Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 12
miðvikudagur 13. ágúst 200812 Neytendur Lof&Last n Lofið fær nýi leik- völlurinn í Leirvogstungu í mosfellsbæ. Íbúar í hverfinu eru í skýjunum yfir hinum nýja víkingaleikvelli sem er staðsettur neðst í hverfinu. aðstaða er fyrir börn sem fullorðna til að taka með sér nesti. afar gott framtak við byggð í uppbyggingu. n Lastið fær veitingastaðurinn tivoli fyrir vondan „brunch“. viðskipta- vinur keypti sér máltíð á næstum 1600 krónur. Þegar maturinn kom var spælda eggið og ristaða brauðið kalt að mati viðskiptavinarins. Hann gat lítið notið þessarar dýru máltíðar. Hamingja fjölskyldunnar fæst ekki keypt fyrir peninga: Ódýr afþreying Að fara með fjögurra manna fjöl- skyldu í bíó á laugardagseftirmiðdegi getur kostað allt að 6.400 krónum ef keypt er fyrir alla í sjoppunni. Það er deginum ljósara að hamingja verður ekki keypt fyrir peninga því það er vel hægt að eiga jafngóða fjölskyldustund fyrir mun minni pening. Til dæmis er hægt að geyma bíóstund fram að kvöldi og halda alvöru bíókvöld með sælgæti og poppi. DVD-mynd frá Bónusvídeó kostar 650 krónur og fylgja tvær gaml- ar með. Á laugardögum er helmings- afsláttur í nammibar Hagkaupa svo það er um að gera að nýta sér það. Svo poppar maður bara heima hjá sér. Þarf ekki að kosta meira en 1.500 krónur. Til að verja tíma utandyra getur fjöl- skyldan farið í nestisferð í Heiðmörk. Það kostar ekkert að labba um og stoppa einhvers staðar og spila fótbolta eða fara í leiki. Hægt er að taka með sér heimatilbúið nesti, samlokur og kakó. Hjólatúrar um bæinn kosta heldur ekki neitt. Í neyslufylleríi þjóðarinnar undan- farin ár hefur virst sem ekki væri hægt að gera skemmtilega hluti nema eyða fúlgum fjár. Hamingja fæst ekki keypt fyrir peninga heldur eru það einfald- lega samverustundir með góðu fólki sem skipta höfuðmáli. Peningana er hægt að nýta í margt annað og sérstak- lega á krepputímum. Það er vel hægt að kaupa vikuskammt í matinn í Bón- us fyrir sama pening og fjölskylduferð í bíóferð. Langatanga 166,70 183,60 Bensín dísel Sprengisandi 165,10 181,90 Bensín dísel Suðurfelli 166,70 183,60 Bensín dísel Hafnarfirði 165,00 181,80 Bensín dísel Bæjarlind 165,10 181,90 Bensín dísel Smáralind 165,10 182,00 Bensín dísel Lækjargötu 166,70 183,60 Bensín díselel d sn ey t i Innan tíðar hefjast allir grunnskólar landsins og þá er vert að huga að hvaða nesti á að taka með sér í skólann. Ingibjörg Gunnarsdóttir, dósent í næringarfræði við Háskóla Íslands, segir að ávextir, grænmeti og gróft brauð sé það eina sem ætti að vera í nestis- boxinu. Mjólkurvörur þurfa ekki að vera partur af því. „Trefjaneysla íslenskra barna er lítil og er því gott tækifæri að auka hana með því að velja rétt í nestisboxið.