Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Page 14
miðvikudagur 13. ágúst 200814 Skólar og nám
„Markmið með náminu hjá Airbrush & Make Up
School er að nemendur læri öll helstu atriði tískuförðun-
ar sem og airbrush-förðunar. Að námi loknu eiga nem-
endur að hafa öðlast færni til að geta tekist á hendur
krefjandi verkefni hvort sem er á förðunarstofum, snyrti-
stofum, við sjónvarps-, kvikmynda- eða tímritaförðun,“
segir Sólveig Birna Gísladóttir förðunarmeistari og eig-
andi nýs förðunarskóla sem mun hefja starfsemi sína
þann 8. september næstkomandi að Köllunarklettsvegi
4 í Reykjavík. Að sögn Sólveigar er náminu skipt upp
í nokkra hluta þar sem kennt er allt frá hefðbundinni
dagförðun til notkunar nýjustu tækni í airbrush-förðun
og fantasíuförðun. Kennt verður fjórum sinnum í viku,
mánudag til fimmtudags, fjórar klukkustundir í senn og
geta nemendur valið um dag- eða kvöldnám. Sólveig ætl-
ar þó ekki eingöngu að bjóða upp á lengra nám því einn-
ig verður hægt að læra undirstöðuatriði förðunar á einni
kvöldstund. „Ég verð með frábæra aðstöðu fyrir vinkonu-
hópa, saumaklúbba og vinnustaðahópa,“ segir Sólveig.
Sólveig státar af gífurlegri reynslu þegar kemur að
förðun en sjálf hefur hún starfað hjá Ríkissjónvarpinu,
Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Íslensku Óper-
unni, auk þess að hafa farðað fyrir kvikmyndir, sjónvarps-
þætti og auglýsingar svo eitthvað sé nefnt. Einnig sá Sól-
veig um glæsilegt útlit Regínu Óskar og Friðriks Ómars
þegar þau fluttu Eurovision lagið This is my life fyrir hönd
þjóðarinnar fyrr á árinu.
Þrjú ár eru nú síðan Sólveig stofnaði verslun sína Air-
brush & Make Up gallery að Dalshrauni 11 í Hafnarfirði.
Að sögn Sólveigar hefur verið mikil eftirspurn eftir förð-
unarnámi og námskeiðum í versluninni og ákvað hún því
að stofna þennan glæsilega förðunarskóla. Áhugasamir
geta sent Sólveigu póst á amgallery@internet.is.
kolbrun@dv.is
Nýr
förðunarskóli
opnaður
„Við erum að gefa fólki mögu-
leika á því að komast í vandað og
gott nám erlendis. Við sérhæfum
okkur mikið í tungumálanámi
fyrir fólk á vinnumarkaðnum auk
þess sem við hjálpum fólki við að
sækja um erlenda fagskóla og þá
einna helst á sviði hönnunar og
lista,“ segir Arnþrúður Jónsdóttir,
annar eigandi Lingó-málamiðl-
unar.
Lingó hefur verið starfandi í
fjögur ár en þar á undan ráku eig-
endurnir sams konar fyrirtæki frá
árinu 1990 og því er reynslan orð-
in mikil og gott og öruggt sam-
band komið á milli Lingó og sér-
valinna erlendra skóla.
„Í tungumálanáminu er það yf-
irleitt enskan sem brennur mest á
fólki en annars eru þýska, franska,
ítalska og spænska líka mjög eftir-
sótt. Við erum með þjálfunarsetur
erlendis þar sem áherslan er lögð
á kennsluna og að fólk fái það út
úr náminu sem það sóttist eftir.
Þetta geta verið allt frá vikunám-
skeiðum upp í öllu lengra nám.“
Aðstoðin sem er í boði hjá
Lingó er töluvert mismunandi
eftir því hvort fólk er að sækjast
eftir tungumálanámi eða fagn-
ámi. „Það er talsvert lengra ferli
sem fer í gang þegar sótt er um
fagskóla en við aðstoðum við allt
umsóknarferlið. Ferilskrána, sýn-
ingarmöppu, hvatabréf og annað
sem nauðsynlegt er að hafa þegar
sótt er um skóla erlendis. Það er
til að mynda alltaf hægt að koma
með hvatabréfið til okkar til yfir-
lesturs. Þegar öll gögn eru tilbú-
in söfnum við þeim í umsókn-
armöppu sem við sendum út og
fylgjum viðkomandi þar til hann
fer út í námið,“ segir Arnþrúður.
Hægt er að kynna sér starf-
semi Lingó nánar á heimasíðunni
lingo.is.
krista@dv.is
Lingó-mála-
miðlun aðstoð-
ar fólk við að
komast í gott og
vandað nám
erlendis: Opna
gáttir í nám
erlendis
Sólveig Birna Gísladóttir förðunarmeistari býður nú upp á nýtt og spenn-
andi förðunarnám sem og styttri námskeið í nýjum og glæsilegum förðunar-
skóla sem ber nafnið Airbrush & Make Up School.
Að störfum sólveig
ætlar að kenna fólki
förðun í vetur.
Aðstoða fólk alla leið arnþrúður
Jónsdóttir og starfsfólk Lingó aðstoðar
þá sem vilja komast í skóla erlendis.