutasamstarfi Frjálslynda flokksins og Sjálfstæð- isflokksins. Samkvæmt áreiðan- legum heimildum og viðtölum við sjálfstæðismenn vilja þeir treysta völd sín með Framsóknarflokknum en sjálfir telja þeir Ólaf F. Magnús- son vera að sliga flokkinn. Óskar og Ólafur hafa eldað grátt silfur síðan Óskar kom inn sem borgarfulltrúi fyrir Björn Inga Hrafnsson og því eru leiddar að því líkur að tilboði Sjálfstæðisflokksins sé slengt fram gagngert til þess að hrekja Ólaf í burtu. En svo virðist sem borgar- fulltrúarnir séu einfaldlega að biðla til Óskars um að bjarga þeim. Niðurlægjandi staða Meirihlutasamstarf Sjálfstæð- isflokksins við borgarstjórann Ólaf F. hefur gengið brösuglega og þær raddir heyrast meðal sjálfstæðis- manna að það hafi verið alger nið- urlæging þegar Ólafur réði Gunnar Smára Egilsson til þess að taka út upplýsingamál í borginni. Gunnar Smári fær að launum um eina og hálfa milljón króna fyrir sex vikna vinnu. En sjálfstæðismönnum svíð- ur vegna þess að Gunnar Smári var forstjóri Dagsbrúnar sem var í eigu Baugs. Armur innan Sjálfstæðis- flokksins er svarinn óvinur Baugs- manna, samanber Baugsmálið í heild sinni. Nú er Gunnar, sem var tákngervingur fjölmiðlahluta Baugs, orðinn upplýsingaráðu- nautur innan borgarstjórnar. Hvött til dáða Sjálfstæðisflokkurinn mæld- ist með tæp 27 prósent í síðustu Gallupkönnun. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálf- stæðisflokksins og núver- andi ritstjóri Frétta- blaðsins, skrifaði í gær leiðara þar sem flokkurinn var hvattur til þess að ræða við Fram- sókn um nýj- an meirihluta. Í Staksteinum Morg- unblaðsins hafa sömu sjónarmið verið viðruð, en auk þess var þar stungið upp á samstarfi við vinstri græna. Guðni Ágústsson, formað- ur Framsóknarflokksins, talar á þá leið í fjölmiðlum að nú sé svo kom- ið að meirihluti borgarstjórnar er óstarfhæfur en gefur ekkert upp um hugsanlegt samstarf. Eftirspurn eftir Framsókn „Þetta er ekki meirihlutinn sem ég vil vinna með,“ segir Óskar um þann möguleika að ganga til liðs við meirihluta Sjálfstæðisflokks- ins og Ólafs F. Magnússonar. Óskar bendir á að hann skilji umræðuna um breytingar á meirihlutanum þar sem núverandi meirihluti sé óstarf- hæfur og hafi verið í því ástandi frá upphafi, að hans mati. Þá vill Óskar meina að þetta sé ekkert nýtt í umræð- unni. Fjöl- miðlar hafi reifað allar mögulegar hugmyndir að meiri- hluta, en nú sé búið að loka hringn- um með nýrri hugmynd um sam- starf. „Annars hljómar þetta eins og góð tónlist í mínum eyrum, það er langt síðan eftirspurn eftir Fram- sókn var jafnmikil og nú,“ segir Ósk- ar hlæjandi. Afhroð sjálfstæðismanna Þó svo Óskari sé skemmt vill hann ekki ganga svo langt að loka alfarið á samstarf við nokkurn flokk um meiri- hluta. Aðspurður segir hann eng- an fulltrúa borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins hafa rætt við sig um hugsanlegt samstarf. Samkvæmt heimildum DV sér Sjálfstæðisflokkurinn sér ekki fært að slíta samstarfinu við Ólaf þar sem slíkt gæti reynst of þungt högg á brothætt fylgi flokksins. Flokkur- inn hefur þó þegar goldið afhroð í skoðanakönnunum og eru þau sjónarmið áberandi innan borgar- stjórnarflokksins að bregðast þurfi við og það sem fyrst ætli hann ekki að missa völdin endanlega í næstu kosningum. Að auki þurfi borgar- fulltrúarnir, hver og einn, að horfast í augu við hugsanlegt prófkjör fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Ítrekað var reynt að ná sambandi við Ólaf F. en hann svaraði ekki. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins biðla til Óskars Bergssonar um að bjarga sér úr sjálfheldunni með Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra. Þær raddir heyrast innan Sjálfstæðisflokksins að flokkurinn hafi verið niðurlægður með ráðningu Gunnars Smára Egilssonar í stöðu upplýsingaráðunauts. Óskar hafnar tilboði þeirra um þriggja flokka meirihluta en fagnar nýfundnum áhuga á Framsókn. vAlur GrEttiSSoN blaðamaður skrifar: valur@dv.is „Annars hljómar þetta eins og góð tónlist í mínum eyrum, það er langt síðan eftirspurn eftir Framsókn var jafn- mikil og nú.“ Hanna Birna Kristjánsdóttir Fylgi sjálfstæðisflokks hefur ekki aukist þrátt fyrir að Hanna Birna sé orðin oddviti flokksins. Flokkurinn hefur aldrei mælst jafnilla í skoðanakönnunum. Ólafur F. Magnússon Ekki náðist í Ólaf F. en hann hlýtur að vera ráðvilltur eftir að sjálfstæðismenn biðluðu til Óskars Gunnar Smári Egilsson Er nýr upplýsingamálaráðunautur borgarinnar og sjálfstæðismönn- um svíður það. Óskar Bergsson Bítur ekki á öngul sjálfstæðisflokksins sem býður honum inn í meirihlutasam- starf ásamt Ólafi F. magnússyni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.