“ Mjólkin óþörf í nestisboxið Vinsælt verkjalyf treo er vinsælt verkjalyf sem virkar vel á höfuðverk og slappleika. Í verðkönnun kom í ljós að einn staukur af treo er ódýrastur hjá apótekaranum en dýrastur í árbæjarapóteki. „Það á að vera alveg nóg að setja bara einn ávöxt eða smá grænmeti í nestisboxið,“ segir Ingibjörg Gunn- arsdóttir, dósent í næringarfræði við Háskóla Íslands. Ingibjörg segir að börn sem borða góðan morgunmat og fara í hádegismat um ellefuleytið þurfi ekki annað en smá millibita í nestistímanum. „Það er miklu meiri þörf á því að setja ávexti og grænmeti í nestisboxið en mjólkurvörur,“ segir hún. Yngstu börnin Fyrir yngstu börnin er nóg að hafa smá millibita í nestisboxinu, til dæmis ávexti, grænmetisbita eða gróft brauð. „Þau sem eru lystarlaus á morgnana ættu að fá samloku með sér í boxið,“ segir Ingibjörg. Hún seg- ir að brauðið þurfi að vera trefjaríkt og þá er átt við brauð sem gefur að minnsta kosti 6 grömm af trefjum fyrir 100 grömm af brauði. „Ég hvet fólk til að lesa á umbúðirnar til að sjá það.“ Sniðugast er að reyna að gera nestisboxið sem skemmtilegast fyr- ir barnið og hafa fjölbreytnina í fyr- irrúmi. Ávexti einn daginn og græn- meti hinn daginn. „Það verða allir leiðir á því að borða alltaf það sama.“ Sleppa djúsnum Ingibjörg segir ástæðu til að minnast á drykkina og telur vatn án efa besta kostinn. „Það er allt of stór hluti af orku íslenskra barna sem kemur frá drykkjum og það er al- gjör óþarfi að nota þá. Þeir eru orku- ríkir og trefjasnauðir og geta tekið af börnunum lystina í hádeginu. „Þó það séu skiptar skoðanir og misjöfn gæði í hádegismatnum er hann betri en nestisdót því hann er fjölbreytt- ur,“ segir Ingibjörg og bætir því við að trefjar auka vellíðan og halda hungr- inu frá. Í nestistímanum ættu öll börn einfaldlega að fá vatnsglas. Mjólkin óþörf „Það eru mörg börn í dag sem ofnota mjólkina með því að borða miklu meira af mjólkurmat en þörf er á,“ segir Ingibjörg. Börn þurfa einungis tvo skammta af mjólk á dag. Einn skammtur er eins og eitt mjólkurglas, diskur af morgunkorni með mjólk eða ostur á eina og hálfa brauðsneið. Mjólkin er trefjasnauð og getur orðið allt of stór hluti af mataræðinu sé þess ekki gætt að hafa hlutföllin jöfn. Ingibjörg vill benda fólki á að nýta tækifærið og gefa börnunum frekar ávexti, græn- meti eða gróft brauð. „Ef barnið er svangt, þá borðar það það sem er í nestisboxinu.“ VerkjalYfIð treo apótekarinn 542 kr Lyfja 553 kr garðsapótek 560 kr rima apótek 577 kr Lyf og heilsa 589 kr Árbæjarapótek 618 kr HúSaSMIðjan Góð „Ég er sérstaklega ánægður með starfsmenn- ina í Húsasmiðjunni í Hafnarfirði því þeir hafa verið mér mikið innan handar í að gera endur- bætur á húsinu mínu,“ segir Ólafur Páll gunn- arsson útvarpsmaður. „Þetta eru toppmenn og eru búnir að hjálpa mér að leysa ýmis vanda- mál sem koma upp þegar maður er að gera hlutina sjálfur.“ neytendur@dv.is umsjÓn: ásdÍs Björg jÓHannesdÓttir, asdis@dv.is Neyte ur neytandinn „Ef barnið er svangt, þá borðar það það sem er í nestisboxinu.“ trefjaríkt fæði stuðlar að vellíðan Þessir drengir velja eflaust hollt og gott nesti í skólann. Hollt og gott nesti ávextir, grænmeti og gróft brauð er það eina sem á að vera í nestisboxi barna. afþreying með fjölskyldunni Þarf ekki að kosta mikinn pening. ÁSDÍS BjÖrG jóHanneSDóttIr blaðamaður skrifar: asdis@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.